Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1996, Page 50

Ægir - 01.09.1996, Page 50
Hugvirki & Lausn ehf.: Stýrt viðhald minnkar kostnað um 15-20% „Það er talið að viðhaldskostnaður á einum frystitogara sé um 30 millj- ónir á ári og kringum 20 milljónir fyrir ísfisktogara. Það gefur því auga leið að með því að nota sér þá kosti sem felast í stýrðu viðhaldi er hægt að spara mikið fé en rétt og gott viðhald getur dregið úr þessum kostnaði um 15-20%,“ sagði Kristján Sigurgeirssson framkvæmda- stjóri tölvufyrirtækisins Hugvirki & Lausn í samtali við Ægi. Hugvirki & Lausn var stofnað 1985 en Kristján var áður annar eigenda og stofnenda Rekstrartækni sem var braut- ryðjandi á sviði tölvujtjónustu og ráð- gjafar fyrir atvinnulífið einkum og sér í lagi fiskvinnsluna. Hugvirki & Lausn kemur víða við á sviði tölvuvinnslu, hugbúnaðargerðar og ráðgjafar en starfsemi fyrirtækisins hefur breyst í ár- anna rás og nú er framleiðsla og sala hugbúnaðar meginuppistaðan í starf- semi fyrirtækisins en mun minni á- hersla er lögð á rekstrarráðgjöf. „Sem dæmi um hugbúnað sem við framleiðum og seljum er kerfi sem við köllurn Bílval og er sérhannað fyrir bílasala og heldur utan um allar sölur, umskráningar, bókhald og allt hvað eina. Þetta kerfi hefur mælst mjög vel fyrir og í dag er um 75% af öllum bíla- sölum á landinu sem nota það," sagði Kristján. „Annað svipað kerfi heitir Húsval og er sérsniðið fyrir þarfir fasteignasala. Það heldur utan um fjölda húseigna, stýrir dreifingu auglýsinga, bókhaldi, innheimtu, þinglýsingum, og yfirleitt öllum þeim pappír sent verður til í kringum fasteignaviðskipti sem er um- talsverður eins og rnargir þekkja." Hjá Hugvirki & Lausn starfa alls átta manns, bæði forritarar og einnig tæknimenn sem sjá um uppsetningu búnaðar en sá sem kaupir hugbúnað af Hugvirki & Lausn fær alla þjónustu með í kaupunum. Enn mætti nefna að Hugvirki & Lausn hafa hannað forrit sem heldur utan um heimsendingu á pizzum en slík þjónusta nýtur gífurlegra vinsælda í samfélaginu eins og flestir kannast við. Kerfið er þegar í notkun hjá Pizza Hut og Hróa hetti og reynist vel. Fastir viðskiptavinir á slíkum stöðum geta hringt, nefnt nafnið sitt og pantað „sama og síðast". Kristján Sigurgeirssson framkvœmdastjóri tölvufyrirtœkisins Hugvirki & Lausn. En það tölvukerfi sem Kristján legg- ur mesta áherslu á að kynna sjávarút- vegi og fiskvinnslu heitir Grettir og snýst um stýrt viðhald. Þetta er það kerfi sem eingöngu verður kynnt á sjávarútvegssýningunni á vegum fyr- irtækisins. Hvað er stýrt viðhald? „Á einfölduðu máli má segja að for- ritið sé í raun tækjalisti þar sem allar eignir, tæki og tól viðkomandi fyrir- tækis eru færð og viðhald þeirra skráð. Tölvan sér um að minna á að láta framkvæma allar aðgerðir sem heyra undir viðhald t.d. smurskipti, síu- skipti, leguskipti og allt reglubundið eftirlit. Tölvan skrifar út vinnuseðla og pantanir til fastra viðskiptavina og sendir á réttum tíma og hægt er að tengja lagerbókhaldið við Gretti sem gætir þess þá að alltaf séu til varahlutir til þess að sinna umræddu viðhaldi og hafi verið pantaðir í tæka tíð. Það má skipta þessu niður í deildir og svæði og geyma inni í tölvunni einnig teikning- ar og myndir sem tengjast viðhaldi einstakra tækja." Þannig má segja að Grettir sé staf- rænn eftirlitsmaður sem engu gleymir og vakir yfir viðhaldinu allan sólar- hringinn. Viðskiptavinir sem kaupa kerfið geta gert þróunarsamning við Hugvirki & Lausn og fá þá sjálfkrafa allar uppfærslur og alla þjónustu. „Það má segja í stuttu máli að við sjáum um þessa menn. Hugbúnaður- inn má aldrei bregðast og það er okkar hlutverk að sjá til þess að hann geri það ekki." Nokkur stærstu fyrirtæki landsins nota Gretti til að stýra viðhaldi s.s. Eimskip, Mjólkursamsalan, Vegagerð ríkisins, SR-mjöl, Sláturfélag Suður- lands og fleiri. Kristján segir að „bestu meðmælin með Gretti séu þau að kerfin séu í fullri notkun í áðurtöldum fyrirtækjum." „Þetta hentar fyrir stór og smá fyrir- tæki, sjúkrahús, frystihús, togara, hús- félög og bókstaflega alla sem hafa eftir- lit með tækjum." Fáir togarar hafa enn tekið Gretti unt borð en Kristján nefnir þó Hrafn Sveinbjarnarson GK, Runólf SH sem dæmi um skip sem nota Gretti. „Við viljum gjarnan kynna þetta fyrir vélstjórum og það ætlum við að gera á sýningunni." □ 50 ÆGIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.