Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1996, Page 26

Ægir - 01.09.1996, Page 26
Bræðurnir Ormsson Ný umhverfisvæn olíusía margfaldar endingu olíunnar „Nýja TF-Purifiner olíusían sem við erum að kynna um þessar mundir er bylting í meðferð smurolíu sem hreinsar öll óhreinindi úr smurolíunni ■ smurkerfi vélarinnar og margfaldar endingu hennar," sagði Ásmundur Guðnason deildarstjóri hjá Bræðrunum Ormsson hf. í samtali við Ægi. „Þetta er umhverfisvæn olíusía sem byggir á því að sía og hreinsa olíuna stöðugt. í Bandaríkjunum þar sem þessi tækni var fundin upp eru dæmi um að vélar hafi gengið 1,5 milljón kílómetra á sömu olíunni. Vökvakerfi hafa unnið á sama vökvanum árum saman en þessari tækni verður auðveldlega beitt til þess að halda vökvakerfum hreinum." Þegar það er haft í huga að árlega er talið að tæplega tveimur billjónum lítra af óhreinni smurolíu sé dælt út í umhverfið með tilheyrandi mengunaráhrifum hljóta þetta að teljast góð tíðindi fyrir þá sem hafa áhuga á umhverfisvernd og vilja draga úr smuroiíunotkun enda hefur TF- Purifiner fengið vottun sem „Tækni gegn mengun" frá efnamengunareftirliti um- hverfisverndunarráðs Kaliforníu. Sían er með sex mánaða skilaábyrgð og tíu ára takmarkaðri ábyrgð. „Þessi sía hreinsar agnir og óhreinindi úr smurolíunni sem eru allt að 1 míkron að stærð. Nokkrar af bestu fullfiæðisíum ná eingöngu að sía frá svarfefni og önnur föst óhreinindi niður að 15 míkrónum. Sían vinnur þannig að fyrst fer olían gegn- um þykkt lag af sérstakri pressaðri bómull. Þaðan flæðir hún um sérstök hitahólf en sérstök hitaelement halda jöfnum 90 gráðu hita þar. Við það gufa upp aukaefni s.s. vatn, frostlögur, eldsneyti og annað og fara annað hvort inn á safnbox eða inn á loftsíuna aftur til brennslu. Helstu kostir TF-Purifiner eru þessir: lengri líftími vélar, olíukostnaður og eyðingargjöld minnka um 90%, olíuskiptum fækkar og kjörseigja helst, sían fjarlægir vatn, eldsneyti og leysiefni, kemur í veg fyrir sýrumyndun, fjarlægir brennistein og ryðagnir, eykur vélarafköst og fækkar bilunum." Ásmundur sagði að sían fengist í nokkrum stærðum og hentaði því á nær allar gerðir véla en hagkvæmnin væri meiri eftir því sem vélin væri stærri. Minnsta sían er miðuð við 7-8 lítra smur- olíumagn á vél, ca. 150 hestöfl en sú stærsta er fyrir vélar sem nota meira en 227 lítra af smurolíu. Hægt er að raðtengja hinar ýmsu stærðir og fá þannig fram sér- hæfða lausn fyrir hvert vélarrúm eða vél. Á sjávarútvegssýningunni mun verða lögð sérstök áhersla á að kynna þessar nýju síur en að sögn Ásmundar verður einnig minnt á hin traustu vörumerki sem Bræðurnir Ormsson hafa unnið sér traust fyrir s.s. Bosch rafmagnshandverkfæri og stillitækni og Tridon bílavarahlutir og aukahluti sem njóta vaxandi vinsælda. Auk þessa verður kynnt ný tegund af þrýstijafnara fyrir túrbínur sem á eflaust eftir að vekja athygli bæði vélstjóra og jeppaeigenda. Þetta er nokkurs konar þrýstikútur sem er tengdur við túrbínuna í bátnum eða bílnum og sér um að halda alltaf jöfnum þrýstingi á smurningu. Þetta þýðir að túrbínan gengur aldrei þurr eins og oft vill verða þegar vél er gangsett og ljóst er að þetta litla tæki getur lengt líf- tíma túrbínunnar verulega og skilað betri afköstum hennar og minna viðhaldi. Bræðurnir Ormsson hafa starfað frá 1922 og hafa frá upphafi verið umboðs- menn Bosch samsteypunnar þýsku sem Sveinbjöm Sveinbjömsson verslunarstjóri og Ásmundur Guðnason deildarstjóri hjá Brcvðrunwn Ormsson. var stofnuð 1886 og er risavaxið alþjóða- fyrirtæki sem veltir tugmilljónum marka árlega. í dag eru 42 starfsmenn í átta deildum hjá Bræðrunum Ormsson. Bosch hefur séð islenska fiskiskipaflot- anum, vélsmiðjum og verkstæðum fyrir verkfærum í rúmlega 70 ár. Vaxandi á- hersla á umhverfisvernd einkennir starf- semina hin seinni ár og þannig t.d. eru eldri handverkfæri endurunnin til marg- víslegra nota. Stillitækni Bosch hefur einnig umhverfisvernd að leiðarljósi því vel stillt olíukerfi dregur úr mengun. Fiskiskipaflotinn er meðal stærstu mengunarvalda heimsins þegar kolsýr- ingsmengun er annars vegar. íslendingar eru aðilar að alþjóðasamningum um að draga úr slíkri mengun á næstu árum. Regluleg og vönduð stilling á olíukerfum dregur úr mengun, minnkar olíueyðslu og tryggir minna viðhald. □
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.