Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1996, Page 60

Ægir - 01.09.1996, Page 60
Isfell hf Vírinn er mikilvægastur „Við munum á sýningunni leggja aðaláhersluna á togvírinn sem við flytjum inn frá Bridon Fishing í Bretlandi og seljum. Við höfum verið að leggja mjög aukna áherslu á vír sem heitir Dyform. Þar er beitt svolítið annarri fram- leiðslutækni en áður. í jafnsverum vír og áður rúmast meira af stáli svo hann er þyngri og sterkari en eldri gerðir. Hann er öðruvísi spunninn og er liðugri og þolir betur álag og nudd ■ blökkum," sagði Hólmsteinn Björnsson fram- kvæmdastjóri ísfells í samtali við Ægi. „Árangurinn er sá að við höfum séð flestalla stærstu togara okkar taka þenn- an vír um borð og við teljum að í dag séum við með rúm 70% af markaðnum með vír frá Bridon. Meðal þeirra sem nota Dyform vír frá ísfelli má nefna Baldvin Þorsteinsson, Hákon, Helgu, Pétur Jónsson, Arnar, Vigra, Svalbak, Júlíus Geirmundsson, Málmey, Harald Kristjánsson og mörg fleiri stærstu og fengsælustu fiskiskip okkar. Þetta teljum við okkar bestu meðmæli." Hefðbundinn togvír er settur saman úr sex þáttum. Til skamms tíma var al- gengast að hver hinna sex þátta væri undinn saman úr 19 þáttum en i Dy- form vírnum er hver þáttur úr 26 þátt- um. Önnur breyting sem orðið hefur er að áður fyrr var jafnan mergur úr tógi innst í vírnum en í dag hefur stálmerg- ur nær alveg leyst hann af hólmi að sögn Hólmsteins. ísfell verður með samtals 72 fermetra bás á sýningunni í Laugardalshöll, 62 inni og 10 úti og er þetta einn stærsti básinn á svæðinu. Alls verða fulltrúar fimm erlendra framleiðenda með ísfells- mönnum á staðnum. ísfell er nátengt með eignaraðild þremur öðrum fyrir- tækjum þ.e. Álftafelli ehf., Innkaupa- deildinni sf. og Marex ehf. og verður það undirstrikað í sýningarbásnum. Til skamms tíma hefur ísfell starfað á tveimur stöðum, við Fiskislóð og við Austurbugt en nú hefur verið ákveðið að þessi fyrirtæki reisi hús yfir starfsemi sína við Fiskislóð og verði þar öll undir einu þaki. „Þetta er hagkvæm lausn og tíma- bært að komast í hentugra húsnæði," sagði Hólmsteinn. Að sögn Hólmsteins vegur vírinn mjög þungt í sölu ísfells bæði í bókstaf- legum og bókhaldslegum skilningi. Vír- inn er lykilþáttur í búnaði skipsins og einn sá allra mikilvægasti. Stærstu tog- ararnir eru með allt að 1500 faðma á hvorri tromlu og miðað við 4 tommu vír vegur vírinn 32 tonn. Ýmsar útfærsl- ur eru á því hvernig er skipt og hvort er skipt um allan vírinn í einu en almennt má segja að meðalending sé á bilinu frá 8 til 18 mánuða. „Þessi vír á að þola rúmlega 60 tonna átak og það er verið að nota hann undir gífurlegu álagi. Með nú- tíma autotrollum er stöðugt verið að hífa og slaka og jafna álagið. Vírinn liggur í mörgum blökkum og stundum með sveigju. Þetta reynir gríðarlega mikið á þetta og það er sérstök kúnst að umgangast og meðhöndla svona vír á réttan hátt." Nýjung sem ísfell mun kynna á sjáv- arútvegssýningunni eru stærri lásar en áður hafa fengist og eru sérstaklega framleiddir í Bretlandi fyrir ísfell. Þetta eru flathlæekkur, G-krókur og sylgja úr Trawlex Iásakerfinu sem passa á móti 22. mm keðju. Slíkir lásar eru mest not- aðir til þess að tengja trollið við hlerana og eftir því sem álagið eykst nota menn sverari keðjur sem kalla á stærri lása. Hólmsteinn segir að nú þegar hafi Hólmsteinn Björnsson framkvcemdastjóri ísfells. margir stærstu togararnir tekið þessum nýju lásum fegins hendi. ísfell er ungt fyrirtæki sem hefur á stuttum tíma haslað sér völl í sölu á veiðarfærum með megináherslu á víra, lása, keðjur, bobbinga, grjóthoppara og almennt hluti sem tengjast tog- og nótaveiðum. ísfell setti á fót fyrr á þessu ári dótt- urfyrirtæki í St. John's á Nýfundnalandi, ísfell Ltd. þar sem megináhersla er lögð á að veita íslenska rækjuflotanum á Flæmska hattinum þjónustu og hefur það gefið mjög góða raun en þangað sækja einnig erlend skip sem þekkja ís- fell úr viðskiptum sínum við það hér heima en þjónusta við grænlenska, norska og danska togara er umtalsverð- ur þáttur í starfseminni. □ 60 ÆGIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.