Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Side 13

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Side 13
gegni vissulega mikilvægu hlutverki við að vernda öryggi borgaranna og við forvamir má samt ekki gera óraunhæfar kröfur til þess. Réttarkerfið er þess ekki umkomið eitt og sér að uppræta vandann sem hlýst af afbrotum heldur verður fleira að koma til. Það er að mörgu leyti kaldhæðnislegt í þessu samhengi að í Bandaríkjunum virðist almenningur og stjórnvöld ætíð reiðubúin að verja stórfé í fleiri og stærri fangelsi en eru mun tregari þegar verja á sambærilegum upphæðum í margvísleg samfélagsúrræði sem sumir fræðimenn telja að gætu forðað mörgum ungmennum frá því að lenda á braut glæpa (Reiman, 1998). Þó það sé vissulega erfitt að meta kostnað af afbrotum nákvæmlega er eigi að síður nauðsynlegt fyrir stjómvöld að leita eftir jafnvægi milli kostnaðar af afbrotum og kostnaðar af réttarvörslukerfinu. Fangavist eins fanga á íslandi kostar t.d. skattborgarana um þrjár milljónir króna á ári sem er hærri upphæð en full skólagjöld með uppihaldi við Harvardháskóla í Bandaríkjunum! Og löng fangavist bætir engan heldur er hreinlega mannskemmandi í mörgum tilfellum (Johnson, 1996) og í raun gæti það því orðið dýrt fyrir samfélagið að sleppa fjölda slíkra einstaklinga aftur út í samfélagið eftir langa vist bak við lás og slá. Stjórnmálamenn sem vilja halda fram sjónarmiðum af þessu tagi óttast hins vegar að kjósendur myndu yfirgefa þá fyrir að sýna afbrotamönnum óþarfa umhyggju. En stjómvöld verða að hafa sýn til lengri tíma en til næstu kosninga og sú ábyrgð hvílir á okkur öllum að móta þá sýn. Hér á landi em dómarar ekki kosnir beinni kosningu eins og þekkist í Bandaríkjunum og þeir þurfa því ekki eins að reiða sig á síbreytilega vinda almenningsálitsins heldur geta og eiga að móta sér refsistefnu byggða á faglegu mati og rannsóknum. 5. LOKAORÐ Mat höfundar er því að við verðum að líta til fleiri þátta í glímunni við afbrot en að einblína eingöngu á nauðvöm samfélagsins; þungar refsingar. Það væri t.d. hollt að spyrja sig hvers vegna við öll fremjum ekki afbrot? Er ástæðan eingöngu refsivöndur samfélagsins? Mörg okkar myndu vafalítið svara því að fleira komi til en refsingar einvörðungu og að virðing fyrir okkur sjálfum og okkar nánustu og réttur samborgaranna sé þar jafnvel þýðingarmeiri. Rann- sóknir, bæði innlendar og erlendar, hafa jafnframt sýnt svo ekki verður um villst, að séu tengsl einstaklingsins við hinar ýmsu stofnanir samfélagsins eins og fjölskyldu, skóla, vinahópinn og annað félagsstarf jákvæð og sterk dregur það jafnframt úr líkunum á atferli afbrota (Cullen, 1994; Hirschi, 1969; Shover, 1996 og Þórlindsson og Bemburg, 1996). Grundvallarverkefni samfélagsins ætti því að vera að efla sem mest tengsl ungmenna við hinar ýmsu stofnanir þess og draga þar með um leið úr líkunum á fráviks- og afbrotahegðan. Réttarvörslukerfið á síðan að gegna því mikilvæga hlutverki að vera áreiðanlegt í uppljóstrun brota, vera skjótvirkt í málsmeðferð og á umfram allt að útdeila refsingum af yfirvegun og í samræmi við eðli afbrota. Almennt á hins vegar sú skylda að hvíla á dómstólum og aðilum 97

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.