Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 16
Radiomiðun ehf.:
Bylting í samskiptum
tölvu og fjarskipta
„Við erum að sjá það gerast um þessar mundir að skip eru að tölvu-
væðast líkt og fyrirtæki gerðu fyrir 10 til 15 árum. Við erum að hefja þá
sókn núna og höfum sýnt mönnum, sem voru fullir efasemda þegar við
vorum að byrja fyrir um sex árum, að tölvan sem slík geti vel virkað um
borð í skipunum. Stór skip og smá hafa tekið hana í þjónustu sína og sú
bylting sem á sér stað núna í siglinga- og fiskileitartækni er samspil
tölvubyltingarinnar og fjarskiptabyltingarinnar. Radiomiðun mun á
Sjávarútvegssýningunni 1996 kynna fjölmarga skemmtilega hluti,“ seg-
ir Kristján Gíslason, framkvæmdastjóri Radiomiðunar ehf.
franska fyrirtækinu sem framleiðir
þennan hugbúnað. Við höfum sífellt
verið að færa okkur meira inn á þróun-
arsviðið en ekki eingöngu að taka ein-
hverjar vörur inn og selja þær. Við tök-
um þátt í þróuninni og vinnum hluta af
forritunarvinnunni hér heima og hluti
af henni er unnin ytra."
Radiomiðun er með öll hefðbundin
tæki, radara, dýptarmæla, GPS-tæki,
miðunartæki, talstöðvar og annan fjar-
skiptabúnað. Kristján segir að allt í sam-
bandi við MaxSea sé mjög fyrirferðar-
mikið í markaðs- og kynningarmálum
fyrirtækisins þessa dagana. í siglinga- og
fiskileitartækni hafi skipstjórnartölvan
frá þeim afgerandi stöðu á markaðnum.
Sem dæmi séu t.d. um 300 skip með
umrædda tölvu um borð og að með
ódýrari útgáfu gefist fleiri og smærri að-
Kristján segir fyrirtækið vera að sýna
fjölmarga nýja möguleika um áðurnefnt
samspil tölvu og fjarskipta. í fyrsta lagi
hvernig nota megi tölvuna til þess að
sækja upplýsingar inn í upplýsinga-
banka, sem fyrirtækið reki, og nota til
þess fjarskiptin.
,,Eins komum við til með að sýna
hvernig halda megi fyrirtækjum, og
ekki síður fjölskyldum áhafna, í góðu
sambandi við skip í gegnum gervi-
hnetti. Við höfum t.d. gefið 50 aðilum
kost á því að tengjast í gegnum Alnetið.
Fermingartölvur barnanna eru notaðar
til þess að vera í samskiptum við skipin
í Smugunni t.d. Þetta er upphafið að
nýrri byltingu. Við höfum verið í sam-
starfi við hollensku jarðstöðina Station-
12 og nú getum við boðið mjög einfald-
an og ódýran aðgang að öllum In-
marsat-C gervihnattatækjum í gegnum
Alnetið, hvar sem er í heiminum."
Kristján segir menn vera mjög opna
fyrir þessum nýjungum og segir tölvuna
vera að taka við sem það tæki sem gegni
hvað veigamestu hlutverki um borð.
,,ÖU tækin urn borð eru að tengjast
inn á tölvuna. Upplýsingar frá tækjum
sem voru birtar sem tölustafir eru nú
birtar í myndrænu formi á tölvuskjá.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum
um hversu mikið það auðveldar mönn-
um vinnuna. Þetta byggist jú allt á því
að ná fiskinum á sem skemmstum tíma
með sem minnstum tilkostnaði," segir
Kristján.
Aðspurður hvort menn muni fá að
sjá eitthvað alveg nýtt á Sjávarútvegs-
sýningunni segir Kristján að fyrirtækið
hafi fram til þessa aðeins verið með
kerfi fyrir Macintosh en nú verði kynnt-
ar útfærslur fyrir PC-vélar. Þá verði
einnig kynnt Power PC, mjög hraðvirk
tölva, og nýjar útgáfur af MaxSea hug-
búnaðinum. Hann segir það besta í
þessu vera hversu breitt notendasvið
tölvurnar hafi því trillukarlinn geti
nefnilega allt eins nýtt sér þær eins og
skipstjórinn á stóra togaranum.
„Sérhæfing okkar er í fjarskiptabún-
aði og tölvubúnaði og það má geta þess
að við erum myndarlegir hluthafar í
ilum kostur á að nýta sér þessa tækni.
„Við munum kynna mjög margar
nýjungar á sýningunni og ég get t.d.
nefnt nýja útfærslu á hinum vinsælu
BridgeMaster ratsjám frá Racal Decca en
um er að ræða mest seldu X- og S-band
ratsjár allra tíma. Þá verður GMDSS fjar-
skiptabúnaðurinn frá Sailor kynntur,
svo og nýtt gervihnattafjarskiptakerfi
fyrir talsamband. Ennfremur bjóðum
við mönnum að skoða ný GPS staðsetn-
ingartæki frá Koden með innbyggðum
leiðréttingarbúnaði og nýja EPIRB neyð-
arbauju frá Jotron. Nýtt aflanemakerfi
verður sýnt frá NetMind og svo fyrsti ís-
lenski aflneminn sem er Scanmar sam-
hæfður. Að auki eru svo allar MaxSea
nýjungarnar," segir Kristján Gíslason,
framkvæmdastjóri Radiomiðunar ehf. □
16 ÆGIR