Ægir - 01.09.1996, Page 12
Hf. Eimskipafélag íslands:
Nýtt gámaskipog
nýtt siglingakerf i
„I dag leitast Eimskip við að veita sem besta alhliða flutningaþjónustu
og aðra þjónustu, sem henni tengist," sagði Þórður Sverrisson fram-
kvæmdastjóri flutningasviðs Eimskips í viðtali við Ægi. Hann upplýsti
okkur um nokkrar helstu nýjungar í rekstri fyrirtækisins, sem tengj-
ast útflytjendum og þeim sem starfa í sjávarútvegi.
„í ágúst sl. kom nýtt siglingakerfi
Eimskips að fullu til framkvæmda, þeg-
ar siglingar á Norðurleið og Suðurleið
hófust. í janúar sl. hófust siglingar á
Strandleið beint frá þremur höfnum á
landsbyggðinni til Evrópu. Samhliða
nýju siglingakerfi voru gerðar breyting-
ar á skipastól Eimskips og fékk félagið
afhent nýtt skip í júní sl. Heitir það Brú-
arfoss og er stærsta gámaskipið í eigu fé-
lagsins.
Þetta kerfi er fyrst og fremst byggt
upp með þarfir útflytjenda í huga og
helst þeirra, sem eru á landsbyggðinni.
Kerfið miðar að því að stytta flutnings-
tíma frá íslandi til markaða erlendis.
Við náum því að stytta flutningstím-
ann úr átta til tólf dögum og niður í
fjóra til sjö daga. Einnig hefur Eimskip
fjölgað ferðum til markaða í Evrópu úr
tveimur brottförum frá landinu í þrjár í
viku hverri.
Þarna fylgir Eimskip breyttum kröf-
um, sem gerðar eru til viðskiptavina
okkar, sem sífellt verða að afgreiða af-
urðir til markaða erlendis með skemmri
fyrirvara. Nú er einnig gjarnan afgreitt í
smærri sendingum en áður og afurðirn-
ar þarf oft að afhenda lengra inni á
meginland Evrópu en áður tíðkaðist. Af
sömu ástæðum bjóðum við upp á að
flytja smærri sendingar en áður af frysti-
vörum í hlutasendingum en ekki aðeins
í heilum gámum.
Eimskip er stöðugt að auka þjónustu-
net okkar varðandi frystigeymsluþjón-
ustu, dreifingarþjónustu fyrir frystivömr
eða saltfisk og aðrar útflutningsvörur.
Við sækjum vöruna hér heima til við-
Þórður Sverrisson framkvœmdastjóra flutri-
ingasviðs Eimskips.
skiptavina ef þess er óskað, geymum
hana hér, flytjum hana út, geymum
hana jafnvel í geymslum erlendis og
flytjum hana síðan til kaupenda erlend-
is. Þessa þjónustu nýta útflytjendur sér
þegar í miklum mæli. Ég tel vafalaust að
þar verði enn aukning á þegar menn
kynnast hinu nýja siglingakerfi Eim-
skips betur.
Fyrir um það bil einu ári byggðum
við og tókum í notkun mjög fullkomna
frystigeymslu í Sundahöfn. í heild er
byggingin 3000 fermetrar, með 1700
fermetra frystiklefa. Við hönnun klefans
var lögð sérstök áhersla á öryggi og
gæði við alla meðhöndlun vörunnar.
Hann er útbúinn nútíma tæknibúnaði
og tölvustýrðri geymslu- og kælitækni.
Þarna fer öll vörumeðhöndlun fram í
1000 fermetra lokuðu forrými fyrir
framan frystiklefann. Eimskip býður
viðskiptavinum sínum upp á sérhann-
aða skoðunarklefa fyrir frystar sjávaraf-
urðir og auk þess er þarna sérstök skrif-
stofuaðstaða viðskiptavinum okkar til
notkunar. Auk þess er fyrirtækið með
frystigeymslu í Hafnarfirði með á ann-
að þúsund tonna rými. Þar er einnig
góð þjónustumiðstöð fyrir viðskiptavini
svo sem fyrir útgerðarmenn frystitogara
sem þar landa.
Fyrr á þessu ári komum við upp
bættri og stærri kæliaðstöðu í Sunda-
höfn. Við vorum með eina kæligeymslu
fyrir blautfisk en nú eru þær tvær fyrir
blautfisk og auk þess er ein kæligeymsla
fyrir þurrfisk. Þetta eru geymslur sem
rúma vel á annað þúsund tonn. Með
þessu erum við að þjóna breyttum og
auknum kröfum kaupenda og neytenda
íslensks saltfisks erlendis.
í Hafnarfirði erum við með góða að-
stöðu til löndunar úr frystitogurum og
reyndar líka í Reykjavík, á Akureyri og í
Vestmannaeyjum. Við önnumst lönd-
um úr á annað hundrað frystitogara í
Hafnarfirði á ári hverju. Erlendir aðilar
hafa nýtt sér þessa þjónustu í vaxandi
mæli.
Eimskip hefur verið með siglingar á
Nýfundnaland í sex ár. í byrjun var
þetta fyrst og fremst hugsað fyrir flutn-
inga frá landinu til Evrópu og til baka.
Síðan hafa rækjuveiðarnar á Flæmska
hattinum breytt þessu þannig, að nú
erum með mikla flutninga fyrir íslenska
togara og annara þjóða líka, sem þar em
á veiðum", sagði Þórður Sverrisson að
lokum. □
12 ÆGIR