Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Side 29

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Side 29
heimild EFTA-ríkjanna til að trufla útsendingar þar sem áfengir drykkir eru au^lýstir. I dómi EFTA-dómstólsins er vísað til fordæmis EB-dómstólsins frá 9. febrúar 1995, í málinu Leclerc-Siplec,37 um það að megintilgangur sjónvarpstilskip- unarinnar sé að tryggja frelsi til sjónvarpsútsendinga. í því skyni setji tilskip- unin ákveðnar lágmarkskröfur sem eigi við um útsendingar innan EB og nú innan Evrópska efnahagssvæðisins eftir að tilskipunin hefur verið tekin inn í EES-samninginn. Þá er tekið fram í dóminum að í tilskipuninni sé byggt á þeirri meginreglu að sjónvarpsstöð skuli hlíta reglum þess lands sem hún er staðsett í, þótt útsendingar hennar nái einnig til annarra landa (sendiríkisreglan). Sendiríkið sjálft geti, samkvæmt 3. gr. tilskipunarinnar, sett nákvæmari og strangari kröfur í eigin lög- gjöf en þær lágmarkskröfur sem tilskipunin mælir fyrir um, á þeim sviðum sem hún tekur til. A hinn bóginn sé tilskipunin reist á því sjónarmiði að önnur ríki geti ekki sett skorður við viðtöku dagskrár sem fullnægi þeim lágmarkskröfum sem kveðið er á um í tilskipuninni, sem og reglum sendiríkisins. Frá þessu sé undan- tekning í 2. mgr. 2. gr. tilskipunarinnar, ef um tilvik er að ræða sem fellur undir 22. gr. tilskipunarinnar, þ.e. að útsent efni sé talið til þess fallið að skaða alvarlega andlegan og siðferðilegan þroska barna og unglinga, eða hvetji til illvilja eða haturs vegna kynþáttar, kynferðis, trúarbagða eða þjóðernis. d. Samræming ákvæða um sjónvarpsútsendingar EFTA-dómstóllinn rekur í dómi sínum sum þeirra ákvæða tilskipunarinnar sem lúta að lágmarkskröfum um útsendingar, m.a. útsendingar á auglýsingum. Meðal þessara ákvæða í 4. kafla tilskipunarinnar er ákvæði þess efnis að auglýsingar í sjónvarpi megi ekki vera til þess fallnar að skaða andlegan og siðferðislegan þroska barna og unglinga. í því skyni að koma í veg fyrir þetta eru í 16. gr. tilskipunarinnar sett ákveðin skilyrði um sjónvarpsauglýsingar, s.s. að auglýsendur megi ekki notfæra sér trúgirni bama og reynsluleysi til að hvetja þau til að kaupa vömr eða þjónustu; að ekki skuli hvetja böm til að sannfæra foreldra eða forráðamenn um gæði vöru; að auglýsendur skuli ekki notfæra sér það traust sem börn bera til foreldra, kennara eða annarra sér eldri og loks að ekki skuli í auglýsingum með óréttmætum hætti sýna börn og unglinga í bráðri hættu. Samkvæmt 21. gr. tilskipunarinnar er það á ábyrgð hvers ríkis sem aðild á að EB og nú EES-samningnum að fylgjast með því að reglna þessara sé gætt á yfirráðasvæði ríkisins. í dóminum er tekið fram að upplýst sé í málinu að í Bretlandi hafi verið settar strangari reglur um auglýsingar fyrir börn en þær kröfur sem felast í lágmarksreglum tilskipunarinnar mæla fyrir um. Er því talið að norsk stjómvöld séu bundin af ákvæði 2. mgr. 2 gr. tilskipunarinnar og geti ekki takmarkað útsendingar frá Bretlandi nema í þeim sérstöku tilvikum sem mælt er fyrir um í 22. gr. tilskipunarinnar og lýst er hér að framan. 37 Mál nr. 412/93 Société d’Importation Edouard Leclerc-Siplec v TFl Publicité SA and MS Publicité SA. [1995] ECR 1-179. 165

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.