Ægir - 01.09.1996, Síða 138
Póls hf.:
Viðskiptalöndin fleiri en
starfsmennirnir
„Við eru lítið fyrirtæki á stórum
markaði sem sést kannski best á
því að löndin sem við seljum vör-
ur okkar til eru fleiri en starfs-
menn fyrirtækisins, víða eigum
við ótrúlega stóra markaði miðað
við hve fyrirtækið er á heims-
mælikvarða örsmátt," sagði Hörð-
ur Ingólfsson markaðsstjóri Póls
hf. í samtali við Ægi. Póls er þrátt
fyrir meinta smæð að verða 18
ára og sýnir nokkrar nýjungar á
sjávarútvegssýningunni og er þar
fremst í flokki minnsta skipavog í
heimi.
„Þessi nýja vog hefur vakið mikla at-
hygli og er afrakstur þriggja ára þróun-
arvinnu," sagði Hörður. Vogin er þegar
komin um borð í eitt íslenskt fiskiskip
sem er Bessi ÍS frá Súðavík sem nýlega
var breytt í frystiskip.
Hraði nýju vogarinnar, P15, er meiri
en fyrri voga og álagsþol gegn höggum,
hnjaski og slíku og þessi vog er fullkom-
lega vatnsþétt. Auk þess að henta vel tii
vinnslu gerir smæð vogarinnar það að
verkum að hún er mjög vel til þess fall-
in að ferðast með hana hvert á land
sem er.
„Vogin er með rafhlöðum sem duga
nógu lengi tii þess að þú getur farið
með hana t.d. út að sjókvíum, vegið þar
nokkur hundruð fiska og svo þegar
heim er komið má tengja vogina við PC
tölvu og flytja upplýsingarnar inn á
hana," segir Hörður.
Þetta opnar mikla möguleika, t.d. fyr-
ir nótaskip sem vilja taka sýnishorn úr
aflanum úti á miðum, til þess að meta
með vísindalegum hætti þyngdardreif-
ingu aflans. Mjög fljótlegt er að vega
fiska í hundraðatali og vogin geymir ali-
ar upplýsingar og skilar þeim í línuriti
þegar eftir notkun. Þetta auðveldar
ákvarðanatöku í sambandi við nýtingu
aflans sem geta skipt sköpum. Nú geta
slíkar ákvarðanir byggst á mælingum í
stað sjónmats.
„Það er kominn nýr heili í þessa gerð
voga sem gerir hana hraðvirkari og ná-
kvæmari en eldri gerðir. Notendavið-
mót hennar er vinsamlegra en áður var
og með texta á skjá er stöðugt upplýs-
ingaflæði milli vogarinnar og notand-
ans."
Að sögn Harðar hefur þessi smá-
vaxna vog, eða undanfari hennar, feng-
ið mjög góðar viðtökur því mjög víða
reyndist mikil þörf fyrir færanlega vog
af þessu tagi. Norski markaðurinn hef-
ur tekið mjög vel við færanlegu voginni
og markaður í Suður-Ameríku hefur
sýnt mikinn áhuga.
Á þessari sjávarútvegssýningu leggur
Póls mesta áherslu á þessa nýju, færan-
legu skipavog en þetta er aðeins ein af
nýjungunum. Vogin er komin í fram-
leiðslu en hefur ekki verið kynnt á ís-
landi áður. Auk þessa verður sýnd ný
gerð af skipavog fyrir framleiðslulínur
sem þykir taka eldri gerðum nokkuð
fram. Einnig verður kynnt ný gerð af
samvalsvél en slíkar vélar hafa jafnan
verið ríkur þáttur í framleiðslu Póls
ásamt skipavogunum.
Má segja að fyrirtækið sé á beinni
braut í sinni framleiðslu eða er senni-
legt að Póls fari í náinni framtíð að færa
út kvíarnar í framleiðslu sinni?
„Við hættum ekki að gera það sem
við gemm vel til þess að fara að gera eitt-
hvað illa. Við eru þannig séð á beinni
braut. Markaðir eru gífurlega stórir og
endalaus verkefni framundan. Fyrirtæki
eins lítið og Póls hefur nóg að gera.
Það má segja að eftir því sem mark-
Hörður Ingólfsson markaðsstjóri Póls.
aðir okkar hafa stækkað hefur fram-
leiðsluvörum fyrirtækisins fækkað.
Markaðssetning er dýr og flókin og því
höfum við smátt og smátt einbeitt okk-
ur að færri vörum en betri og einkum
þeim sem hafa víðtækara notagildi en
einungis hér á íslandi."
Hörður bendir á að pallvogin, sem
mest er notuð frá Póls og fellur inn í
margskonar matvælaframleiðslu, er nú
framleidd í tæplega 10 löndum. Póls á
ísafirði framleiðir slíkar vogir einungis
fyrir íslenskan markað. Þannig hefur
fyrirtækið brugðist við þeim takmörk-
uðu vaxtarmöguleikum sem felast •
staðsetningu á ísafirði.
„Það má segja að á íslenskum mark-
aði höfum við varla lengur neinar bylt-
ingar að bjóða. Þegar við knýjum dyra
á erlendum mörkuðum þá rekum við
okkur hinsvegar á að þar eru óplægðir
akrar og hlutir sem þykja hversdagslegir
og sjálfsagðir í íslenskum fiskiðnaði eru
byltingarkenndir þar."
Hörður segir að víða í heiminum sé
verið að byggja upp fiskiðnað af mikl-
um krafti og þar geti íslendingar lagt
mikið af mörkum og hafi gert það eins
og dæmin sanna.
„Okkar besti ambassador hjá Póls er
skipavogin en hún hefur reynst okkur
afar haldgott tæki til að komast inn á
markaðina." □
138 ÆGIR