Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Page 38

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Page 38
skilningur á því sem verið var að gera hefði létt störfin. Það virðist til dæmis takmarkaður skilningur á því að fjárhagslegir erfiðleikar þjóðfélags bitna fljótlega á dómstólum þess og orsaka stóraukinn málafjölda, sem kallar á meiri nrannafla og aukið vinnuálag. Breytingar þær sem nú hafa verið gerðar á rétt- arkerfinu hafa þó eflt von um að nú sé að rofa til. Með þeim var skapaður grundvöllur fyrir sjálfstætt réttarkerfi. Réttarfarsumbætur sem fylgdu í kjölfarið hafa svo gert dómskerfið skilvirkara. Margt má þó enn lagfæra og réttarkerfið verður að vera í sífelldri skoðun. Nauðsynlegt er t.d. að samhæfa betur starf- semi rannsóknarvalds og ákæruvalds í opinberum málum svo ná megi fram dómi í þessum málum sem fyrst eftir að þau eru upplýst. Þá er bið eftir hæsta- réttardómi í einkamáli allt of löng, þrátt fyrir að dómum réttarins hafi á síðari árum fjölgað jafnt og þétt. Það eru mannréttindi að fá úrlausn mála sinna innan hæfilegs tíma enda gerir Mannréttindasáttmáli Evrópu ekki aðeins kröfu til þess að aðilar dómsmáls í aðildarlöndunum eigi rétt á því að fá mál sín endurskoðuð fyrir æðra dórni, heldur einnig að það gerist innan hæfilegs tíma. V. Erfitt getur reynst að spá fyrir urn hver verða muni þróun Hæstaréttar á komandi árum. Svo sýnist sem að rétturinn sé alltaf að fá fleiri og flóknari við- fangsefni til úrlausnar og ýmislegt virðist stefna í þá átt að áhrif dóma hans eigi eftir að aukast. Það sem bendir til þess er t.d. að eftir því sem Alþingi lætur til sín taka á fleiri sviðum virðist löggjöfin verða flóknari og jafnvel torræðari. Þá hafa aukin áhrif ýmissa sérhagsmunahópa í för með sér aukna hættu á að rétt- indi annarra verði fyrir borð borin og af því skapast oft málaferli. Aukin þátt- taka þjóðarinnar í sífellt umfangsmeira alþjóðasamstarfi kallar einnig á ný dómsmál, oft á nýjum sviðum réttarins. Lausnir alþjóðíegra úrskurðaraðila, sem íslenska ríkið hefur heitið að fara eftir, hljóta að hafa þau áhrif á íslenska dómstóla, að þeir horfi til þeirra og taki tillit til lögskýringaraðferða sem þar koma fram. Þar sem þessir aðilar sýnast yfirleitt stefna í þá átt með túlkunum sínurn á viðkomandi alþjóðasáttmálum að víkka út valdsvið sitt, verða dómstólar aðildarlandanna að gera það líka svo ekki myndist ósamræmi á milli aðferðanna. Álitaefnum þjóðfélagsins ntun þannig líkast til fjölga. Reynir þá enn meira á íslenska dómstóla. Þýðingarmikið verður þá að að vel sé að Hæstarétti búið. Stjómskipunin þarf að ti-yggja að hann sé sjálfstæður og óháður r störfum sínum. Staða dómaranna þarf að vera ömgg og starfsaðstaða við hæfi. Það er ekki nóg að þeir séu þess sjálfir fullvissir að dómar þeirra séu sanngjamir og réttlátir. Fólkið í landinu verður einnig að vera fullvisst um það. Alltaf verður að tryggja að til rétt- arins veljist víðsýnir hæfileikamenn, sem hafi til að bera bæði almenna og faglega þekkingu og reynslu. Verður þá réttaröryggi borgaranna og skilvirkni dómskerfis- ins vonandi nægjanlega tryggt svo allir menn nái rétti sínurn. Því enn eru í fullu gildi orð þau sem höfundur Njálssögu lætur Þorgeir ljós- vetningagoða segja á Lögbergi árið 1000: 224

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.