Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 120
Marvin:
Byltingarkennd
flakaskurðarvél
„Nýja flakaskurðarvélin er að mörgu leyti byltingarkennd uppfinning.
Hún kemur til með að skera flök í þær stærðir sem óskað er eftir, ná-
kvæmnin verður mikil. Þetta þýðir að hráefnið nýtist betur og kaup-
andinn fær öll fiskstykkin jafn þung. Það er það sem kúnninn vill,“
segir Ingvar Ingvarsson framkvæmdastjóri Marvins.
Fyrirtækið er um þessar mundir að
flytja úr Kópavoginum til Reykjavíkur
en það hefur verið með höfuðstöðvar í
Kópavogi í um ár. Það hefur sérhæft sig
í að selja notaðar og nýjar fiskvinnslu-
vélar, sérstaka þvottavél til að þvo fiski-
kör og beituskurðarvélina Saxa.
Flakaskurðarvélin er íslensk að ætt og
uppruna, sá sem hannar hana og smíð-
ar er vélfræðingurinn og þúsundþjala-
smiðurinn Alexander Sigurðsson. Hann
hafði áður smíðað vél svipaða þessari en
ekki eins fullkomna. Samstarf þeirra
Ingvars og Alexanders hófst fyrir um ári
og nú eru þeir að leita að traustum sam-
starfsaðila sem er reiðubúinn að prófa
flakaskurðarvélina með þeim. Á meðan
á Sjávárutvegssýningunni stendur eru
Ingvar og Alexander reiðubúnir að sýna
áhugasömum vélina en hægt er að
skoða hana að Hamarshöfða 7 í Reykja-
vík.
„Það er ljóst að vél á borð við flaka-
skurðarvélina sem við höfum til þessa
kallað ES-12 hefur marga kosti. Hún er
tölvustýrð, það þarf færra starfsfólk til
að vinna fiskinn og hún eykur verð-
mæti afurðanna," segir Ingvar. Hann
segir að afköst vélarinnar séu góð og
hún ætti að henta í öll frystihús þar
sem þörf er á nákvæmum bitaskurði.
Marvin hefur selt karaþvottavélina
3S um hríð. Kröfur um hreinlækti í fisk-
vinnslu eru stöðugt að aukast og sóða-
skapur líðst ekki lengur. Karaþvottavélin
er sjálfvirk, fiskikörin eru sett á snún-
ingspall inni í þvottaklefa, sem lokast.
Vélin sér síðan um að þvo, hún úðar
volgu vatni með sápu yfir karið og
burstar sjá um að hreinsa það bæði að
utan og innan. Þrýstingur vatnsins er
ekki það mikill að hann skemmi yfir-
borð karsins. Þvottatími og sápustilling
er stillanleg. Hægt er að þvo frá 15 kör-
um á klukkstund en afköstin fara að
sjálfsögðu eftir því hveru langur þvotta-
tími er valinn. Það er hægt að þvo fleira
en kör í vélinni því hægt er að láta 3S
vélina þvo fiskikassa, frystipönnur og
Eurobretti með þar til gerði grind.
„Þvottavélin hefur líkað vel og eins og
flakaskurðarvélin byggjir hún á íslensku
hugviti og er framleidd hér. Vélarnar
eru smíðaðar úr ryðfríu stáli, burstarnir
eru úr nælonhárum, þeir endast því vel.
Þær eru sterkar og viðhaldið er í lág-
marki."
Eins og áður sagði selur Marvin
beituskurðarvél sem heitir því skemmti-
lega nafni Saxi. „Eins og flakaskurðar-
vélin sparar Saxi tíma, peninga og hrá-
efni. Hann sér um að skera beituna í
réttar stærðir og er fjórum sinnum fljót-
ari en meðalmaður og nýtir hana mörg-
um sinnum betur. Saxi er afar einfaldur
í notkun og viðhaldi," segir Ingvar.
En úr einu í annað. Það sem Ingvar
er kannski hvað þekktastur fyrir er að
Ingvar Ingvarsson framkvcemdastjóri hjá
Marvin.
hafa milligöngu á sölu á notuðum og
nýjum fiskvinnsluvélum. Viðskiptin eru
ekki einskorðuð við ísland því hann
hefur haft milligöngu um sölu á slíkum
vélum út um allan heim. „Notaðar fisk-
vinnsluvélar eru oft betri en nýjar því
þær hafa slípast til. Eigendurnir halda
vélunum undantekningarlaust vel við
því þeir vita sem er að ef þeir trassa við-
haldið, þá minnkar bæði nýting og
framleiðsla og það vill ekki nokkur
maður," segir framkvæmdastjórinn.
Hann segir að kaupendur að notuðum
vélum séu bæði eigendur frystihúsa og
frystitogara. Jafnt þeir sem eru að hefja
rekstur og þeir sem eru að bæta við
vélakosti. „Menn spara sér milljónir
með því að kaupa notað. Ég er með vél-
arnar á skrá hjá mér og kaupandinn
lætur mig vita hvað hann vanhagar um.
Ef ég finn ekki tækið í mínum skrám
leita ég einfaldlega að því og oftast hefst
upp á því sem verið er að leita að. Það
tekur yfirleitt mjög skamman tíma að
finna það sem um er beðið," segir Ingv-
ar. Hann kaupir vélarnar í Hollandi,
Danmörku, Noregi, Bretlandi og
Kanada hefur selt þær á milli þessara
landa og alla leið til Afríku en þar er
góður markaður fyrir notaðar vélar. □
120 ÆGIR