Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Side 9

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Side 9
\ kölluðum einokunarhagnaði. Þessi rök eiga einnig við þegar eitt fyrirtæki hefur yfirburðastöðu á markaðinum. Afleiðingin verður því hærra vöruverð og lakari afkoma neytenda. Niðurstaðan af þessum samanburði er því augljóslega sú að frjáls samkeppni sé af hinu góða en einokun af hinu illa. Þótt allir þeir sem að samkeppnismálum koma séu í meginatriðum sammála þessum sjónarmiðum þá hafa ýmsar athugasemdir verið gerðar við þessa framsetningu.4 I fyrsta lagi byggir þetta á kenningum sem eiga sér tæpast stoð í veruleikanum. Aðstæður fyrir fullkomna samkeppni eru t.a.m. sjaldnast til staðar. I öðru lagi er á ýmsum sviðum þörf á stærðarhagkvæmni. I þriðja lagi þá segja menn að fullkomin samkeppni leiði af sér einokun vegna þess að það fyrirtæki sem stendur sig best í samkeppninni muni fyrr eða síðar ná yfináðum á markaðinum. Þrátt fyrir þessar efasemdir hafa vestrænar þjóðir flestar talið að samkeppnisreglur væru af hinu góða og því tekið þær upp í löggjöf sína. 2.2 Saga samkeppnisreglna Samkeppnisreglur eiga upphaf sitt að rekja til Bandaríkjanna en í lok síðustu aldar höfðu auðmenn, með John Rockefeller í broddi fylkingar, náð einokunar- aðstöðu m.a. í járnbrautarflutningum. Einokunaraðstaðan var byggð upp með þeim hætti að auðmennirnir mynduðu sjóði (e. trust) sem héldu um eignarráðin í járnbrautarfyrirtækjunum.5 Þessi aðstaða var síðan notuð til að láta viðskipta- vini greiða flutningsgjald í samræmi við endursöluverð viðskiptavinarins, alveg óháð raunverulegum kostnaði við flutninginn. Til að verjast þessu voru sett lög, svokölluð Sherman lög. í lögunum, 1. og 2. gr., var lagt bann við öllu samráði um verð og einokun bönnuð. Síðar hafa verið sett lög í Bandaríkjunum þessum reglum til fyllingar. I Evrópu komu samkeppnisvandamál síðar til sögunnar en þegar að því kom var að sjálfsögðu litið til reynslu Bandaríkjamanna í þessum efnum. Þegar efnahagssamvinna hófst í Evrópu voru þeir sem komu að þeirri vinnu sammála um að samkeppnisreglur yrðu að vera einn af hornsteinum slíkrar samvinnu. Niðurstaðan varð síðan sú að settar voru fram tvær meginreglur, þ.e. 85. og 86. gr. Rs., sem eru keimlíkar 1. og 2. gr. Sherman laganna. 2.3 Flokkun samkeppnisreglna Samkeppnisreglur eru byggðar á tveimur grundvallaraðferðum. Annars vegar á reglum sem banna allar samkeppnishömlur og hins vegar á reglum sem kveða á um það hlutverk samkeppnisyfirvalda að grípa inn í samkeppnishömlur í hverju einstöku tilfelli. Bannreglur eru lagðar til grundvallar í rétti ESB en ef íslensku samkeppnislögin eru skoðuð þá sést að lögin fara bil beggja og banna sumt en láta samkeppnisyfirvöldum eftir að grípa inn í annað. 4 Hér hefur háskólinn í Chicago verið fremstur í flokki. 5 Það er af þessari ástæðu sem samkeppnislög (e. competition-law) eru jafnan kölluð „anti- trust“ lög í Bandaríkjunum. 65

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.