Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Page 44

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1997, Page 44
um jafnrétti kynjanna og er þá sérstaklega hafður í huga alþjóðasamningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum sem Island hefur staðfest. I þessu sambandi er einkum til athugunar að samningurinn kveður með afdráttarlausum hætti á um jákvæðar skyldur rfkja til að framfylgja stefnu sem miðar að afnámi mismununar gagnvart konum með öllum tiltækum ráðum þ.m.t. með setningu viðeigandi löggjafar.14 Með jákvæðum skyldum á grundvelli mannréttinda- ákvæða er almennt átt við þá aðstöðu að af mannréttindaákvæðunum rísi skylda fyrir ríkisvaldið, umfram það sem handhöfum þess sjálfum þóknast, til þess að grípa til viðeigandi aðgerða í einhverju af eftirtöldum tilvikum: a) í því skyni að borgararnir geti raunverulega notið mannréttinda b) til þess að tryggja að mannréttindi einstaklinga séu ekki brotin af hálfu annarra einstaklinga og/eða c) til þess að tryggja að einkaaðilar grípi til aðgerða sem tryggja að aðrir einkaaðilar geti raunverulega notið mannréttinda.15 Þótt dómur Hæstaréttar frá 20. febrúar 1997 í málinu Guðrún Eiríksdóttir gegn íslenska ríkinu varði jafnrétti kynjanna vísar hann einnig í hina almennu jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Má ætla að það feli ekki annað í sér en að í því máli hafi bæði sérreglan um jafnrétti kynjanna og hin almenna jafnræðisregla stjórnarskrárinnar falið hið sama í sér. Af dóminum verða engar ályktanir dregnar um mörkin á milli reglnanna, hann hvorki slær því föstu að á reglunum sé munur né að svo sé ekki. Það er í raun efni í aðra tímaritsgrein að velta fyrir sér þeirri spurningu og spurningunni um jákvæðar skyldur ríkisins á grundvelli mannréttindaákvæða stjómarskrárinnar. I þessari grein verður ekki fjallað frekar um sérregluna um jafnrétti kynjanna, heldur einungis um hina almennu jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Þegar rætt er um jafnræðisregluna hér á eftir er átt við hina almennu jafnræðisreglu ein- göngu. Það sem hér á eftir verður sagt um hina almennu jafnræðisreglu stjórnar- skrárinnar kann hins vegar að eiga jafnt við um sérregluna um jafnrétti kynjanna en til einföldunar verður ekki tekin afstaða til þess. Þá verður hér ekki frekar fjallað um spurninguna um það hvort jákvæðar skyldur verði á grundvelli 65. gr. stjórnarskrárinnar lagðar á herðar ríkisvaldinu heldur verður umfjöllunin takmörkuð við það að skoða hvort í hinni almennu jafnræðisreglu stjórnar- skrárinnar verður talin felast efnisregla sem takmarkar meðferð ríkisvaldsins þannig að handhöfum ríkisvalds sé óheimilt að mismuna borgurunum sem fæli í sér samsvarandi rétt fyrir borgarana til þess að þurfa ekki að sæta mismunun fyrir hendi þeirra. 14 Samningur um afnám allrar mismununar gegnvart konum er birtur í Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar: Reykjavík, 1992, bls. 99-111. Margar þeirra umsagna sem stjórnarskrárnefnd Alþingis bárust og taldar eru í neðanmálsgrein 10 bentu á þörf fyrir að kveða á um jákvæðar skyldur ríkisins til að grípa til aðgerða í því skyni að útrýma kynjamismunun. 15 Sjá t.d. D. J. Harris, M O'Boyle og C. Warbrick: Law of the European Convention on Human Rights. Butterworths, London, 1995, bls. 284. 100

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.