Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 52
Hampiðjan:
Glorían vinsæl
- flestir íslensku togaranna á Reykjaneshrygg
með flottroll frá Hampiðjunni
„Við munum leggja áherslu á Gloríutrollin, Dynex ofurlínuna, Dynex ofurtóg-
in og síðast en ekki síst flotteininn okkar sem nýtur vaxandi vinsælda. Allt
hvílir þetta þó á traustum grunni okkar hefðbundnu framleiðslu," sagði Örn
Þorláksson sölustjóri línu og kaðla hjá Hampiðjunni í samtali við ÆGI.
Örn sagði að í samvinnu við skip-
stjórnarmenn og netahönnuði væru
Gloríuflottrollin í stöðugri endurskoð-
un.
„Við notum stöðugt meira af Dy-
neema í stóru möskvana sem gerir
trollið léttara og meðfærilegra. Það hef-
ur verið hæg þróun í þá átt að stækka
trollið og við höfum reynt að mæta
óskum viðskiptavinanna í þeim efn-
um. Efri mörkin í þeim efnum eru ekki
þekkt."
Þegar spurt er um útbreiðslu Glor-
íutrollanna í flotanum svarar Örn því
til að á karfaveiðunum á Reykjanes-
hrygg í vor hafi flestir íslensku tog-
aranna verið með Gloríutroli. Mikið
hefur verið flutt út af slíkum trollum
og er því ekki að efa að þau hafi verið í
notkun hjá fjölda erlendra togara á
Hryggnum í vor.
„Við erum alltaf að færa okkur
meira inn á fjarlæga markaði s.s. Nýja-
Sjáland, Namibíu og Suður-Ameríku.
Einnig hefur verið góð sala hjá
samstarfsaðili Hampiðjunnar í Seattle
í Ameríku, Victory Fishing Gear en
það selur einkum til útgerða í Kyrra-
hafi."
Dynex ofurlínan hefur verið í þróun
og reynslu á vegum Hampiðjunnar í
heilt ár. Byr VE hefur tekið þátt í til-
raunaveiðum með Dynex línuna á
ýmsum miðum við ólíkar aðstæður og
að sögn Arnar eru sjómennirnir mjög
ánægðir með árangurinn.
„Byr hefur samtals tapað tveimur
rekkum af línu, slitið innan við
fimmtán sinnum og samkvæmt mæl-
ingum er slitstyrkur línunnar 80% af
því sem hann upphaflega var og út-
gerðin hikar ekki við að nota hana
annað ár. Núningsþolið virðist vera gíf-
urlegt því það sér varla á línunni eftir
þessa notkun. Þetta þætti gífurlega
góður árangur við hefðbundnar línu-
veiðar."
Byr hefur veitt suður af Vestmanna-
eyjum á mjög erfiðum botni, djúpt í
Berufjarðarál á grálúðuslóðum og vest-
ur á Hampiðjutorgi á rúmlega 1400
metra dýpi.
„Færin sem einnig eru gerð úr 6,5
mm. Dynex með slitstyrk upp á 2.800
kíló hafa reynst framúrskarandi. í
miklum straumi taka þau lítið rek á sig
og auðvelt að draga þau inn. Þetta er
allt til hægðarauka og framfara fyrir
sjómenn."
Örn sagði að eftir þetta tilrauna-
tímabil væru Hampiðjumenn tilbúnir
til að afgreiða ofurlínu til þeirra sem
vildu kaupa. Efnið í línuna er framleitt
í verksmiðju DSM í Hollandi en fléttað
saman hjá Hampiðjunni hér heima.
Hráefninu fer fram því á leiðinni eru
þræðir sem eru 50% sterkari en þeir
sem hefur verið unnið úr hingað til.
„Þessi nýja lína er dýrari en nú gefst
kostur á að blanda ofurefninu við
þræði úr öðrum efnum og lækka
þannig verðið án þess að minnka slit-
styrkinn mikið. Við köllum þetta Dy-
nex-Combi og hún verður nokkurs
Örn Þorláksson sölustjóri línu og kaðla hjá
Hampiðjunni.
konar millistig því við munum einnig
framleiða 5 mm. línu úr blöndu af Dy-
nex og öðrum efnum og hún verður
fyrst og fremst hugsuð fyrir minni
báta."
Hampiðjan hefur framleitt
sýnishorn til tilrauna af Dynexlínu 2.5
mm. fyrir norska markaðinn þar sem
hún er notuð sem flotlína.
Hampiðjan á 80% hlut í DNG og
Sjóvélum sem sameinuðust um síð-
ustu áramót. Með samvinnu þessara
þriggja fyrirtækja ásamt íslenskri vöru-
þróun er unnið að heildarlausn fyrir
krókaveiðar. íslensk vöruþróun leggur
til LineTec átaksmæli og stjórnkerfi til
línuveiða og yrði þetta að einu full-
komnasta línukerfi í heiminum að
sögn Arnar.
Flottógið sem Hampiðjan framleiðir
hefur náð mikilli fótfestu á markaðn-
um og hefur sérstaklega hitt í mark hjá
grásleppukörlum og þeim sem veiða í
þorskanet. Einnig er teinninn fluttur
út til Japans þar sem hann er notaður
við hefðbundnar netaveiðar og í
fiskeldi.
„Fyrst þetta hátækniland þar sem
mikið er framleitt af veiðafærum vill
kaupa af okkur flottein hljótum við að
vera á réttri leið," sagði Örn að lok-
um. □
52 ÆGIR