Tímarit lögfræðinga - 01.12.1996, Side 76
Þann 17. maí 1996 flutti Nils Erik Lie, lagdommer við Borgarting
Lagmannsret í Oslo hádegiserindi sem hann nefndi: Etterutdannelse af norske
dommere.
Þann 7. júní hélt félagið málþing á Hótel Valhöll, Þingvöllum í samvinnu við
Lögmannafélag Islands. Þar var fjallað um eftirfarandi efni:
a) Almennir dómstólar-sérdómstólar-úrskurðarnefndir.
b) Samskipti lögmanna og ijölmiðla.
c) Erumvarp til laga um lögmenn (kynning).
4. Endurmenntun dómara
Stjóm DI hefur að undanfömu hugað nokkuð að endur- eða eftirmenntun
félagsmanna. Hafa nokkur námskeið þegar verið haldin og fleiri eru í farvatn-
inu. Stendur vilji stjórnarinnar eindregið til þess að efla þennan þátt í starfsemi
félagsins enn frekar og koma honum í fastar skorður. Við þá vinnu sem fram-
undan er á þessum vettvangi kemur mjög til álita að hafa hliðsjón af því á hvern
hátt norskir dómarar haga sinni endurmenntun en fullyrða má að einkar vel sé
að henni staðið. Endurmenntun norskra dómara er í höndum sérstaks endur-
menntunarráðs en það er skipað fimm dómurum og tveimur fulltrúum dóms-
málaráðuneytis. Kom formaður ráðsins Nils Erik Lie, lögdómari við Borgar-
tings lagmannsrett, til Islands fyrr á þessu ári og flutti erindi á hádegisverðar-
fundi DÍ um starfsemi þess. Kom þar meðal annars fram að ráðið skipuleggur
umfangsmikið námskeiðahald en hefur auk þess með námsleyfi dómara að
gera. Þá sér það um styrkveitingar til dómara vegna stuttra náms- eða kynnis-
ferða og ber kostnað af þátttöku norskra dómara í SEND, Evrópusambandi
dómara og Alþjóðasambandi dómara. A ári hverju eru haldin 10-12 námskeið
á vegum ráðsins og er skipulagning og vinna við þau nær alfarið í höndum
dómaranna sjálfra. Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari sat eitt slíkt námskeið á
þessu ári og þykir tilhlýðilegt að gera hér örstutta grein fyrir því. Námskeið það
sem hér um ræðir, startkurs I for nyutnevnte dommere, er haldið einu sinni á ári
hverju og er það eingöngu ætlað nýskipuðum dómurum á 1. og 2. dómstigi
(héraðs- og lögdómurum) Námskeiðið sóttu að þessu sinni 42 dómarar og stóð
það í fimm daga. Fyrsta daginn var fjallað ítarlega um dómarastarfið og þær
skyldur sem á dómaranum hvfla, jafnt innan starfs sem utan. Má í þessu
sambandi nefna umfjöllun um almenn hæfisskilyrði, framkomu og framgöngu
dómara í dómsal, hlutverk dómarans við sáttaumleitanir, skyldur dómara við
sakborning, aðila einkamáls og vitni, heimildir dómara til að gegna öðrum
störfum samhliða dómarastarfinu, þátttöku dómara í félagsstarfi og samskipti
dómstóla og fjölmiðla. A öðrum og þriðja degi námskeiðsins var hugað að
málsmeðferðarreglum. Var sú umfjöllun bundin við skýringu á réttarreglum
sem gilda um aðalmeðferð í einkamálum og opinberum málum. I þessum þætti
námskeiðsins voru þinghöld sett á svið (rollespille) og raunhæf verkefni lögð
fyrir þátttakendur. I hverju verkefni var einum þátttakenda falið að gegna starfi
dómara, en öðrum skipað í sæti málflytjenda. Fengu málflytjendur hverju sinni
212