Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Side 8
I. INNGANGUR
í desember 1995 kom út skýrsla um starfsemi EFTA-dómstólsins fyrir tíma-
bilið 1. janúar 1994 til 30. júní 1995. Þar eru prentaðar í heild úrlausnir í þeim
málum sem dómstóllinn hafði til meðferðar á þessu tímabili, ásamt málflutn-
ingsskýrslum (report for the hearing).1 í skýrslunni er einnig að finna upplýs-
ingar um aðdraganda að stofnun dómstólsins, þann lagaramma sem hann starfar
innan og dómara og aðra starfsmenn á nefndu tímabili.2 Meginmarkmið þess-
arar greinar er að reifa þá dóma í skýrslunni sem telja má að geti haft þýðingu
í framtíðinni fyrir túlkun og beitingu EES-samningsins og þeirrar löggjafar sem
af honum leiðir. Fyrst er þó stuttlega lýst lögsögu dómstólsins og málsmeðferð.
Þess má geta, að þegar dómstóllinn tók til starfa þann 1. janúar 1994 áttu aðild
að honum Austurríki, Finnland, Svíþjóð, ísland og Noregur. Við inngöngu
þriggja fyrstnefndu ríkjanna í Evrópusambandið á árinu 1995 hættu þau aðild að
stofnuninni. í maí 1995 gerðist Liechtenstein aðili að henni. Þegar þetta er ritað
standa því þrjú ríki að EFTA-dómstólnum, ísland, Liechtenstein og Noregur.
II. LÖGSAGA OG MÁLSMEÐFERÐ
1. Lögsaga
í 2. mgr. 108. gr. Samningsins um evrópska efnahagssvæðið EES-samn-
ingsins segir að EFTA-ríkin skuli koma á fót sjálfstæðri eftirlitsstofnun (Eftir-
litsstofnun EFTA (ESA)) og dómstóli (EFTA-dómstólinn). Um skipulag og
hlutverk þessara stofnana er nánar mælt fyrir í samningi EFTA-ríkjanna um
stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls (ESE-samningurinn).3 Ákvæði um dóm-
stólinn er að finna í IV. hluta samningsins og bókun 5 við hann. Samkvæmt
þessum ákvæðum tekur lögsaga dómstólsins til þessara mála (tilvísanir eru í
ESE-samninginn):
a) mála sem höfðuð eru af Eftirlitsstofnun EFTA gegn EFTA-ríki vegna
framkvæmdar EES-samningsins og ESE-samningsins (31. gr.),
1 Report of the EFTA-Court. 1 January 1994-30 June 1995. (Hér eftir skammstafað REC
1994-95).
2 REC 1994-95, bls. 1-12.
3 Samningur milli EFTA-rtkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls (ESE-samning-
urinn), ásamt bókunum við hann, er birtur í íslenskri þýðingu í EES-viðbæti við Stjómartíð-
indi EB nr. 55, 31. desember 1994 [94/EES/55/01]. Samningnum varbreytt með bókun, dags.
17. mars 1993, eftir að Svisslendingar höfðu fellt aðild að EES-samningnum. Bókunin er
einnig birt í EES-viðbæti við Stjómartíðindi EB nr. 55, 31. desember 1994 [94/EES/55/02].
Eftir að Austurríki, Svíþjóð og Finnland gerðust aðilar að EB voru nauðsynlegar breytingar
gerðar á ESE-samningnum, fyrst með bráðabirgðasamkomulagi, undirrituðu í Brussel 28.
september 1994, og síðan samkomulagi milli Islands og Noregs, undirrituðu 29. desember
1994. Báðir þessir samningar em prentaðir sem viðaukar við skýrslu dómstólsins, sbr. REC
1994-95, bls. 161-171. Hinn 18. maí 1995 samþykktu ríkin þrjú, fsland, Liechtenstein og
Noregur, viðauka sem lýtur að því meðal annars, að ákvæði ESE-samningsins gildi um
Liechtenstein.
144