Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Qupperneq 47
Kristín Briem, hdl., framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga fór síðan yfir
endurskoðaða reikninga tímaritsins, en þeir miðast við tímabilið 1/1 1993 til 31/12
1993. Heildartekjur voru kr. 2.275.091, en þá hafði verið tekið tillit til afskrifta á
ógreiddum en áður tekjufærðum áskriftum og auglýsingum vegna eldri ára að
fjárhæð kr. 584.000. Gjöld ársins voru kr. 2.376.000., en á árinu var keyptur og
gjaldfærður tölvubúnaður að fjárhæð kr. 355.000 og eldri tölvubúnaður að Ijárhæð
kr. 287.000 afskrifaður. Gjöld umfram tekjur voru því á árinu kr. 101.000. Eigið fé
pr. 31/12 1992 var kr. 5.976.863.
Orðið var gefið laust um skýrslu stjómar sem og reikninga félagsins, en þar eð
enginn tók til máls voru reikningar bomir undir atkvæði og vom þeir samþykktir.
Stjómarkjör: Fráfarandi formaður Gunnlaugur Claessen, hæstaréttardómari
gaf eigi kost á sér til endurkjörs. Markús Sigurbjörnsson, hæstaréttardómari og
Ingvar J. Rögnvaldsson, skrifstofustjóri báðust og undan endurkjöri. Fráfarandi
stjórn gerði tillögu um Dögg Pálsdóttur, skrifstofustjóra, sem formann og var
hún kosin með lófaklappi. Þá var fallist á tillögu stjómar um varaformann
Helga Jóhannesson, hdl. Tillaga stjómar um meðstjórnendur hlaut einnig sam-
þykki fundarins, en þeir voru: Benedikt Bogason, dómarafulltrúi, Kristín
Briem, hdl., Kristján Gunnar Valdimarsson, skrifstofustjóri, Ragnhildur Arn-
ljótsdóttir, lögfræðingur, og Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari.
I varastjórn voru kjörnir: Arnljótur Björnsson, prófessor, Eiríkur Tómasson,
hrl., Hallvarður Einvarðsson, rfkissaksóknari, Hrafn Bragason, hæstaréttardóm-
ari, Jón St. Gunnlaugsson, hrl., Stefán M. Stefánsson, prófessor og Þór Vil-
hjálmsson, hæstaréttardómari. Endurskoðendur voru kjörnir: Guðmundur
Skaftason, fyrrv. hæstaréttardómari og Helgi V. Jónsson, hrl. Varaendurskoð-
endur vom kjörnir þeir: Allan V. Magnússon, héraðsdómari og Skúli Guð-
mundsson, skrifstofustjóri.
Að loknu stjómarkjöri þakkaði formaður fráfarandi stjórn fyrir ánægjulegt
samstarf; óskaði nýkjörinni stjóm velfamaðar og sérstaklega eftirmanni sínum,
en hér væri eitt karlaveldið enn fallið. Framtíð félagsins væri í öruggum hönd-
um. Störf hennar í stjórn hefðu sýnt að hún væri vel að þessu trausti komin.
Nýkjörinn formaður tók síðan til máls. Þakkaði hlý orð og sýnt traust og sagðist
axla þá ábyrgð að feta í fótspor fyrirrennara sinna. Kvaðst þó ekki vilja líta á
kjörið út frá því sjónarhorni að kosin hafi verið kona heldur lögfræðingur. Færði
hún þeim sem úr stjóm gengu sem og framkvæmdastjóra þakkir og bauð nýja
stjórnarmenn velkomna til starfa. Hinn röggsami fundarstjóri þakkaði síðan
fundarsókn og sleit fundi.
Svo samandregið og endursagt.
Ingvar J. Rögnvaldsson
fundarritari
233