Ægir - 01.09.1996, Side 156
Glitnir hf.:
Fjármögnun atvinnutækja
„Mjög hentugt er að nota þjónustu Glitnis til þess að fjármagna kaup á
margskonar búnaði fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu. Þessa þjónustu
hafa fyrirtæki í sjávarútvegi nýtt sér í vaxandi mæli og hér mætti nefna
tæki á borð við radara og fiskileitartæki, vinnslulínur fyrir fiskvinnslu,
frysta, færibönd, flokkara, dælubúnað og lyftara," sagði Þórður Kr.
Jóhannesson, forstöðumaður ráðgjafar- og fjármögnunarsviðs Glitn-
is hf. í samtali við Ægi. „Á árunum áður fór það orðspor af fjármögn-
unarfyrirtækjum að þjónusta þeirra væri dýr. Þetta var á tímum þegar
fjármagnskostnaður hérlendis var almennt hár og þessi fyrirtæki ung
að árum. Eftir því sem Glitnir hefur eflst og tekist hefur að ná niður
fjármagnskostnaði hafa kjör viðskiptavina Glitnis batnað jafnt og þétt.
Nú býðst viðskiptavinum Glitnis fjármögnunarþjónusta sem er mjög
hagkvæm miðað við aðra kosti á markaðnum."
Glitnir er 11 ára gamalt fjármögnun-
arfyrirtæki og er stærst sambærilegra
fyrirtækja á íslenskum markaði. Glitnir
er dótturfyrirtæki íslandsbanka og
myndar ásamt bankanum og Verðbréfa-
markaði íslandsbanka svokallaða ís-
landsbankasveit sem veitir alhliða fjár-
málaþjónustu. Glitnir var fyrsta fyrir-
tæki sinnar tegundar á markaðnum.
Meginstarfsemi Glitnis er að annast
fjármögnun tækjakaupa fyrir rekstrar-
aðila og einstaklinga. Þjónusta við
rekstraraðila er boðin með kjörleiðum
Glitnis, sem eru fjórar. Kjörleiðirnar
samanstanda af eignarleigu og
venjulegum lánum. Meginreglan er sú
að tækið sjálft sé aðaltryggingin fyrir
endurgreiðslu þess fjár sem lánað er.
„Það er óhætt að segja að fjármögn-
un hjá Glitni sé bæði fljótleg og þægi-
leg. Ekki þarf að binda rekstrarfé við
kaup á tækinu og aðrir lánamöguleikar
skerðast ekki. Fjármögnuð tæki eru
ávallt staðgreidd svo viðskiptavinir geta
notið hagstæðra kjara hjá seljanda. í
fjölda tilfella er frestun skattgreiðslna
einnig raunhæfur möguleiki, ef sam-
ningstími er skemmri en afskriftartími
tækisins," sagði Þórður.
Umtalsverður hluti starfsemi Glitnis
er svokölluð eignarleiga sem er samheiti
yfir fjármögnunarleigu og kaupleigu. í
henni felst að Glitnir kaupir tæki sem
viðskiptavinurinn óskar eftir og leigir
Þóröur Kr. Jóhanrtesson forstöðumaður ráð-
gjafar- og fjármögnunarsviðs Glitnis hf.
honum það í ákveðinn tíma, allt að 10
ár. Að loknum samningstímanum kaup-
ir viðskiptavinurinn tækið oft á lágu
verði. Þórður sagði að fjöldi stórra fyrir-
tækja hefði skipt við Glitni árum sam-
an og kysi þannig að nota Kjörleiðirnar
fjórar. Hver þeirra hefur ákveðna kosti
og hentar við ákveðnar aðstæður. Kjör-
leið 1 er fjármögnunarleiga þar sem
Glitnir kaupir tækið og leigir viðskipta-
vini í allt að 10 ár. Kjörleið 2 er kaup-
leiga þar sem viðskiptavinur eignfærir
búnaðinn og afskrifar samkvæmt
skattareglum. Samningstími getur verið
2-10 ár. Kjörleið 3 er greiðslusamning-
ur sem er í stórum dráttum eins og Kjör-
leið 2 og hentar fyrir smærri fjárfesting-
ar. Samningstími er lengstur 24 mánuð-
ir. Kjörleið 4 er síðan fjárfestingarlán þar
sem Glitnir lánar allt að 60% af kaup-
verði tækisins án vsk. Lánið er í formi
veðskuldabréfs og hefur Glitnir 1. veð-
rétt í tækinu sem tryggingu. Ráðgjafar
Glitnis veita viðskiptavinum vandaða
ráðgjöf um hvaða leið hentar þeim best.
Þórður benti á að með Kjörleiðunum
þurfi viðskiptavinir ekki að ganga á fyr-
irgreiðslu sína í viðskiptabankanum. Að
sama skapi er lausafjárstaðan óskert
enda er gert ráð fyrir að tækið skili tekj-
um til að mæta leigugreiðslum. Með
þessu móti gefst fyrirtækjum einnig
kostur á að endurfjármagna nýleg tæki
og bæta með því lausafjárstöðuna og
koma á fjárhagslegri endurskipulagningu.
Nauðsynlegt er að standa vel að fjár-
festingum í avinnutækjum. Það gildir
bæði um val á tækinu sjálfu og ekki síð-
ur fjármögnun þess. Velja þarf hentug-
ustu tækin sem skila mestri arðsemi að
teknu tilliti til allra kostnaðarliða. Vel
heppnuð fjárfesting eykur því tekjur
fyrirtækisins eða minnkar útgjöld þess.
Áður en ákvörðun er tekin um
hvernig fjármagna skal hið nýja tæki
þarf að skoða kjörin, greiðslubyrðina og
hugsanleg óbein áhrif s.s. skattalegt hag-
ræði. Glitnir býður upp á sveigjanlega
greiðslubyrði þar sem greiðslur eru mis-
munandi eftir árstíðum. Þetta hentar
sjávarútvegsfyrirtækjum eðlilega afar vel.
Þá getur Glitnir boðið fulla fjármögnun.
Þórður sagði að mikil aukning hefði
orðið hjá fyrirtækinu milli áranna 1994
og 1995 eða um 70% á nýgerðum sam-
ningum og lánum og aukningin fyrstu
átta mánuði þessa árs miðað við 1995 er
um 40%. „Við gerðum ráð fyrir því hjá
Glitni að gera nýja samning og lán fyrir
hátt í 3 milljarða á þessu ári. Það er
nokkuð síðan við urðum varir við bata-
merki. í flestum atvinnugreinum var orð-
in veruleg þörf fyrir endurnýjun tækja,
enda var samdráttarskeiðið í efnahags-
lífinu langt. Það er eðlilegt að þess verði
fyrst vart hér þegar hagur vænkast." □
156 ÆGIR