Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 37

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 37
legur eða við Evrópu.66 Auk þess getur það orðið mikilvægt t.d. fyrir ferða- þjónustuna í Noregi að bjóða viðskiptavinum að greiða fyrir veitta þjónustu í evró. Minni gengisáhætta (milli evró og norsku krónunnar (NOK)) og sparn- aður vegna kostnaðar sem annars hlýst af yfirfærslum (gengismunur, þjónustu- gjöld við að skipta gjaldeyri) bæði fyrir atvinnuveginn í heild sinni og hina erlendu viðskiptavini eru atriði sem styðja að svo verði gert. Einnig getur það verið raunhæft að einstaklingar vilji geta greitt beint í evró, m.a. þegar notuð eru norsk greiðslukort erlendis. Það er ekki útilokað að norsk atvinnufyrirtæki vilji að hluta til eða öllu leyti nota evró í innlendum viðskiptum. Meginreglan um samningsfrelsi leiðir til þess að unnt er að nota erlenda mynt undir slíkum kringumstæðum, en sú stað- reynd að stofnað er til evrós sem ráðandi gjaldmiðils hjá nágrannaríkjunum, ásamt góðu uppgjörskerfi fyrir evró mun geta leitt til þess að það verði erfitt að láta norsku krónuna (NOK) vera samkeppnisfæra í viðskiptum innanlands. Önnur spurning er um hvaða gjaldmiðill eigi að vera til viðmiðunar í árs- reikningum norskra fyrirtækja sem stunda umsvifamikil viðskipti í útlöndum. Norsk fyrirtæki greiða skatta í Noregi og ber því að miða við norskar krónur (NOK) í ársreikningum sínum. í ýmsum tilvikum mun þó hinn virki gjald- miðill, þ.e. sá gjaldmiðill sem fyrirtækið notar (tengist) aðallega, vera annar gjaldmiðill en hin norska króna (NOK). í slíkum tilvikum er heimilt samkvæmt ákvæðum í lögum um ársreikninga að ákveða annað t.d. með reglugerð. Ef hinn virki gjaldmiðill fyrir norskt fyrirtæki er evró þá er því heimilt samkvæmt gildandi rétti að ákveða (með reglugerð) að evró geti verið sá gjaldmiðill sem miða eigi við í ársreikningi.67 Þegar notkun evrós er leyfð í sambandi við gerð ársreikninga verður það að vera grundvallarsjónarmið að slík breyting sé að öllu leyti hlutlaus séð frá sjónarhóli skattaréttarins. Samstæðureikningar hafa fyrst og fremst upplýsingahlutverki að gegna bæði gagnvart almenningi og gagnvart hlutabréfamarkaðinum. Unnt er að hugsa sér að í löggjöf séu veittar takmarkaðar heimildir til þess að gera sam- stæðureikninga í evró. Önnur lausn gæti falist í því að leyft væri að færa daglegt bókhald í evró en ársreikninga yrði áfram hægt að gera í norskum krónum (NOK). Norsk hlutafélög kunna að óska eftir því að hlutabréf þeirra verði endur- viðmiðuð eða eftirleiðis gefin út í evrói. Hlutafélagalöggjöfin byggir hins vegar á því að hlutafé í norskum félögum á að vera í norskum krónum (NOK). Ef veita á norskum félögum leyfi til þess að ákveða að hlutafé skuli vera í evrói, 66 Fyrir sum norsk stórfyrirtæki, eins og t.d. Norsk Hydro og Statoil, gæti hér verið um raunverulegan valkost að ræða. Það kann þó einnig að vera að velta einstakra fyrirtækja í evrói sé það mikil að eðlilegt sé að þau noti þennan gjaldmiðil, án þess að hlutaðeigandi fyrirtæki hafi áður haft það mikla veltu í gjaldmiðli eins af þátttökuríkjunum að það gæti réttíætt notkun þess gjaldmiðils í viðskiptunum. 67 í NOU 1995:30 um frumvarp til nýrra laga um ársreikninga eru lagðar til frekari breytingar á þessum ákvæðum, sbr. bls. 201 og bls. 256. 121
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.