Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Qupperneq 31

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Qupperneq 31
FRÁ 75 ÁRA AFMÆLI HÆSTARÉTTAR Hér á eftir fer frásögn Péturs Kr. Hafstein hæstaréttardómara af afmælis- hátíð Hæstaréttar íslands 16. febrúar 1995. Þá ávörp Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra, Hrafiis Bragasonar forseta Hæstaréttar íslands, Nils Pontoppidan forseta Hœstaréttar Danmerkur, Allans Vagns Magnússonar for- manns Dómarafélags Islands og Ragnars Aðalsteinssonar formanns Lög- mannafélags Islands, sem haldin voru á hátíðarsamkomu þann dag í Háskóla- bíói. PÉTUR KR. HAFSTEIN HÆSTARÉTTARDÓMARI: Hinn 16. febrúar 1995 voru 75 ár liðin frá því, er Hæstiréttur íslands kom saman í fyrsta skipti í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Dómþing var háð í dómhúsi réttarins við Lindargötu kl. 10.30 árdegis til þess að kveða upp dóma, eins og gert hafði verið í hinu fyrsta þinghaldi. Þá voru kveðnir upp fjórir dómar en nú voru dómarnir tíu. Fimm dómarar tóku þátt í uppkvaðningu dómanna en ekki þrír, eins og venjulegt er. Aðrir dómendur Hæstaréttar voru viðstaddir. Fjöldi lögmanna var við þinghaldið auk nokkurra annarra, sem heiðruðu Hæstarétt með nærveru sinni. Meðal þeirra voru forsetar hæstarétta hinna Norðurlandanna, þrír fyrrrverandi hæstaréttardómarar, dómsmálaráðherra og stjórnarmenn í Dómarafélagi Islands, Lögmannafélagi Islands, Sýslumanna- félagi fslands, Lögfræðingafélagi fslands og Orator, félagi laganema. Að loknu ávarpi forseta Hæstaréttar, Hrafns Bragasonar, og uppsögu dóma kvöddu þessir sér hljóðs og ávörpuðu Hæstarétt: Ragnar Aðalsteinsson formaður Lögmannafélags íslands, Nils Pontoppidan forseti Hæstaréttar Danmerkur, Olavi Heinonen forseti Hæstaréttar Finnlands, Carsten Smith forseti Hæstaréttar Noregs, Anders Knutsson forseti Hæstaréttar Svíþjóðar, Dögg Pálsdóttir for- maður Lögfræðingafélags íslands og Kristín Edwald formaður Orators. Hæstarétti voru færðar góðar gjafir við þetta tækifæri. Frá Hæstarétti Dan- merkur fékk rétturinn tvær listaverkabækur, Fantasiens Fugle eftir Carl-Henn- ing Pedersen með áritun listamannsins; frá Hæstarétti Finnlands myndskreytta útgáfu þjóðkvæðabálksins Kalevala, sem finnski læknirinn og bókmennta- prófessorinn Elias Lönnrot setti saman um miðbik síðustu aldar; frá Hæstarétti Noregs ljósrit af handriti Landslaga Magnúsar konungs lagabætis, sem lögtekin voru í Noregi 1274-1276 (Corpus Codicum Norvegicorum Medii Aevi); frá Hæstarétti Svíþjóðar tvo kertastjaka úr látúni með áletrun; frá Dómarafélagi Islands áletraðan silfurbréfhníf úr hendi Jens Guðjónssonar gullsmiðs; frá Lögfræðingafélagi íslands hið nýja Lögfræðingatal og frá Orator gestabók með tréspjöldum, útskomum af Hannesi Flosasyni. Þá bámst réttinum og heilla- skeyti frá Sýslumannafélagi Islands, Héraðsdómi Reykjaness og Héraðsdómi Norðurlands eystra. Að lokinni athöfn í dómsal Hæstaréttar gengu dómarar og gestir yfir Lindar- götu, þar sem dómsmálaráðherra lagði hornstein að nýju dómhúsi réttarins. Á 217

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.