Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Page 75
ÚR SKÝRSLU STJÓRNAR DÓMARAFÉLAGS ÍSLANDS STARFS-
ÁRIÐ 1995-1996
Tímaritinu hefur borist skýrsla stjórnar Dómarafélags íslands starfsárið
1995-1996 og eru hér birt helstu efnisatriði hennar.
1. Aðalfundur Dómarafélags Islands 1995
Aðalfundur Dómarafélags Islands fyrir árið 1995 var haldinn á Hótel Sögu í
Reykjavík fimmtudaginn 9. nóvember og hófst kl. 10:00.
Formaður félagsins Allan Vagn Magnússon héraðsdómari setti fundinn og
bauð fundarmenn velkomna. Hann fól Friðgeiri Bjömssyni dómstjóra fundar-
stjóm. Þorgeiri Inga Njálssyni héraðsdómara var falið að annast ritun fundar-
gerðar.
Gengið til venjulegra aðalfundarstarfa þar á meðal stjómarkjörs. Allan Vagn
Magnússon var endurkjörinn formaður félagsins og aðrir í stjóm Ólöf Péturs-
dóttir, Helgi I. Jónsson, Þorgeir Ingi Njálsson og Garðar Gíslason.
Stjómin skipti með sér verkum þannig að Ólöf er varformaður, Helgi ritari,
Þorgeir gjaldkeri og Garðar meðstjórnandi.
í varastjórn voru kjörin Freyr Ófeigsson og Hjördís Hákonardóttir.
Endurskoðandi var kjörinn Eggert Óskarsson.
2. Félagsmenn Dómarafélags Islands
Á starfsárinu létust Friðjón Skarphéðinsson fyrrverandi yfirborgarfógeti og
Torfi Hjartarson fyrrverandi tollstjóri. Jón L. Arnalds lét af starfi héraðsdómara
við Héraðsdóm Reykjavíkur á starfsárinu. Sigurður Tómas Magnússon var
skipaður héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur frá 1. október 1996.
3. Almennir félagsfundir
Þann 6. júní 1996 var haldinn almennur félagsfundur þar sem til umræðu vom
ýmis atriði varðandi drög að framvarpi til dómstólalaga sem réttarfarsnefnd
hefur til meðferðar.
Þann 14. desember 1995 var sameiginlegur jólahádegisverðarfundur Dóm-
arafélags íslands, Lögmannafélags Islands og Lögfræðingafélags Islands í
Víkingasal Hótels Loftleiða. Framsögumaður var Björn Bjamason mennta-
málaráðherra og fjallaði hann um notkun tölva og einkum þá kosti sem fylgja
því að nota internet í samskiptum manna.
Þann 6. mars 1996 flutti Michael Hone, sendiherra Breta á íslandi, hádegis-
erindi um efnið: Hvemig bregðast Bretar við fíkniefnavandanum.
Þann 20. apríl var haldið málþing í Viðey í samvinnu við Lögfræðingafélag
íslands og Lögmannafélag Islands undir heitinu: Staða lögfræðinga í þjóð-
félaginu í dag.
211