Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 66
Héðinn verslun hf.:
Nýtt vökvakerfi sem
notar hreint vatn
Helsta nýjungin sem Héðinn verslun hf. sýnir á sjávarútvegssýning-
unni er vökvakerfið Nessie frá Danfoss. Þetta kerfi á vafalaust eftir
að valda byltingu í matvælaiðnaði vegna þess að í stað þess að nota
olíu eða rafmagn til að knýja færibönd, gíra, krana og önnur flutnings-
tæki er notað venjulegt vatn.
Með því að nota vatn verður allt við-
hald og vinna við tækin mun þægilegra
og umhverfisvænna. Rafmagnsbúnaður
þolir ekki mikinn vatnsaustur og er því
erfiður í þrifum. Vökvakerfi sem nota
olíu geta hins vegar verið skaðræðisgrip-
ir ef þau fara að leka og á það ekki síst
við í viðkvæmum matvælaiðnaði á borð
við fiskvinnslu.
Vandinn við að nota vatn er einkum
sá að gæði þess og efnasamsetning er
afar mismunandi frá einu landi til ann-
ars og jafnvel milli landshluta. I>að
þurfti því að hanna tæki úr efnum sem
þola mismunandi vatn. Það tókst
tæknimönnum Danfoss eftir meira en
20.000 klukkustunda prófanir.
Útkoman er vökvakerfi sem þolir allt
vatn sem stenst staðla Evrópusam-
bandsins fyrir drykkjarvatn. Og þó ein-
hver óhreinindi séu í vatninu er hægt
að hreinsa það með ódýrri og vistvænni
tækni sem hönnuð var samsíða kerfinu.
Kerfið er starfhæft þótt hitinn í um-
hverfinu fari niður í 30°C frost, það ger-
ir sérstakur frostlögur sem samþykktur
hefur verið til notkunar í matvælaiðn-
aði.
A gömlum merg
Héðinn verslun hf. er þekkt nafn í
þjónustu við íslenskan sjávarútveg. Fyr-
irtækið stendur á grunni Vélsmiðjunnar
Héðins sem stofnuð var árið 1922 af
þeim Markúsi ívarssyni og Bjarna Þor-
steinssyni. Eftir því sem fyrirtækinu óx
fiskur um hrygg skiptist það í deildir og
Gísli Jóhannsson verslunarstjóri í Héðni
verslun.
er verslunin orðin rúmlega hálfrar ald-
ar gömul. Fyrir tveimur árum var deild-
unum skipt upp í sjálfstæð hlutafélög
og starfar Héðinn verslun hf. í Héðins-
húsinu við Seljaveg undir forystu Gísla
Jóhannssonar.
Gísli segir að verslunin hafi sérhæft
sig í hátæknivörum og flytji inn dælur
og dælubúnað fyrir sjávarútveg og fleiri
fyrirtæki frá Monopumps, Flygt og
Lowara, færibandamótora frá Joki og
rafsuðubúnað frá Esab, þráð, vír og
rafsuðuvélar. Hjá fyrirtækinu starfa
fjórtán manns, þar af 7 sölumenn sem
eru flestir með tækni- eða vélstjóra-
menntun.
Fjölbreytt framleiðsla Danfoss
En það er samstarfið við Danfoss sem
er umfangsmest í starfsemi verslunar-
innar. Það hefur staðið frá árinu 1947
og eflaust eru stýringar fyrir hitakerfi
þekktasta framleiðsluvara þessa danska
stórfyrirtækis. En Danfoss framleiðir
fleira en hitastýringar fyrir ofna. Hjá
því starfa alls 17.000 manns, þar af
9.500 í Danmörku, en fyrirtækið starf-
rækir verksmiðjur í Englandi, Frakk-
landi, Þýskalandi, Póllandi, Rússlandi,
Slóveníu, Argentínu, Bandaríkjunum og
Kanada. Einnig á Danfoss eigin sölufyr-
irtæki í öllum Evrópulöndum nema á
íslandi og írlandi.
Danfoss hefur þróast í það að vera
hátæknifyrirtæki sem leggur mikla
áherslu á rannsóknir og tækninýjungar.
Auk þess að framleiða tæki þróa starfs-
menn fyrirtækisins ný efni og leggja sig
fram um að mæta síbreytilegum kröf-
um. Sem dæmi má nefna að Danfoss
varð fyrst fyrirtækja til að framleiða
kælitæki sem ekki byggðu á hinum
ósoneyðandi CFC-efnum. Reyndar er
Danfoss leiðandi á sviði kælitækni í
heiminum og framleiðir kælivél í
fimmta hvern ísskáp sem seldur er í Evr-
ópu.
Nessie svarar nýjum kröfum
Nýja vökvakerfið Nessie, sem hefur
verið í þróun undanfarin ár, hefur að
sögn Gísla mælst vel fyrir hjá þeim sem
hafa kynnt sér það. „Þetta kerfi boðar
miklar framfarir á þessu sviði og ætti að
höfða til framleiðenda fiskvinnsluvéla.
í fiskiðnaði, rétt eins og annarri mat-
vælaframleiðslu, er stöðugt verið að
auka kröfur um hreinlæti og Nessie
svarar þeim kröfunt. Þetta er umhverfis-
væn tækni sem hægt er að nota til að
knýja færibönd, snigla, tjakka og hnífa
svo eitthvað sé nefnt," segir Gísli.
Auk Nessie sýnir Héðinn verslun
ýmis önnur tæki frá Danfoss og má þar
nefna gæslukerfi fyrir veitur, en þau
byggjast á tíðnibreytum, hraða- og hita-
stýringum. „Við sýnum einnig kælitæki
frá Danfoss en þau er víða að finna í
matvælaiðnaði hér á landi, svo og á
hótelum og veitingahúsum," segir Gísli
Jóhannsson. □
66 ÆGIR