Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Page 36
um fyrirvara, telst hann gallaður þegar við eiga þau tilvik sem um getur í a og
b-liðum 1. mgr. ákvæðisins. I a-lið er fjallað um það tilvik þegar ástand
söluhlutar er verra en neytandi hafði ástæðu til að ætla miðað við kaupverð og
atvik að öðru leyti og í b-lið þegar fyrir liggja atvik sem lýst er í b eða c-liðum
1. mgr. 16. gr. Samkvæmt b-lið 1. mgr. 16. gr. telst söluhlutur gallaður ef
seljandi hefur vanrækt að gefa upplýsingar um söluhlutinn og samkvæmt c-lið
er söluhlutur gallaður ef hann svarar ekki til þeirra upplýsinga sem um hann
hafa verið gefnar.43 1 28. gr. fkpl. segir að þótt fasteignakaup séu gerð með þeim
skilmálum að eign sé seld „í því ástandi sem hún er og kaupandi hefur kynnt
sér“ eða með sambærilegum almennum fyrii-vara telst hún samt gölluð ef
ákvæði 26. gr. (skortur á upplýsingum) og 27. gr. (rangar upplýsingar) eiga við.
Fasteign telst einnig gölluð þótt hún sé seld með framangreindum skilmálum ef
ástand hennar er til muna lakara en kaupandi hafði ástæðu til að ætla miðað við
kaupverð eða atvik að öðru leyti.44
4.1.2 Söluhlutur svarar ekki til þeirra upplýsinga sem gefnar hafa verið
í a-lið 1. mgr. 19. gr. kpl. er um það fjallað þegar hlutur svarar ekki til þeirra
upplýsinga sem seljandinn hefur gefið. Þar kemur fram að þótt söluhlutur sé
seldur „í því ástandi sem hann er“ eða með öðrum áþekkum almennum fyrir-
vara telst hann gallaður þegar hann svarar ekki til þeirra upplýsinga sem
seljandi hefur gefið um hann, eiginleika hans eða not og ætla má að þessi atriði
hafi haft áhrif á það að kaup gerðust. Akvæðið er í flestu í samræmi við 1. mgr.
18. gr. kpl. og er því ætlað að hafa jafn víðtækt umfang og það ákvæði.45
Samkvæmt b-lið 1. mgr. 17. gr. nkpl. gildir sú regla að þótt söluhlutur sé
seldur „í því ástandi sem hann er“ eða með öðrum áþekkum almennum fyrir-
vara telst hann gallaður þegar fyrir liggja atvik sem lýst er í c-lið 1. mgr. 16. gr.
sömu laga. Samkvæmt því ákvæði telst söluhlutur gallaður ef hann svarar ekki
til þeirra upplýsinga sem seljandi hefur við markaðssetningu eða á annan hátt
gefið um hlutinn, eiginleika hans eða notkun og ætla má að hafi haft áhrif á
kaupin. Samkvæmt 27. gr. fkpl. telst fasteign gölluð ef hún er ekki í samræmi
við upplýsingar sem seljandi eða þeir sem koma fram fyrir hans hönd hafa veitt
kaupanda, þótt kaupin hafi verið gerð með þeim skilmála að eignin sé seld „í
því ástandi sem hún er og kaupandi hefur kynnt sér“.
4.1.3 Seljandi hefur vanrækt að gefa upplýsingar
Samkvæml b-lið 1. mgr. 19. gr. kpl. er um galla að ræða ef seljandinn hefur
við kaupin vanrækt að gefa upplýsingar urn atriði sem verulegu máli skipta
varðandi söluhlut eða not hans og seljandi hlaut að þekkja til og kaupandi mátti
43 Alþt. 2002-2003, A-deild, bls. 3806.
44 Um skýringu þessa ákvæðis fkpl. sjá Alþt. 2001-2002, A-deild, bls. 1468-1469.
45 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 839.
220