Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 80
Vélaverkstæði Sigurðar
Kapalvindur, spil og flot-
vörputromlur
„Það má segja að þó fyrirtækið sinni auðvitað alhliða viðhaldi þá hef-
ur smíði og uppsetning á spilum og spilkerfum verið okkar helsta við-
fangsefni," sagði Sigurður Stefánsson framkvæmdastjóri Vélaverk-
stæðis Sigurðar í samtali við Ægi. Vélaverkstæði Sigurðar ehf. er í
raun ungt fyrirtæki, hefur starfað síðan 1. janúar 1995 en það byggir
á meira en 40 ára grunni Vélaverkstæðis Sigurðar Sveinbjörnssonar
sem margir kannast við, enda flestir starfsmenn gamla fyrirtækisins í
starfi hjá hinu nýja.
„Það sem sérstaklega hefur verið á
döfinni eru kapalvindur en þegar tog-
ararnir hefja flottrollsveiðar á djúp-
miðum þá þurfa þeir oft að endurnýja
þær. Kapalvindur frá okkur hafa verið
sérlega eftirsóttar. Þær eru með full-
komnu stýrikerfi frá INS sem er einnig
notað sem autotroll á stærri spil og
tryggir örugga stjórn en þetta
autotrollkerfi hefur reynst alveg sér-
lega vel og hefur talsverða útbreiðslu í
flotanum."
Vélaverkstæði Sigurðar smíðar tog-
spil og allt sem tengist spilkerfum og
er allt búið til á staðnum nema mótor-
arnir. Spilin em háþrýst vökvaspil búin
fullkomnum stýringum eftir óskum
kaupandans hverju sinni.
Stærstu spilin sem Vélaverkstæði
Sigurðar framleiðir eru með 50 tonna
togkraft.
Mörg skip meðal viðskiptavina
Meðal viðskiptavina Vélaverkstæð-
is Sigurðar í fiskiskipaflotanum eru
mörg skip og margvísleg en meðal
skipa sem búin eru kapalvindum frá
vélaverkstæðinu má nefna: Svalbak
EA, Sigurbjörgu ÓF, Vestmannaey VE,
Skagfirðing SK, Ms Anijksciai, Kiel,
Arnar HU, Wiesbaden, Víðir EA, Þern-
ey RE, Siglir SI, Harðbak EA, Kaldbak
EA, Bretting NK, Akraberg, Júlíus
Geirmundsson ÍS og Venus HF.
Þegar rætt er um spil og spilkerfi á
það ekki einungis við togspilin sjálf
því um borð í einum togara eru
nokkrar gerðir og verkstæðið smíðar
og setur upp togspil, grandaraspil,
kapalvindur, flotvörpuvindur, akker-
isvindur og hjálparvindur eftir þörf-
um.
„Þetta getur verið stöðluð hönnun
sem er löguð að hverju skipi fyrir sig
en við sérhönnum einnig lausnir sem
henta nákvæmlega fyrir hvert skip."
Fyrirbyggjnndi viðhald
Sigurður sagði að viðhald á fiski-
skipum væri yfirleitt tekið fyrir eftir
þörf og farið í hvert verk þegar komið
væri að því. Þó væri full ástæða fyrir ís-
lenska útgerðarmenn að taka upp fyr-
irbyggjandi viðhald og gera þjónustu-
samning við eitt verkstæði.
Það verkefni sem Vélaverkstæði Sig-
urðar er nú að fást við er að smíða og
setja niður flotvörpuvindu í stóran
rússneskan verksmiðjutogara sem ver-
ið er að gera umfangsmiklar breytingar
á. Mörg fyrirtæki koma að verkinu en
að sögn Sigurðar gengur það vel en
Sigurður Stefánsson fratnkvœmdastjóri
Vélaverkstœðis Sigtirðar.
verkstæðið hefur áður tekið þátt í svip-
uðum verkefnum.
Sigurður sagði að í gerð spila og spil-
tækni hefðu ekki orðið neinar bylting-
ar á síðustu áratugum en mikil þróun
hefði orðið í útfærslu mótora og stýri-
kerfa.
Sýnishorn á sýningu
Vélaverkstæði Sigurðar verður með
bás, D-50 á sjávarútvegssýningunni
og þar verður sett upp sýnishorn af
framleiðslu fyrirtækisins sem við-
skiptavinir og væntanlegir viðskipta-
vinir geta virt fyrir sér. Sigurður sagð-
ist vonast til að sem flestir hefðu við-
dvöl og leituðu sér upplýsinga um þá
þjónustu sem verkstæðið býður ís-
lenskum sjávarútvegi. □
80 ÆGIR