Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 76
á umhverfisáhrifum þar sem það á við. Hafi sveitarstjórn því ákveðið í skipu-
lagsáætlun að tiltekið landsvæði skuli tekið undir skógrækt getur sveitarstjórn
ekki synjað að gefa út framkvæmdaleyfi til landeiganda til að hefja skógrækt sé
framkvæmdin í samræmi við úrskurð um mat á umhverfisáhrifum.
10. MÁ SVEITARSTJÓRN BINDA FRAMKVÆMDALEYFI
SKILYRÐUM?
Efni stjórnvaldsákvörðunar er oft greint annars vegar í aðalefni, t.d. leyfi, og
hins vegar aukaefni, t.d. skilyrði. I stjórnsýslurétti er yfirleitt á því byggt að
lögbundnar stjórnvaldsákvarðanir verði almennt ekki bundnar skilyrðum nema
að skilyrðið byggist á sérstakri lagaheimild.43 Eins og vikið var að í kafla 9.5 er
ákvörðun sveitarstjómar lögbundin um það hvaða skilyrði þarf að uppfylla svo
að veita skuli slíkt leyfi. Afþessum sökum getur sveitarstjórn ekki bundiðfram-
kvœmdaleyfi skilyrðum nema lög heimili það sérstaklega. Sveitarstjóm hefur
þrjár lagaheimildir til þess að binda framkvæmdaleyfi skilyrðum og verður nú
nánar að þeim vikið:
(1) Þegar fjallað var um tillögu umhverfisnefndar um ákvæði 27. gr. á 121.
löggjafarþingi vék enginn þingmaður að túlkun á skilyrðinu um að framkvæmd
skuli vera í samræmi við úrskurð um umhverfismat. Eins og vikið var að í kafla
3 hér að framan voru gerðar breytingar á 27. gr. með lögunr nr. 135/1997 á 122.
löggjafarþingi. Við umræðu um tillögu meiri hluta umhverfisnefndar um breyt-
ingu á ákvæði 27. gr. skipulags- og byggingarlaga tók Kristín Halldórsdóttir,
sem stóð að tillögu meiri hluta umhverfisnefndar, afstöðu til þess hvenær
skógrækt væri háð framkvæmdaleyfi. Það var skoðun hennar að væri skylt að
fara með skógrækt í umhverfismat þyrfti einnig að afla framkvæmdaleyfis áður
en skógrækt væri hafin. Röksemd hennar var þessi:
Astæðan fyrir því að þetta þarf að vera ljóst er sú að sé ekki um framkvæmdaleyfi
að ræða, þá er ekki með öllu tryggt eftirlit með því að skilyrðum sem sett eru í mati
á umhverfisáhrifum sé framfylgt. Það er túlkun skipulagsstjóra að framkvæmdaleyfi
þurfi til ef farið hefur fram mat á umhverfisáhrifum og sett einhver þau skilyrði, sem
þarf að tryggja að framfylgt verði.44
Ef litið er til orðalags ákvæðis 27. gr. laganna um að framkvæmd skuli vera
„í samræmi við úrskurð um mat á umhverfisáhrifum" verður að telja það nær-
tæka skýringu að í því felist að sveitarstjóm eigi að gera það að skilyrði fyrir
framkvæmdaleyfi að framkvæmdin sé í samræmi við þau skilyrði sem fram
koma í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum, sbr. 1. mgr. 16. gr. laga nr.
106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, hafi verið fallist á framkvæmd með
43 Sbr. Jens Garde: „Saglige krav“, bls. 230 í ritinu Forvaltningsret. Almindelige emner. 3. útg.
1997 og Poul Andersen: Dansk Forvaltningsret, bls. 404.
44 Alþt. 1997-1998. B-deild, dálk. 2167-2168.
260