Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Blaðsíða 36
kvæmdastjórn ESB.109 Fyrirtækið (BT) bannaði starfsemi aðila sem önnuðust
framsendingu á skilaboðum (e. message-forwarding agencies) í Bretlandi og
var bannið byggt á ákvæðum laga um einkarétt BT á fjarskiptum í Bretlandi.
Framkvæmdastjórnin taldi að BT sem væri einokunarfyrirtæki á tilteknu sviði
yrði að beita þessum einkarétti sínum til samræmis við samkeppnisreglur
ESB.110
6.6.4 Samtök um eignarrétt að hugverkaréttindum
I nokkrum málum hafa komið upp álitaefni varðandi fyrirtæki, sem starfa sem
samtök eigenda hugverkaréttinda. Þessi samtök eru að jafnaði með einkarétt á
viðkomandi sviði og háttsemi þeirra getur brotið gegn 86. gr. Rs. Mál BRT
gegn SABAM* * 111 snérist um það hvort regla er bannaði eiganda hugverkaréttar
er vildi standa utan slíkra samtaka að selja réttindi sín í allt að fimm ár frá því
að hann hætti í félaginu. Niðurstaðan af þessu og öðrum sambærilegum málum
varð sú almenna regla að slík samtök megi setja þær skyldur á félagsmenn sína
sem nauðsynlegar eru til að ná markmiðum samtakanna, að öðrum kosti
hindruðu þær frelsi félagsmanna til að notfæra sér hugverkaréttindi sín.112
6.6.5 Abyrgðaryfírlýsing
I máli Tetra Pak II113 setti fyrirtækið fram þá kröfu að ábyrgðaryfirlýsing
með vörunni gilti því aðeins að viðskiptamaður samþykkti öll ákvæði samnings
aðila en ekki einungis þau er vörðuðu notkun viðkomandi vöru. Þetta var talið
brot á 86. gr. Rs.
6.7 Sameining félaga
I 86. gr. Rs. er ekki að finna neitt bann við því að markaðsráðandi fyrirtæki
sameinist öðru fyrirtæki. Það var því óljóst á fyrstu árum ESB hvort samruni
væri bannaður eða ekki. Ur þessari réttaróvissu var bætt með dómi í máli
Continental Can gegn framkvæmdastjórn ESB114 þar sem Evrópudómstóll-
inn staðfesti að 86. gr. Rs. gæti einnig náð til samruna fyrirtækja. Samkvæmt
þeirri niðurstöðu átti reglan aðeins við ef annað hvort fyrirtækjanna var
markaðsráðandi fyrir samrunann. Reglan átti hins vegar ekki við ef tvö eða
fleiri fyrirtæki sem ekki voru með markaðsyfirráð sameinuðust í eitt fyrirtæki
sem hafði markaðsyfirráð eftir sameininguna. Ur þessu var síðan bætt með
109 British Telecommunications gegn framkvæmdastjórn ESB [1983] 1 CMLR 457.
110 Ibid §§ 33.
111 BRT v. SABAM [1974] ECR 313; [1974] 2 CMLR 238.
112 Bellamy & Child, Common Market Law of Competition, 1993, Sweet & Maxwell,
London, p. 634.
113 Tetra Pak II [1992] 4 CMLR 551.
114 Continental Can gegn framkvæmdastjórn ESB [1973] ECR 215; [1973] CMLR 199.
92