Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Qupperneq 4

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Qupperneq 4
aðeins í samræmi við eðli stjómmála að grípa tækifærin þegar þau gefast. Þá væri harla óeðlilegt ef ráðherra heimilaðist ekki að láta persónulega skoðun sína í ljós án þess að sæta gagnrýni fyrir og mun betra að hann tjái sig en þegi. Það er heldur engin ástæða til þeirrar gagnrýni að dómsmálaráðherra sé með þessu að gefa dómumm fyrirmæli, hann veit mætavel að til þess hefur hann enga heimild. Ekkert þjóðfélag er svo fullkomið að ekki séu þar framin fleiri og færri afbrot. Þetta er gamalkunnug staðreynd sem öldum saman hefur lagt þá skyldu á herðar opinberra yfirvalda að stemma stigu við afbrotum. Aðdragandi afbrota og af- brotaferli er hins vegar oft á tíðum svo flókið að það er borin von að yfirvöld ein fái þar rönd við reist. Oft er það svo að aðdragandann má rekja að vöggu afbrotamannsins. Frá þeim stað og til brotastaðarins er langur vegur þar sem margir hafa komið við sögu og lagt sitt til, gott eða illt eftir atvikum. Refsing fyrir brot er aðeins kafli í sögunni, punktur aftan við það sem orðið er og verður ekki breytt. Það verður þó að ætla að refsingar hafí fyrirbyggjandi áhrif að einhverju marki, en vafasamt er að slagsmálahundurinn hugsi svo mjög til þess hvort hann kunni að fá 12, 18 eða 24 mánaða refsivist fyrir brot sitt og hvort hann stilli sig fremur vegna þess að refsivistin kunni að verða 18 mánuðir en ekki 12. Ákallinu um þyngri refsingar fylgir jafnan nokkur friðþægingarkeimur, sú kröfugerð sem í því felst er einföld og auðskilin og eftir það hægt að segja að einhver viðbrögð hafi verið sýnd og eitthvað hafi þó verið gert í málunum. Málin eru hins vegar miklu flóknari en svo að þynging refsinga hafi hér nokkur úrslitaáhrif, vandinn liggur í því sem úrskeiðis fer í daglegu lífi þjóðarinnar, uppeldi, efnahag, menntun og áfram mætti lengi telja. Það sem miður fer á þess- um sviðum eykur líkurnar á afbrotum og þar er því að finna bestu möguleikana á því að koma í veg fyrir þau. Þetta út af fyrir sig er einfalt mál. Tæpast er vafa undirorpið að líkamlegt ofbeldi hefur aukist á síðustu árum ekki síst hinum tilefnislausu árásum sem eru hvað uggvænlegastar. Það má nokkuð hafa til marks að ákærum vegna brota af þessu tagi hefur fjölgað þótt það sé ekki einhlítur mælikvarði. Margt bendir til þess að nú um stundir séu menn betur vitandi um þá persónuhelgi sem hver og einn nýtur lögum sam- kvæmt. Það eru ákveðnar líkur á því að kærum vegna þessara brota hafi fjölgað frá því sem áður var meira en brotunum sjálfum enda þótt slrkt verði aldrei leitt í ljós með óyggjandi hætti. Um þetta væri hægt að hafa langt mál sem ekki skal þó gert. Það má þó minna á að lengi hefur það loðað við okkur Islendinga að ekkert tiltökumál sé að nota kraftana og takast á. Sú saga er sögð að ekki fyrir svo ýkja löngu síðan hefði það verið til siðs hjá Þórshafnarbúum og Vopnfirð- ingum þegar böll voru á öðrum hvorum staðnum að safna liðum til að etja sam- an og vafalaust að af því hafa hlotist ýmsar skrokkskjóður án þess að til kasta ákæruvalds og dómstóla kæmi. Þetta var liður í þeirra skemmtun en er eflaust liðin tíð hjá þeim góðu mönnum. Það er einu sinni svo að refsingar verða ekki þyngdar í einu vetfangi. Ekki er hægt að dæma einn í 6 mánaða fangelsi og viku eða mánuði seinna annan í 12 140
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.