Ægir - 01.09.1996, Síða 56
Gjaldmælir frá Pósti og síma:
Mælir símnotkun
hvers skipverja
„Við létum hanna þennan mæli fyrir nokkrum árum og hann fékk strax
mjög góðar móttökur og hefur verið settur um borð í mörg skip," sagði
Einar Oddgeirsson rafeindavirki hjá Pósti og síma í samtali við Ægi.
Mælirinn sem rætt er um er gjaldmælir ætlaður til sundurliðunar sím-
tala og útskriftar reikninga fyrir símanotkun hvers skipverja. Með
þessum mæli er einfalt að fylgjast með símanotkun hvers og eins og
láta greiða fyrir eftir hentugleikum. Mælirinn er tengdur við símstöð
og hver skipverji eða notandi fær sitt leyninúmer sem hann verður að
slá inn til þess að fá són.
„Þetta býður jafnframt upp á þá
möguleika að halda utan um skráningu
símtala svo hver og einn fær sundurlið-
aðan símareikning en jafnframt er
hægt að fylgjast með heildarnotkun,"
sagði Einar.
Hægt er að velja sérstök frínúmer
sem allir skipverjar geta hringt í á
kostnað útgerðarinnar. Þetta geta verið
númer hjá ýmsum þjónustuaðilum,
neyðarnúmer eða önnur númer sem
nauðsynleg eru talin.
Mjög einfalt er að tengja gjaldmæl-
inn við farsíma skips. Línutengi þarf og
venjulegan síma sem notaður er til að
hringja úr. Sé símstöð um borð má
tengja farsímann með gjaldmælinum
sem bæjarlínu. Með því móti geta skip-
verjar hringt úr hvaða síma sem er um
borð í skipinu og símtölin koma á
reikning þess skipverja sem talar. í
gegnum símstöðina má síðan tala milli
vistarvera og vinnustaða um borð en
slík símtöl koma ekki fram á reikningn-
um.
Gjaldmælinn má tengja við NMT
farsíma, gervihnattasíma eins og In-
marssat og einnig má tengja hann við
venjulega símalínu ef skipið fær land-
línu í höfn.
Gjaldmælir þessi er alíslensk hönn-
un sem unnin var fyrir Póst og síma og
hefur hlotið mjög góðar viðtökur að
sögn Einars. Mælirinn hefur verið
markaðssettur erlendis og fengið nokk-
Gjaldmœlir Pósts og síma er œtlaöur til aö
sundurliða símtöl skipverja og harm skrifar
út reikning fyrir símanotkun hvers og eins.
uð góðar viðtökur. Þannig hefur hann
þegar verið settur í nokkur skip í Nor-
egi og Færeyjum og fyrirspurnir hafa
borist frá öðrum löndum. Mælirinn er
til sölu hjá Pósti og síma og ýmsum fyr-
irtækjum sem selja fjarskiptabúnað fyr-
ir skip og báta og kostar rúmlega 76
þúsund m.vsk.
Einar sagði í samtali við Ægi að góð-
ar viðtökur flotans hefðu orðið til þess
að nú er komin endurbætt útgáfa af
gjaldmælinum á markað og er henni
sérstaklega beint að fyrirtækjum og
notendum í landi.
Þessi nýja útgáfa er búin til tenging-
ar við venjulega símalínu og tekur á
móti talningu, telur svokallaða púlsa.
Hver notandi fær lykilnúmer en nota
verður tölvu til þess að forrita mælinn
og búa til reikninga og er hún tengd
við hann á meðan. Sérstakt forrit fylgir
mælinum til þess að vinna reikning-
ana.
Ef talningar eru notaðar við gjald-
mælingar má búa til inneign fyrir
ákveðna notendur og er þá greidd fyr-
irfram einhver upphæð sem notandinn
getur talað fyrir og missir sambandið
þegar hún er uppurin.
„Við teljum að þetta fyrirkomulag
geti hentað afar vel t.d. á heimavistar-
skólum, stórum og smáum vinnustöð-
um og yfirleitt þar sem margir hafa að-
gang að einum og sama símanum,"
sagði Einar.
Á heimavist myndi þá hver nem-
andi fá úthlutað lykilnúmeri og hann
gæti valið um að safna upp notkun
eða greiða fyrirfram og eiga inneign.
Hafi nemendur efasemdir um reikn-
inga er hægt að búa til sundurliðaðan
reikning þar sem sést glöggt hvert
hringt er og fyrir hvað mikið. Hægt er
að verja forritið fyrir því að óviðkom-
andi komist í forrit mælisins eða notk-
unarskrárnar.
Póstur og sími hefur einnig ákveðið
að leigja út slíka gjaldmæla sem valkost
í stað venjulegs símasjálfsala.
„Þetta getur hentað þar sem sama
fólk dvelur einhvern tíma s.s. í verbúð-
um, heimavistum, skólum, litlum gisti-
heimilum, orlofsbústöðum, heilsuhæl-
um og vinnubúðum verktaka. Þannig
getur sá sem leigir mælinn selt út sam-
kvæmt númerum og bætt síðan sinni á-
lagningu við ef hann vill," sagði Einar
að lokum og bætti við að þetta gæti
hugsanlega verið valkostur fyrir stór
heimili þar sem margir unglingar eru. □
56 ÆGIR