Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Side 56

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Side 56
manns Alþingis í máli nr. 1147/1994, frá 12. júlí 1996, var fjallað um mál, þar sem ríkisstarfsmanni hefði verið sagt upp störfum vegna „samstarfsörðuleika“ „við yfirmenn“ og „ýmsa starfsmenn“. I álitinu kom fram, að almennt gæti slík tilvísun til samstarfsörðugleika, sem ástæða uppsagnar ríkisstarfsmanns, ekki verið fullnægjandi ein og sér. Kæmi þar einkum tvennt til. Annars vegar gætu samstarfsörðugleikar tekið til þess, þegar um væri að ræða skort á vilja til samstarfs, er gæti komið fram í því að hlutaðeigandi neitaði að hlýða lögmætum fyrirmælum eða sinna nauðsynlegu samstarfi. Væri þá um að ræða brot á starfsskyldum samkvæmt skýrum ákvæðum 2. mgr. 7. gr. laga nr. 38/1954. Hins vegar gætu samstarfsörðugleikar vísað til þess, að hlutaðeiganda skorti hæfni eða getu til samstarfs við aðra, einkum hliðsetta starfsmenn, án þess að hægt væri að heimfæra slíkt sem brot á starfsskyldum skv. 2. mgr. 7. gr. fyrrnefndra laga. Ef slík atvik væru fyrir hendi, gætu þau verið lögmætur grundvöllur uppsagnar skv. lögum nr. 38/1954, að gættum ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, enda styddist uppsögn við heimild í samningi eða lögum. I málinu þótti ekki verða annað séð en að þeir samstarfsörðugleikar, sem til- greindir hefðu verið sem ástæður uppsagnar starfsmannsins, hefðu verið meint óhlýðni starfsmannsins við lögleg boð yfirmanna. Umboðsmaður Alþingis benti á, að slíkar misfellur í starfi gætu ekki verið lögmæt ástæða uppsagnar, heldur væri skylt, eins og áður segir, að fylgja ákvæðum 7.-11. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur staifsmanna ríkisins, við meðferð máls þegar svo stæði á. Framangreint álit hefur fordæmisgildi um þá starfsmenn sveitarfélaga, sem bera réttindi og skyldur eftir lögum nr. 38/1954, samkvæmt samþykktum hlutað- eigandi sveitarfélags. Þá veitir álitið vísbendingu um, hvemig vænta megi að ákvæði 7.-11. gr. laganr. 72/1996, um réttindi og skyldur kennaraog skólastjóm- enda grunnskóla, verði skýrð, enda eru þau nánast samhljóða 7.-11. gr. laga nr. 38/1954. Aftur á móti leikur vafi á því, hvort 21. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, verði skýrð með sama hætti. Ástæðan er sú, að skylt er að fara með fleiri mál samkvæmt ákvæðum 1. málsl. 1. mgr. 44. gr., sbr. 21. gr. laga nr. 70/1996, en samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 7. gr. eldri laga. Þannig ber nú að fara með mál, eins og um brot á starfsskyldum sé að ræða, þegar starfsmaður „hefur ekki náð fullnægjandi árangri í starfi“. Ekki hefur enn reynt á það í framkvæmd við hvaða aðstæður skortur starfsmanns á hæfni eða getu til samstarfs við aðra starfsmenn fellur undir ákvæðið.14 14 í athugasemdum í greinargerð við 21. gr. frumvarps þess, er varð að lögum nr. 70/1996, kemur fram, að það verði að meta heildstætt í hverju tilfelli, hvenær árangur teljist ófullnægjandi, en túlka beri ákvæðið rúmt þannig að mörg tilvik geti komið til skoðunar í þessu sambandi. Þannig beri t.d. að taka mið af helstu markmiðum í rekstri stofnunar og verkefna hennar. Þá segir orðrétt: „ ... en gera verður þær kröfur til starfsmanna að þeir geti unnið saman að þeim markmiðum sem stofnun er ætlað að ná. Af þeim orsökum geta samstarfsörðugleikar haft verulegt vægi við mat á starfsárangri“. (372. mál á 120 löggjafarþingi, þskj. 650). Samkvæmt framansögðu virðist ljóst að skortur á getu starfsmanns til samstarfs við aðra starfsmenn getur fallið undir ákvæðið í ákveðnum tilvikum. 192

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.