Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Qupperneq 32

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Qupperneq 32
Hornsteinn dómhúss Hœstaréttar íslands. hornsteininn er letrað: „Hornstein þennan að húsi Hæstaréttar íslands lagði Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra 16. febrúar 1995, á 75 ára afmæli rétt- arins“. Eftir hádegi var hátíðarfundur í Háskólabíói. Gestir voru hátt á fjórða hundrað og meðal þeirra var forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir. Forseti Hæstaréttar setti hátíðina með ávarpi. Þá fluttu leikararnir Ingvar E. Sigurðsson og Jóhann Sigurðarson samantekt um sögu æðsta dómsvalds á Islandi eftir Davíð Þór Björgvinsson aðstoðarmann við EFTA-dómstólinn í Genf, leiklestur undir stjórn Sveins Einarssonar. Undir lestrinum var brugðið upp á baktjaldið 22 myndum úr sögu þjóðlífs og dómaskipunar. Þá fluttu ávörp Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra, Nils Pontoppidan forseti Hæstaréttar Danmerkur og talaði af hálfu hinn erlendu gesta, Ragnar Aðalsteinsson formaður Lögmannafélags Islands og Allan Vagn Magnússon formaður Dómarafélags Islands. Formaður Lögmannafélagsins tilkynnti, að félagið gæfi Hæstarétti í afmælisgjöf list- skreytingu eftir Svövu Bjömsdóttur myndlistarmann og yrði henni komið fyrir í minni dómsal hins nýja dómhúss. Næst lék Tríó Reykjavíkur, þau Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran og Halldór Haraldsson, Andantino, 2. þátt úr tríói í e-moll fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Þá flutti Sigurður Líndal prófessor erindi um þátt dómsvaldsins í þróun réttarins. Tríó Reykjavíkur lék Allegro enertico, 1. þátt úr Tríói opus 101 í c-moll eftir Johannes Brahms. Forseti Hæstaréttar flutti að endingu nokkur lokaorð. Að hátíðarfundi loknum bauð dómsmálaráðherra öllum viðstöddum til veit- 218

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.