Ægir - 01.09.1996, Síða 114
Marco hf.:
Girnislínan það
sem koma skal
Fyrirtækið Marco á Langholtsvegi er í hugum margra þekktast fyrir
innflutning á húsgögnum, nánar tiltekið amerískum rúmum sem hafa
verið fyrirferðarmikil í sölu fyrirtækisins undanfarin ár. Marco stendur
hinsvegar traustum fótum í veiðarfærainnflutningi og hefur gert í tæp-
lega 40 ár.
„Við erum í samstarfi við norskt fyr-
irtæki sem heitir Nor-Lanka og fram-
leiðir allt til línuveiða og handfæra-
veiða auk þess að búa til álagildrur og
fleira áhugavert," sagði Atli Hermanns-
son sölustjóri veiðarfæradeildar Marco
í samtali við Ægi.
Eins og nafnið bendir til er fyrirtæki
þetta í eigu Norðmanns og Asíubúa en
verksmiðjan er staðsett á Sri Lanka og
þar vinna rúmlega 300 manns. Nær öll
framleiðsla fyrirtækisins fer á Noregs-
markað og í flokki smábáta 20 tonn og
minni hefur Nor-Lanka náð rúmlega
90% markaðshlutdeild á tiltölulega
fáum árum. Þetta byggist á vandaðri
vöru og hagstæðu verði en norskir
trillukarlar eru ekki síður kröfuharðir
en þeir íslensku.
„Þetta fyrirtæki framleiðir sínar lín-
ur úr fyrsta flokks pólyester frá Du
Pont sem er amerískt hátæknifyrir-
tæki. Meðal þess sem hefur notið mik-
illa vinsælda frá þeim eru girnislínur
fyrir minni báta sem njóta mikilla vin-
sælda í Noregi en hafa ekki náð
neinni fótfestu hér á landi ennþá. Við
höfum hinsvegar fengið aðila á Suður-
eyri til þess að prófa girnislínuna fyrir
okkur og hún hefur reynst frábærlega
vel. Á sjávarútvegssýningunni mun-
um við svo kynna búnað til þess að
stokka girnislínuna upp um borð í
þessum smærri bátum og þá er ég viss
Atli Hermannsson sölustjóri veiðarfœra-
deildar Marco.
um að margir munu sjá hve mikiu
betri kostur hún er. Línan er sig-
urnaglalína, einþáttungur, og þar sem
hún er úr girni er hún auðvitað miklu
fisknari við ákveðnar aðstæður en
venjulegar hefðbundnar línur," sagði
Atli.
Marco hefur einnig flutt inn hefð-
bundnar polyester-sigurnaglalínur frá
Nor-Lanka og selt nokkuð af þeim tii
Vestfjarða en Vestfirðingar hafa löng-
um getið sér gott orð fyrir að vera
framarlega í línuveiðum.
Marco haslaði sér völl í innflutningi
á veiðarfærum upp úr 1960 og flutti
inn mikið magn af t.d. síldarnótum
meðan síldarárin stóðu yfir. Á blóma-
tíma þess var Marco ásamt Asiaco nær
einrátt á markaðnum í innflutningi á
veiðarfærum.
„Það má segja að þetta breyttist
upp úr 1980 þegar samkeppni í veið-
arfærainnflutningi jókst mjög mikið
samfara samdrætti í greininni," sagði
Kristján Árnason framkvæmdastjóri í
samtali við Ægi en hann keypti veið-
arfæraumboðin af Marco 1988 og hóf
þegar að styrkja og auka þann þátt í
rekstrinum auk þess sem hann hratt
af stað þeim innflutningi á húsgögn-
um sem fyrirtækið er svo þekkt fyrir í
dag. Lengi vel var Marco til húsa í
miðbæ Reykjavíkur, við Aðalstræti og
Mýragötu, en uppúr 1980 fluttist það
að Langholtsvegi þar sem því hefur
með nýjum eigendum vaxið fiskur
um hrygg. Nýlega bætti fyrirtækið við
sig heilli jarðhæð undir Fóstbræðra-
heimilinu og þar er veiðarfæradeildin
til húsa.
„Okkar stærstu viðskiptavinir eru
bátaflotinn og útgerðarmenn báta. Við
skiptum einnig mikið við stór útgerð-
arfyrirtæki sem reka sín eigin veiðar-
færaverkstæði og kaupa af okkur ýms-
ar rekstrarvörur, " sagði Kristján.
Auk Nor-Lanka sem þegar er nefnt
hefur Marco umboð fyrir tvo stóra
framleiðendur sem margir útgerðar-
menn þekkja til margra ára. Annars-
vegar er það japanski netaframleiðand-
in Momoi sem er einn stærsti fram-
leiðandi í girnisnetum í heiminum og
rekur verksmiðjur í þremur heimsálf-
um. Marco kaupir öll net frá verk-
smiðju þeirra í Indónesíu og flytur
hingað en að sögn Kristjáns þá hafa
vinsældir þessara neta aukist stöðugt
enda standast þau samanburð við
japönsk net, en eru mun ódýrari.
Hitt fyrirtækið heitir Cotesi og hefur
bækistöðvar sínar í Portúgal. Þaðan
flytur Marco inn trollgarn, tóg og línur
af öllum stærðum og gerðum og selur
grimmt. Netaverkstæði og skip kaupa
mikið af trollgarni til viðgerða og tóg-
in eru notuð í ýmsa hluta veiðarfær-
anna og samsetningar.
„Við reynum alltaf að vera með full-
an kjallarann af garni og tógi en það
gengur iila því þetta rennur út," sagði
Kristján að lokum. □
114 ÆGIR