Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Page 23
gjaldi. í máli Hilti gegn framkvæmdastjórn ESB53 voru málavextir þeir að
fyrirtækið átti einkaleyfi á skothylkjum í naglabyssur. Þegar aðilar óskuðu eftir
leyfi til að framleiða samkvæmt einkaleyfinu setti fyrirtækið upp óeðlilega háa
þóknun og frestaði leyfisveitingu eins lengi og mögulegt var. Undirréttur
Evrópudómstólsins sagði að sanngjarn söluaðili hefði átt að gera sér grein fyrir
því að krafa um hátt endurgjald fæli í sér synjun á veitingu nytjaleyfa og að
þessi hegðun fæli án vafa í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
6.2.3 Önnur dæmi um sölusynjanir
I réttarframkvæmd stofnana ESB hefur reynt á sölusynjun með ýmsum hætti
eins og sést á eftirfarandi dómum.
í máli Hugin gegn framkvæmdastjórn ESB54 hélt framkvæmdastjórnin því
fram að fyrirtækið hefði misnotað stöðu sína með því að neita að selja viðskipta-
mönnum utan dreifingarsvæðis fyrirtækisins varahluti í vélar sem fyrirtækið
framleiddi. Þetta hindraði notendur vélanna í því að ákveða upp á eigin spýtur
hvar ætti að leita þjónustu og viðgerða á vélunum. Fyrirtækið skaut málinu til
Evrópudómstólsins sem ógilti ákvörðun framkvæmdastjómarinnar á þeim for-
sendum að aðgerðir fyrirtækisins hefðu ekki áhrif á viðskipti milli aðildarríkja.
I máli Radio Telefís Eireann gegn framkvæmdastjórn ESB55 voru mála-
vextir þeir að fyrirtækið neitaði að dreifa upplýsingum um sjónvarpsefni sitt
næstu viku til fyrirtækis sá um útgáfu á sjónvarpsblaði. Oumdeilt var að fyrir-
tækið átti höfundarétt á framsetningu á dagskrá sinni. Undirréttur Evrópudóm-
stólsins sagði um þetta að synjun fyrirtækisins væri ekki nauðsynleg til þess að
tryggja undirstöðuvirkni útgáfuréttarins og því ósamrýmanleg gmndvallar-
sjónarmiðum um óhindraða vöruflutninga og frjálsa samkeppni.
í máli IBM gegn framkvæmdastjórn ESB56 var fjallað um þann hátt IBM
að selja tiltekinn hugbúnað eingöngu til þeirra notenda sem notuðu ákveðinn
búnað sem framleiddur var af IBM (e. memory bundling). Sátt var gerð í
málinu eftir að IBM lofaði að víkja frá þessari framkvæmd sem bendir til þess
að aðilar hafi verið sammála um að þessi háttsemi bryti gegn 86. gr. Rs.57
6.2.4 Vöruskortur
Það er raunhæft álitaefni fyrir markaðsráðandi fyrirtæki hvemig það eigi að
bregðast við þegar draga verður úr sölu til viðskiptamanna vegna vöruskorts. Á
53 Hilti gegn framkvæmdastjórn ESB (1992) 2 CMLR 16.
54 Hugin gegn framkvæmdastjóm ESB (1979) 3 CMLR 345; ECR 1869.
55 Radio Telefis Eireann gegn framkvæmdastjórn ESB (1991) ECR II 485; (1991) 4 CMLR
586.
56 IBM gegn framkvæmdastjórn ESB (1981) ECR 2639; 3 CMLR 635. GVL (1981) 1 CMLR
221.
57 Sjá Goyder, D.G, EEC Competition Law, (1992) 2. útgáfa, Oxford.
79