Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 38

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 38
hugsanlega án þess að það þurfi nauðsynlega að gefa út slík hlutabréf, þá verður það ekki gert án þess að breyta lögum. Hið sama á við ef leyfa á að hlutafélög megi ákveða hluti án þess að nafnverð sé tilgreint.68 Ekki verður séð að breyt- inga sé þörf á lögum eða reglum í tengslum við lánsfé félaga í evrói, enda er norskum félögum heimilt að taka lán í þeim gjaldmiðli sem félagið sjálft telur nauðsynlegt.69 í þessu sambandi vakna einnig spurningar um hvort og að hve miklu leyti eigi að hefja opinbera skráningu verðbréfa í evrói í Oslóar-kauphöllinni. Enn er ekki tæknilega unnt að nota aðra gjaldmiðla en norskar krónur (NOK) í viðskiptakerfi kauphallarinnar í Osló. Ef þær aðstæður myndu skapast að það væri unnt að framkvæma kauphallarviðskipti í fleiri gjaldmiðlum þá væri það nærtækt að þar yrði boðið upp á skráningu og viðskipti í evrói. Þess má þó geta að það kann að vera óljóst hvort gildandi löggjöf um opinbera skráningu verð- bréfa leyfi að taka til opinberrar skráningar norsk verðbréf í erlendum gjald- miðli. Norsk verðbréf eru skráð í Verðbréfamiðstöðinni (n.VPS). Það eru væntan- lega engin tæknileg vandamál því til fyrirstöðu að norsk verðbréf í evrói séu tekin þar til skráningar. Auk þess er varla nauðsynlegt að gera neinar breytingar á gildandi rétti til þess að það sé hægt að gera. Akvörðun norskra stjórnvalda um þá gengisskráningarpólitík sem ber að fylgja varðandi norsku krónuna (NOK) og samband hennar við evró mun geta haft sérstaklega mikla þýðingu varðandi mat á því hvort heimila eigi frjálsa notkun evrós. Gengisskráningin mun í vaxandi mæli taka mið af því að tryggja gengisjafnvægi milli norsku krónunnar (NOK) og evrós, og verður því fátt því til fyrirstöðu að leyfa frjálsa notkun á evrói í Noregi. En ef gengisskráningin verður þannig að gengi norsku krónunnar (NOK) gagnvart evrói geti verið mjög mismunandi mun þörfin fyrir það að nota evró aukast, einkum fyrir þá sem starfa að inn- og útflutningi. Þegar meta á þetta getur því verið eðlilegt að taka tillit til þess að vissir hlutar í norsku viðskiptalífi kunna að hafa lögmæta þörf fyrir að geta stundað viðskipti í evrói í meira mæli heldur en þeim kann að vera heimilt á grundvelli meginreglunnar um samningsfrelsi. Telja verður að vart séu lögfræðileg, tæknileg eða stjórnsýsluleg vandkvæði á því að leyfa frjálsa notkun á evrói í Noregi, en verði það gert þá kann að vera nauðsynlegt að breyta gildandi lögum og reglugerðum til þess að greiða fyrir því. Verði viðbrögðin þannig að stutt verði við frjálsa notkun evrós má líta svo á að þar með væri stuðlað að því að aðlaga norskt þjóðlíf að þeirri þróun sem á sér stað innan Evrópusambandsins. Ljóst er að mörgum finnst ekki eðlilegt að Noregur aðlagi sig meira að Evrópusambandinu en svo sem honum er skylt að gera samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum. Spurningin um það hvort leyfa 68 Sjá neðanmálsgrein nr. 46. 69 Norsk gjaldeyrislöggjöf byggir á meginreglum um frjálsa fjármagnsflutninga eins og hún er framkvæmd samkvæmt ákvæðum í EES-samningnum og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum sem Noregur er bundinn af, einkum OECD-skilyrðum um frjálsa fjármagnsflutninga. 122
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.