Tímarit lögfræðinga - 01.06.2004, Blaðsíða 37
ætla að hann fengi upplýsingar um enda megi ætla að vanrækslan hafi haft áhrif
á kaupin. Þau atriði sem skipta máli við beitingu þessa ákvæðis eru:
• Seljandi hefur við kaup vanrækt að gefa upplýsingar
• Vanrækslan varðar upplýsingar um söluhlut og notkun hans
• Upplýsingamar skipta verulegu máli
• Seljandi hlaut að þekkja til upplýsinganna
• Kaupandi mátti ætla að hann fengi upplýsingamar
• Ætla má að vanrækslan hafi haft áhrif á kaupin
Orðasantbandið sem verulegu máli skipta verður að meta með hliðsjón af
því að hluturinn er keyptur „í því ástandi sem hann er“ eða með sambærilegum
fyrirvara. Slíkt gefur talsvert svigrúm til að meta hvað teljist verulegt í þessu
sambandi. í framkvæmd felst í þessari reglu skylda seljanda til að gefa upplýs-
ingar um alla þá galla söluhlutar sem máli skipta eða óheppilega eiginleika
hans. Ákvæðið verður að skoða sem lágmarksreglu sem ekki er unnt að víkja til
hliðar með almennri tilvísun eins og þeirri að hlutur sé „seldur í því ástandi sem
hann er“.46
Það er skilyrði samkvæmt b-lið að ætla megi að vanræksla seljanda hafi haft
áhrif á það að kaup vom gerð. Sá fyrirvari að hlutur sé seldur „í því ástandi sem
hann er“ getur aðeins að takmörkuðu leyti leyst seljandann undan því að gefa
upplýsingar um atriði sem þýðingu hafa fyrir kaupandann. Upplýsingaskylda
seljanda nær ekki aðeins til atvika sem hann þekkir heldur líka atvika sem hann
má vita um, þ.e. atvika sem ekki er afsakanlegt að seljandinn viti ekki um. Láti
seljandinn hjá líða að upplýsa um slík atvik em afleiðingamar eftir atvikum þær
að söluhlutur telst gallaður.47 Sjá til athugunar H 1991 2069 (Chevrolet Scotts-
dale).
H 1991 2069 (Chevrolet Scottsdale)
Bifreið skemmdist í höndum kaupanda eftir litla notkun þegar vél hennar bræddi úr
sér skömmu eftir kaup. Dómkvaddir matsmenn töldu að orsök úrbræðslunnar hefði
verið ófullnægjandi viðgerð á olíupönnu á meðan seljandi átti bifreiðina. í dómi
Hæstaréttar segir að leggja beri til grundvallar þá niðurstöðu dómkvaddra mats-
manna að frumorsök úrbræðslu vélarinnar megi rekja til breytinga sem gerðar hafi
verið á olíupönnu í bifreiðinni og kallaði á aukið eftirlit með olíumagni. Við kaupin
hafi kaupanda ekki verið gert viðvart um þessa breytingu og megi meta það seljanda
til sakar vegna þekkingar hans á bifvélum. Samkvæmt þessu ætti kaupandi rétt til
skaðabóta úr hendi seljanda.
Ákvæði þetta verður að skoða í samhengi við reglur 20. gr. um rannsókn
kaupanda. Sjá H 1980 66 (Sólbjörg EA-142) sem reifaður er í kafla 5.3 hér á
46 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 839, og Alþt. 2002-2003, A-deild, bls. 3806.
47 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 839.
221