Ægir - 01.09.1996, Side 134
ungt í anda
Vald. Poulsen hf.:
Gamalt en
„Vald. Poulsen hf. er gamalt og rótgróið fyrirtæki sem hefur fylgt
mörgum kynslóðum iðnaðarmanna og viðskiptavina. Við erum ungir í
anda þrátt fyrir háan aldur, fylgjumst grannt með tímanum og erum í
takt við hann,“ sagði Ingólfur Árnason framkvæmdastjóri Vald. Poul-
sen í samtali við Ægi.
„Vald.Poulsen hf. var stofnað í
þeirri mynd sem það er nú, árið 1945
en sögu þess má í raun rekja allt aftur
til ársins 1905 þegar danskur járn-
steypumaður, Valdemar Poulsen að
nafni, kom til íslands og fór að vinna
hjá Járnsteypu Reykjavíkur.
Við vitum ekki nákvæmlega hvenær
hann hóf eigin rekstur en elsta auglýs-
ing sem við höfum rekist á er frá árinu
1910, svo við vitum að þá var hann
farinn að flytja inn vörur og selja."
Vald. Poulsen er þessvegna með
eldri fyrirtækjum og staðfesta telst til
aðalsmerkja fyrirtækisins. Þar eru 12
starfsmenn en Ingólfur hefur starfað
þar síðan 1966 sem mörgum þætti all-
nokkuð en elsti starfsmaður fyrirtækis-
ins er með 56 ára starfsaldur að baki.
Hann heitir Magnús Oddsson og hef-
ur unnið hjá Vald. Poulsen frá 1940 en
minnkaði nýlega við sig og er í hálfu
starfi.
Vald. Poulsen var um tíma með
bækistöðvar sínar á Klapparstíg en hef-
ur um langa hríð verið í eigin húsnæði
á Suðurlandsbraut 10.
„í dag snýst starfsemi fyrirtækisins,
eins og áður um innflutning á vörum
og verkfærum fyrir iðnaðinn. Áhersl-
urnar breytast í áranna rás en okkar
viðskiptavinir eru alltaf þeir sömu. Við
erum ekkert í því sem eru kölluð heim-
ilisverkfæri enda myndi okkar við-
skiptavinum ekki falla það."
Sá innflutningur sem við leggjum
mesta áherslu á tengist drifbúnaði.
Rafmótorar frá Brook-Hansen, sem
áður hét Brook-Crompton, aflúttök,
niðurfærslugírar, reimskífur, reimar,
tannhjól og allt sem tengist slíkum
tæknilegum lausnum eru það sem við
viljum vera sterkir í," sagði Ingólfur.
Ingólfur Ámason framkvœmdastjóri Vald.
Poulsen.
Einnig flytjum við inn hraðastýr-
ingar fyrir rafmótora í vaxandi mæli.
Þessar vörur koma að mestu leyti frá
Bretlandi, mótorarnir eru t.d. breskir
en gírar og tannhjól koma mikið frá
Ítalíu.
Einnig flytjum við inn mikið af leg-
um sem heita NSK. Þetta eru japanskir
framleiðendur sem eiga verksmiðjur
víða um heim, þar á meðal í Bretlandi
og við flytjum inn allar okkar legur
þaðan.
Hitt er svo annað mál að þegar legur
eru annars vegar á enginn framleið-
andi allt svo við leitum uppi þær legur
sem viðskiptavininn vantar og höfum
því selt nær allar gerðir lega hér í gegn-
um tíðina."
Auk drifbúnaðar og gíra eru lokar
stór hluti innflutnings Vald. Poulsen.
Þetta em einkum stórir sérhæfðir lokar
fyrir hitaveitur, vatnsveitur og annan
iðnað. Undir þetta falla ennfremur
ventlar, ventlakistur, lensilokar, síðu-
lokar, botnlokar og þessháttar í smáum
og stórum skipum. Þetta hefur Vald.
Poulsen selt sjávarútveginum um ára-
bil og dæmi eru um að slíkir lokar séu
sendir til erlendra skipasmíðastöðva
þar sem verið er að vinna við íslensk
skip.
Annað sem Vald. Poulsen flytur inn
og hefur jafnan lagt mikla áherslu á er
hjólabúnaður af ýmsu tagi til notkun-
ar í iðnaði. Þetta eru hjól undir vagna,
borð, hillur og annað.
Það er hinsvegar tímanna tákn að
þar sem menn notuðu áður hjól sem
lausnir I þessu eru nú notuð færibönd.
Þess vegna dró úr sölu á hjólabúnaði
eftir því sem sala jókst í rafmótorum
fyrir færibönd."
Vald. Poulsen hf. tekur ekki beinan
þátt í sjávarútvegssýningunni með
sjálfstæðum hætti en nokkrir við-
skiptavina þeirra hafa sett upp búnað
á sýningunni þar sem Vald. Poulsen
hefur komið mjög við sögu s.s. með
mótorum og öðru sem verður rækilega
merkt þeim.
Alls eru um 9000 vörunúmer á
boðstólum hjá Vald. Poulsen og
Ingólfur segir að það sé stefna fyrir-
tækisins að vera alltaf með vöruúrval í
takt við þarfir viðskiptavinanna. □
134 ÆGIR