Ægir - 01.09.1996, Síða 32
Héðinn Smiðja hf:
- horfum gjarnan til lausna þar
sem heilu kerfin, skip eða verk-
smiðjur, eru afhentar með öllum
búnaði til kaupanda og tilbúin til
veiða eða framleiðslu.
„Héðinn hf. er fyrst og fremst fyrir-
tæki sem annast margskonar sérsmíði
og þjónustu fyrir viðskiptavini sína. Nú
er höfuðmarkaður okkar í tveimur
starfsgreinum, skipaflotanum og fisk-
mjölsiðnaðinum. Auk þess bjóðum við
alla þætti alhliða viðgerðarþjónustu og
á hverju sviði járniðnaðar sem óskað er
eftir. Mestur þunginn í starfsemi okkar
er í þjónustuiðnaði," sagði Guðmundur
Sveinsson, framkvæmdastjóri Héðins
Smiðju, í viðtali við Ægi, þegar hann og
Gunnar Hauksson sölustjóri upplýstu
okkur um höfuðþættina í starfsemi fyr-
irtækisins; fyrirtækis sem rekur fyrstu
rætur sínar allt til ársins 1892.
Samstarfi við Ulstein og Stord
Þjónustan við skipaflotann og fisk-
mjölsiðnaðinn byggir á samstarfi okkar
við erlenda umboðsaðila okkar. Annars-
vegar er það norska fyrirtækjasamsteyp-
an Ulstein. Þar hafa sameinast aðilar
sem bjóða upp á nær allan þann vél-
búnað, sem vera á um borð í einu fiski-
skipi. Hinsvegar erum við umboðsmenn
fyrir Stord International, sem einnig er
norskt og það fyrirtæki er á sama hátt
með nánast allan þann vélbúnað, sem
tilheyrir framleiðslu á fiskimjöli. Við
eigum mjög nána og góða samvinnu
við þessa tvo norsku aðila. i verkefnum
sem við vinnummeð þeim er gjarnan
horft til heildarlausna og þar sem við af-
greiðum smíði skips eða uppbyggingu
fiskmjölsverksmiðju að öllu leyti.
Góð dæmi um samvinnu okkar við
Stord eru þær tvær fiskmjölsverksmiðjur
sem við erum nú að reisa í Reykjavík og
á Akranesi. Þar tökum við að okkur „all-
an pakkann", við munum afhenda
verksmiðjurnar tilbúnar, bæði bygging-
ar og vélar. Vélar og tæki koma frá
Stord, Héðinn sér um smíði á ýmiskon-
ar búnaði í verksmiðjurnar. Auk þess
reisum við allar byggingar og útvegum
annað það sem þarf til verkefnisins,
þaðan sem það fæst best og hagkvæm-
ast.
Sama gildir um þjónustu okkar við
skipaflotann. Nýlega seldum við spil-
kerfi í tvo togara Granda hf., Snorra
Sturluson og Engey. Þó svo formlega
hafi nýlega verið gengið frá sölu á spil-
unum, þá gerðist hún samt sem áður í
raun miklu fyrr. Við höfum þjónustað
togara Granda um langt árabil. Okkar
menn hafa verið um borð í þessum
skipum og veitt þá þjónustu, sem til
þarf, til að kerfin hafi haldist vel gang-
andi og vinni vel. Á grundvelli þessarar
þjónustu verður salan. Spilkerfin eru
síðan sett niður á Spáni og í Póllandi
þar sem skipunum er breytt.
Áralöng þjónusta Héðins er
grunnur annarrar starfsemi
Þjónustuþáttur okkar er grundvöllur-
inn undir þetta allt. Þess vegna getum
við með sanni sagt að meginverkefni
okkar sé þjónusta við viðskiptavini okk-
ar. Okkar sérfræðingar eru mikið um
borð í skipunum bæði þegar þau eru í
landi og eins ef þörf er á að fara út á sjó
með þeim og kanna kerfin við fulla
vinnslu. Við störfum fyrir viðskiptavini
okkar eftir þeirra óskum, fáum frá þeim
lista um verkefni, sem óskað er að leyst
séu. Einnig fá þeir okkur til viðræðna og
ráðgjafar um ýmis vandamál, nýjar
hugmyndir sem kvikna o.fl.
Sérfræðingar okkar fara víða við störf
sín. Staðan var þannig í sumar að auk
Loftþurrkari tekinn inn í nýbyggingu Faxa-
mjöls. Gunnar Bergmann, Sigurður Hjalta-
son og Ólafur Guðlaugsson
okkar manna um borð í íslenskum skip-
um hér við land, var einn á Spáni,
Kanada, Bandaríkjunum og annar á
Kamsjatka í Rússlandi. Markaður okkar
er fyrst og fremst ísland en við höfum
líka verið að þjónusta erlend skip, hér
við land og þá einkum grænlensk. í
samingunum við Granda hf. um spil-
kerfin er sérstakt ákvæði, að þeirra ósk,
um að Héðinn annist eftirlit og prufu-
keyrslu. Þeir kusu það fremur en fá er-
lenda aðila til þessa mikilvæga verks.
Héðinn hóf samvinnu við Ulstein
snemma árs árið 1993. Fyrirtækið er tal-
inn sá framleiðandi vélbúnaðar í skip,
sem mesta breidd og flest tæki getur út-
vegað. Upphaflega byggði Ulstein tilvist
sína á skipasmíðum, m.a fyrir íslend-
inga, en nú leggur fyrirtækið áherslu á
að útvega allan vélbúnað í skip. Þar er
um að ræða vélar, gíra, skrúfur, spil,
stýrisvélar, sjálfvirknibúnað og aðvör-
unarkerfi. Allt þetta er Héðinn Smiðja
að bjóða í samvinnu við Ulstein.
Þjónum skipaflotanum og
fiskmjölsiðnaðinum
32 ÆGIR