Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 82
Límtré hf
Yleiningar fyrir fiskvinnsluna
„Við höfum tekið ríkan þátt í því uppbyggingarstarfi sem nú fer fram í
fiskvinnslu víða um land. Meðal annars höfum við tekið þátt í upp-
byggingu rækjuverksmiðja á ísafirði, í Bolungarvík, á Siglufirði og á
Húsavík. Menn nýta sér í vaxandi mæli þær lausnir sem við bjóðum
fiskiðnaðinum," sagði Unnur Ólafsdóttir tæknifræðingur hjá Límtré í
samtali við Ægi.
Límtré er eina fyrirtækið sinnar teg-
undar á landinu og var stofnað austur á
Flúðum 1982 og framleiðir, eins og nafn-
ið bendir til, límtré fyrir byggingariðnað-
inn. Þau þáttaskil urðu í starfsemi fyrir-
tækisins um áramótin 1994/95 að Límtré
keypti verksmiðju Yleiningar hf. í
Reykholti í Biskupstungum og síðan hef-
ur fyrirtækið verið rekið undir nafni Lím-
trés. Baklandið og framleiðslan er enn
austur í sveitum en tækni- og söludeild er
í Ármúla 11 í Reykjavík. Starfsmenn eru
alls á 4. tuginn.
Yleiningar eru léttar einingar úr
polyúrethan, ýmist klæddar með plöt-
um úr stáli, krossviði eða gifsi. Þær eru
alíslensk framleiðsla vottaðar af viður-
kenndum fagaðilum og stofnunum. Þær
eru notaðar sem burðarklæðningar á út-
veggi og þök, allt frá íbúðarhúsum upp í
íþróttahallir. Vegna frábærrar einangr-
unar eru þær vinsælar í frysti- og kæli-
klefa, milliveggi og víðar í fiskvinnslu,
rækjuvinnslu og almennt í matvælaiðn-
aði.
„Við bjóðum ákveðna heildarlausn
sem byggist á burðargrind úr límtré og
þak- og veggeiningum úr yleiningum.
Síðan eru það milliveggir fyrir matvæla-
iðnað úr yleiningum, frystiklefar og kæli-
klefar og einnig framleiðum við hurðir
fyrir frysti- og kæliklefa," sagði Unnur.
Hún sagði að enn væru ekki til íslenskir
staðlar yfir þau efni sem nota mætti í
byggingar í matvælaiðnaði þó mikil fram-
för eða vakning í þeim efnum hefði orðið
á undanfömum árum í kjölfar stofnunar
Fiskistofu og stóraukinnar umræðu um
gæðastjórnun. Yleiningar í kæli- og frysti-
klefa bjóðast í þremur mismunandi
þykktum og allt að 12 metra langar.
„Við verðum vör við mikla uppsveiflu í
fiskiðnaði. Það er kannski ekki mikið um
nýbyggingar en margir eru að byggja við
eldri hús og lagfæra og þar komum við
sterk inn því okkar framleiðsla hentar vel
til lausna sem em sérhannaðar fyrir hvern
og einn."
Límtré lagði m.a. til efnið í endurnýj-
un Ósvarar í Bolungarvík, Bakka í Hnífs-
dal, Básafells á ísafirði, Fiskiðjusamlags
Húsavíkur, Þormóðs ramma á Siglufirði
og Ingimundar á sama stað.
„Fyrir fáum árum vorum við einkum
að byggja íþróttahús en nú er tímabil þar
sem við erum einnig í miklu samstarfi við
fiskiðnaðinn og það er mjög skemmti-
legt."
Að sögn Unnar eru helstu kostir ylein-
inganna fyrir matvælaiðnað að yfirborð
þeirra er auðvelt í þrifum og þolir öll við-
urkennd hreinsiefni. Einingarnar eru
sterkar, léttar og gífurlega rakaþolnar og
fljótlegar og auðveldar í uppsetningu. í
stuttu máli má segja að þær þoli mjög vel
allt það mikla álag sem fylgir iðnaði eins
og fiskvinnslu.
„Við teljum okkur vel samkeppnisfær í
verði. Yleiningar eru oft bornar saman við
innfluttar lausnir og oft er það ósann-
gjarn samanburður þar sem ýmsir liðir,
s.s. flutningskostnaður, gleymist. Það
verður einnig að horfa til þátta eins og
tímans sem það tekur að reisa húsið og
koma því á staðinn. Auk þess hefur
nálægð verksmiðjunnar við markaðinn
sitt að segja ef eitthvað kemur uppá.
Okkar vörur, límtréð og einingarnar,
eru afskaplega sveigjanlegar í notkun. Það
er því afar auðvelt að laga þær að því sem
fyrir er og þess vegna henta þær vel til
viðbygginga og endurbóta. Auðvitað er
svo hinn endanlegi frágangur í höndum
þeirra iðnaðarmanna sem setja þær upp."
Fjórir tæknimenn vinna hjá Límtré en
fyrirtækið kýs frekar að hafa samstarf við
arkitekta um endanlega hönnun frekar en
að vera með sína eigin.
„Það má segja að við hlustum mjög
grannt á viðskiptavinina og okkar útfærsl-
ur fara jafnlangt og sköpunargleði þeirra
og hugmyndir ná," sagði Unnur. □
82 ÆGIR