Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 51

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 51
áhrif EB-réttar. Viðurkenning reglunnar fæli með öðrum orðum ekki í sér yfirfærslu eiginlegs löggjafarvalds til stofnana EES enda þótt með því væri gengið nokkuð langt í þá átt að veita þjóðréttarreglum áhrif að landsrétti. Reglan ætti því vel að geta rúmast innan þeirra takmarkana sem EES-samn- ingnum eru sett. Samkvæmt þessu er tæpast hægt að útiloka það að dómurinn í Francoví'c/í-málinu skipti máli í skilningi 6. gr. samningsins. 2.3 Ákvæði efnislega samhljóða 6. gr. tekur aðeins til ákvæða EES-samningsins „að því tilskildu að þau séu efnislega samhljóða“ réttarreglum EB-réttar. Ætla verður að orðalagið sé til- komið vegna þeirrar dómaframkvæmdar Evrópudómstólsins að skýra samn- ingsákvæði sem eru samhljóða ákvæðum Rómarsáttmálans með hliðsjón af tilgangi og markmiðum viðkomandi samnings. Ekki er því sjálfgefið að sam- hljóða ákvæði verði skýrð með sama hætti. Þannig kann það t.d. að hafa áhrif á skýringu samningsákvæðis hvort ætlun samningsaðila að fjölþjóðlegum við- skiptasamningi var að koma á tollabandalagi eða einungis fríverslun með vörur.33 Það er álitamál hvort skilyrðið um samhljóða ákvæði standi því í vegi að dómar Evrópudómstólsins sem fela í sér óskráðar meginreglur falli undir ákvæði 6. gr. EES-samningsins.34 Meginreglur kunna að sjálfsögðu að hafa haft áhrif á túlkun einstakra ákvæða EB-réttar og má gera ráð fyrir að þannig eigi þær greiða leið inn í EES-rétt í gegnum 6. gr.35 Otvírætt orðalag ákvæðisins 33 Sjá sem dæmi um þetta dóm EFTA-dómstólsins 3. desember 1997 í máli E-2/97 Mag Instru- ment Inc. gegn California Trading Company Norway, Ulsteen (enn ekki birt í skýrslum dóm- stólsins). í málinu komst EFTA-dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að 1. mgr. 7. gr. tilskipunar ráðsins 89/104/EBE verði að EES-rétti („in the EEA context“) túlkuð á þann veg að það sé undir einstökum EFTA-ríkjum komið hvort þau hagi löggjöf sinni með þeim hætti að þar sé í gildi regla um alþjóð- lega tæmingu vörumerkjaréttar þegar í hlut eiga vörur upprunnar utan Evrópska efnahagssvæðisins. 34 Spurningin hefur t.d. vaknað í sambandi við gildi óskráðra meginreglna EB-réttar um mann- réttindi innan EES-réttar. Um þetta segir Davíð Þór: „Margar grundvallarreglur Evrópuréttarins eru óskráðar og verða fyrst og ffemst leiddar af dómum Evrópudómstólsins. Gera verður ráð fyrir, að í 6. gr. [EES-samningsins] felist að aðildarríkin skuldbindi sig ... til að hafa þær grunnreglur að leiðarljósi sem felast í dómafordæmum Evrópudómstólsins, að svo miklu leyti sem þær hafa þýðingu á þeim sviðum sem samningurinn tekur til, þótt óskráðar séu að öðru leyti“. Sjá Davíð Þór Björgvinsson: „Evrópuréttur og vemd grundvallarréttinda". Afmælisrit - Gaukur Jörundsson sex- tugur 24. september 1994, Reykjavík 1994, bls. 189. Sömu sjónarmiða gætir að nokkru hjá Ulf Bernitz: „Europakonventionens införlivande med svensk ratt - en halvmesyr". (1994-1995) Juridisk Tidsskrift, 2. hefti, bls. 261-263. 35 Rétt er að taka það fram að óháð því hvort óskráðar meginreglur EB-réttarins falli undir 6. gr. EES-samningsins munu þær ávallt hafa þýðingu við túlkun EES-réttar vegna sjónarmiða um einsleitni. Hér má nefna sem dæmi dóm EFTA-dómstólsins frá 20. júní 1995 í máli E-l/95 Ulf Samuelsson gegn Svíþjóð. í málinu reyndi á skýringu tilskipunar ráðsins frá 20. október 1980 um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um vemd til handa launþegum verði vinnuveitandi gjaldþrota (80/987/EBE). í 10. gr. a tilskipunarinnar er mælt fyrir um rétt aðildarríkja til þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir misnotkun. Um skýringu á þessu ákvæði sagði 135
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.