Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1996, Síða 126

Ægir - 01.09.1996, Síða 126
Rafhús Skemmtilegur dýptarmælir Sigurður Jónsson framkvœmdastjóri hjá Rafhús. „Við erum nánast eingöngu í fiskileitar- og siglingatækjum og munum á Sjávarútvegssýningunni sýna það nýjasta í ratsjám og dýptarmælum. Það er kannski ekki hægt að tala um einhverja sérstaka byltingu í þessu en við hlökkum til að sýna mönnum nýja truflanadeyfa. Það hefur alltaf verið hálfgerður vandræðagangur með þessar dagsbirturatsjár en nú er JRC að kynna nýja línu sem býður upp á fyrirtaks viðbót við góða deyfingu á sjó og regntrufl- un. JRC hefur einkaleyfi fyrir það sem kallað er „RAIN RATE“ en það fjarlægir allar smátruflanir án þess að hafa áhrif á merki, litla báta eða land,“ segir Sigurður Jónsson hjá Rafhúsi ehf. Sigurður segir Rafhús hafa umboð fyr- ir Raytheon Marine Europe, Raytheon Electronics Kiel og eftirtalin merki sem eru í eigu Raytheon: Standard, Radio, Apelco og Autohelm. Ennfremur sé fyr- irtækið með umboð fyrir Japan Radio Co. ORC). Hann segir Raytheon og JRC hafa verið í samvinnu um smiði og sölu á siglingar- og fiskileitartækjum og að flestir sjómenn þekki þessi merki. Nú liggi það fyrir að JRC-tækin verði meira áberandi í tækjalínu fyrirtækjanna. „Nýjasti dýptarmælirinn er gríðar- lega sjálfvirkur og hefur upp á fleiri skemmtilega hluti að bjóða, svo sem breytilega tíðni. Hann má nota með hinum ýmsu botnstykkjum og lagar sig sjálfur að þeim. Þessi mælir er alveg nýr en JFV-250, sem er stærri, hefur verið til reynslu í bát í um 6 mánuði og komið vel út." Sigurður segir Rafhús ehf. eingöngu flytja tækin inn, setja þau upp og þjón- usta viðskiptavinina, fiskiskipin stór og smá, með allt í sambandi við þau tæki sem það selji. Fyrirtækið hafi áður fyrr verið að smíða á milli þeirra tækja sem það flutti inn en geri það ekki lengur. Það sé heldur ekki í beinni þróunar- vinnu. „Við einbeitum okkur fyrst og fremst að íslenskum kaupendum og ég hugsa að við séum aðeins að flytja út um eitt prósent af því sem við seljum. Rússarnir hafa verið okkar stærstu viðskiptavinir en það er erfitt fyrir okkur að vera flytja út þessar vörur. Málið er að þeir sem selja okkur hafa viljað vernda umboðs- menn sína um allan heim. Það held ég líka að sé nokkuð skynsamlegt," segir Sigurður. Aðspurður um þróunina í umrædd- um búnaði, ratsjánum og dýptarmæl- unum, segir Sigurður að hún sé gríðar- leg. Það sé nánast orðið mögulegt að gera hvað sem er með þessu. „í einu tæki er kannski ferilskrifari (plotter) og dýptarmælir og í sjálfu sér væri ekkert því til fyrirstöðu að tengja við það ratsjárloftnet og nota tækið sem radar líka. Þróunin er í þá átt að geta notað sama skjáinn á fleiri en eitt og fleiri en tvö tæki í einu. Ég sé það fyrir mér að menn fari að nota einn skjá fyr- ir öll þessi siglinga- og fiskileitartæki. Menn þurfa vitaskuld að velja skjá af réttri stærð og gerð og með það í huga hvað þeir ætli sér að gera. Þessi sex til átta ára gamli draumur verður orðinn að veruleika áður en langt um líður," segir Sigurður. Aðspurður hvað menn séu farnir að nota í þessum dúr segist Sigurður vera farinn að sjá ratsjármynd lagða ofan á mynd úr ferilskrifara til þess að bera þannig saman merki frá radarnum og það sem gert er með staðsetningartækj- um og fyrirfram teiknaðri mynd. Sigurður segir tvær ratsjár vera á meðal þess sem Rafhús ætli að sýna á Sjávarútvegssýningunni 1996, JMA- 2253 ogJMA-2254. Hann segir Rafhúss- menn hafa lengi séð að markaður hafi verið fyrir einfaldar en góðar ratsjár, rat- sjár sem þó hefðu ekki mikinn fjölda af innbyggðum aukahlutum sem menn hefðu ekkert með að gera. Sú fyrrnefnda er með 10" mynd, 32 mílna lang- drægni, hattloftnet með 4(geisla og 4 kw sendiorku. Hin, JMA-2254, hafi sama skjá en 4 feta loftnet, 2( geisla og 48 mílna langdrægni. Báðar ratsjárnar er hægt að tengja við kompás og stað- setningartæki að sögn Sigurðar. Hann nefnir átta aðra hluti um mikilvægar aðgerðir: Stofna upp, norður upp, veg- punktar á skjá, eigin staðsetning, L/B, vatnsþétt lyklaborð og örvahnappar, stækkun á daufu merki, einfaldur val- rofi og hnappur fyrir skalaljós. Rafhús er með tvo til fjóra starfs- menn og síðan vinna tveir til þrír smenn hjá þjónustufyrirtækinu, Tækni- vík. Rafhús er staðsett í Reykjavík en Tæknivík er með aðalstöðvar sínar í Keflavík og útibú í Grindavík og Reykja- vík. □ 1 26 ÆGIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.