Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 94
Kæling hf. í Reykjavík
Rótgróið fyrirtæki í kælibransanum
Kæling hf. war stofnað árið 1968 og er þwí með elstu starfandi fyrir-
tækjum í sinni grein í landinu.
Strax á fyrstu árunum war farið að flytja inn frystiwélar og skyldan bún-
að til kæli- og frystikerfa. í dag býður fyrirtækið nánast allt smátt sem
stórt, tæki og efni fyrir kæli- og frystikerfi ásamt þwí að annast hönn-
un, uppsetningu, wiðhald og almenna þjónustu í kringum kerfin.
Helstu umboð fyrirtækisins í dag eru
þýsk en fyrirtækið hefur einmitt lagt sig
fram við að bjóða aðeins hágæðavöru.
Má þar nefna þjöppur, eimsvala og
geyma fra BITZER, eimara og loftkælda
eimsvala frá KUBA, eimara og eimsvala
fyrir ammóníak og fleiri miðla frá
GUNTER, þensluloka og stýritæki frá
FLICA og kælimiðilsdælur frá HERMET-
IC. Einnig býður fyrirtækið vörur frá
Norðurlöndum, s.s. digital hitamæla og
stýringar frá OJ-ELEKTRONIC, loka og
stýribúnað frá JOHNSON CONTROL í
Noregi sem er dreifingaraðili fyrir
PENN á Norðurlöndum. í rúmlega 20
ár hefur fyrirtækið haft umboð fyrir
japanska fyrirtækið Mayekawa mfg. á
íslandi en það framleiðir stórar frysti-
vélar MYCOM og er með elstu fram-
leiðendum stórra skrúfuþjappa í heim-
inum nú. M.a. má nefna að vélbúnaður
til djúpfrystingar á túnfiski niður í
-55-65°C er eitt af aðalsmerkjum
þeirra.
Auk ofangreinds búnaðar býður Kæl-
ing hf. fjöldann allan af búnaði s.s hrað-
frystitæki frá ABB á Ítalíu, stýritæki frá
ALCO SPORLAN og PARKER í USA, kæli-
og frystiklefasamlokur frá ISOBAR í Belg-
íu, auk þess fjöldann allan af stýribúnaði
og varahlutum m.a. frá USA sem sér-
pöntunarvöru.
Þjónusta við fiskvinnsluna og fiski-
skipaflotann hefur alltaf verið stór þáttur
í starfi Kælingar. Ennfremur hafa þeir
þjónað fraktskipaflotanum og var m.a.
fyrsta kælikerfið sem sett var upp í frakt-
skip á íslandi árið 1975, sett upp af Kæl-
ingu hf. í m/s Eldvík en það skip var í
saltflutningum til Miðjarðarhafsland-
anna.
Árið 1983 smíðaði Kæling hf. fyrsta
lausfrystitækið fyrir rækju og hafa verið
framleidd allmörg slík síðan þrátt fyrir
harða samkeppni erlendis frá en Jón
Torfason, framkvæmdastjóri Kælingar,
segir að bankastofnanir á íslandi hafi alla
tíð neitað íslenskum fyrirtækjum um fyr-
irgreiðslu í formi ábyrgða ef um innlend
viðskipti er að ræða. Aftur á móti sé slíkt
algengt í milliríkjaviðskiptum og þá
gjarnan lítil fyrirstaða fyrir slíkum fyrir-
greiðslum af hálfu bankanna. Þetta
skekkir samkeppnisstöðu innlendra fyr-
irtækja verulega og þarf að lagfæra.
Árið 1990 setti fyrirtækið upp í sam-
vinnu við Gram A/S frystikerfi við
skautasvellið í Laugardal. Kerfið keyrir á
R-22 með pækilkerfi.
Árið 1991 keypti fyrirtækið fram-
leiðslurétt og lager fyrirtækisins ísvélar
hf. og hóf að framleiða ísvélar. Fram-
leiðsla þeirra hefur gengið þokkalega og
hafa þær verið framleiddar bæði á inn-
lendan sem erlendan markað.
Árið 1993 gerði fyrirtækið samning
við Icemac hf. um framleiðslu og sölu á
40 tonna ísverksmiðju til Rússlands.
Verksmiðjan var staðsett í þremur 40
feta gámum, tveimur sem ísgeymsla með
snigil- og ísblásarakerfi til losunar og
einn ofan á með ísvélum framleiddum af
Kælingu hf.
Slík kerfi sem þessi eru vel til þess fall-
in að nota t.d. við loðnu- og síldarfryst-
ingu vegna möguleika á að flytja kerfin
til og nota á öðrum stað á öðrum tímum
ársins.
Jón Torfason frainkvœmdastjóri Kœlingar.
Á síðasta ári hannaði og setti fyrir-
tækið upp ammóníakfrystikerfi hjá Frið-
þjófi hf. á Eskifirði. Það sem gerði verkið
athyglisvert var að frystivélar, geymar
o.fl., var sett í 20 feta gám rneð eimsval-
ann staðsettan á toppi. Allar rörlagnir og
annar búnaður var forunnið á verkstæði
fyrirtækisins, aðeins þurfti að tengja á
milli gámsins og tveggja hraðfrystitækja.
Niðurstaðan varð sú að uppsetning bún-
aðarins tók aðeins 3 daga á staðnum sem
gerði verkið mun hagkvæmara en ella
auk þess að stytta verktímann verulega.
{ dag starfa hjá fyrirtækinu 10 fast-
ráðnir menn auk íhlaupamanna. Seinni
árin hefur fyrirtækið haslað sér völl með-
al stærri iðnaðarkerfa í frystihúsunum og
í því sambandi verið að þjálfa upp vott-
aða starfsmenn til suðu á stálrörum.
Engu að síður kappkostar fyrirtækið að
bjóða áfram þjónustu sína við aðra við-
skiptavini með smærri kerfi allt frá ís-
skápum og uppúr. □
94 ÆGIR