Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Qupperneq 51

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Qupperneq 51
Á þessum fundi voru rædd ýmis mál, sem eru ofarlega á baugi hjá norrænum lögfræðingum, bæði varðandi kjara- og atvinnumál og fagleg efni. 8. FÉLAGASKRÁ OG FÉLAGSGJÖLD í ár voru 804 gíróseðlar sendir til félagsmanna með árgjaldi, sem að þessu sinni var kr. 3000. Alls hafa 624 greitt árgjaldið og eru félagsmenn, sem enn eiga ógreitt, hvattir til að standa skil á greiðslunni. 9. STJÓRNARFUNDIR Stjórnarfundir urðu alls 12. Milli funda unnu stjómarmenn mikið starf að auki við hin ýmsu verkefni, sem félagið annast. Hafa meðstjórnarmenn mínir sinnt þeim verkefnum, sem þeir hafa axlað, með miklum ágætum. 10. LOKAORÐ Nokkrar breytingar eru fyrirsjáanlegar á stjórn félagsins með því að þrír stjórnarmenn gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Mun Ingvar J. Rögnvaldsson nú hverfa úr stjórn eftir að hafa setið þar í 8 ár. Þá munu Markús Sigurbjörnsson og undirritaður einnig hverfa úr stjórninni eftir að hafa setið þar í 2 ár. Ég vil þakka þeim og öðrum samstjómarmönnum mínum sérstaklega óeigingjörn störf og ánægjulegt samstarf. 26. október 1994. Gunnlaugur Claessen LEIÐRÉTTING í grein minni um hæstaréttardómara í 1. hefti Tímarits lögfræðinga 1995 láðist að geta þess, að auk Björns Sveinbjömssonar hafði Haraldur Henrysson verið varaþingmaður, áður en hann tók sæti í Hæstarétti, og dr. Gaukur Jörunds- son var settur hæstaréttarritari frá 1. febrúar til ársloka 1967. Pétur Kr. Hafstein 237

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.