Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.1996, Side 164

Ægir - 01.09.1996, Side 164
Ósey Bætum stöðugt við okkur verkþekkingu og reynslu „Frá upphafi höfum við lagt áherslu á þjónustu við fyrirtæki í sjávarút- vegi, höfum smíðað spil og í skip og báta, auk þess sem við flytjum inn krana, dælur og fleira. Áherslunar í rekstrinum hafa þó breyst eftir því sem við höfum tekið að okkur stærri og viðameiri verkefni, segir Hallgrímur Hallgrímsson, einn þriggja eigenda Óseyjar. Heildverslunin og vélsmiðjan Ósey er til húsa í stóru og rúmgóðu húsnæði niður við sjó, nánar tiltekið við Hvaleyr- arbrautina í Hafnarfirði. Fastráðnir starfsmenn eru nú um 20 en fyrir ári voru þeir 12. Síðastliðinn vetur var mik- ið að gera hjá fyrirtækinu og oft voru 30 til 40 manns starfandi í smiðjunni. Auk Hallgríms voru stofnendur Óseyjar, Daníel Sigurðsson og Þórarinn Guð- mundsson. Það var árið 1987 sem fyrir- tækið leit dagsins ljós. „Við ákváðum að sérhæfa okkur í smíði spilbúnaðar en urðum fljótlega varir við að viðskipta- vinir okkar vildu meiri þjónustu, þeir viidu að sama fyrirtækið gæti tekið að sér að lengja bátana þeirra og byggja yfir þá. Mönnum finnst þægilegra að geta samið við einn aðila um allar breytingar. Ákveðið var að bregðast við þessum óskum og fórum við að taka að okkur sífellt stærri verkefni. Við vorum farnir að lenda í vandræðum vegna þess að við höfðum ekki slipp. Þá fórum við að líta í kringum okkur eftir stærra hús- næði og fundum það í Hafnarfirði og fluttum starfsemina í september í fyrra. Hér höfum við yfir að ráða tveimur dráttarbrautum og getum tekið skip og báta inn í hús til að breyta þeim. Öll að- staða hér er mun betri en hún var í Garðabænum, þar sem við vorum áður", segir Hallgrímur. Slippurinn er gerður fyrir 200 þunga- tonn eða báta sem eru allt að 29 metra langir. Stjórnendur Óseyjar hafa að mörgu leyti farið ótroðnar leiðir í rekstri á vélsmiðjunni. Þeir bjóða í breytingar og viðhald á skipum, en semja svo við önnur fyrirtæki um ýmsa verkþætti. „Fyrirtæki sérhæfa sig yfirleitt á ein- hverjum ákveðnum sviðum, sum sér- hæfa sig til dæmis í raflögnum skipa önnur í stálsmíðum og svo mætti halda áfram að telja. Það er sjálfsagt að nýta sér þessa kunnáttu og sérhæfingu, segir Hallgrímur og bætir við að þetta skili því að menn þurfi ekki að slíta í sundur verkin og þetta spari útgerðunum mikið umstang. Með þessu móti fáum við líka fleiri og viðameiri verkefni. Það verður nóg að gera hjá starfs- mönnum Óseyjar á næstunni. Búið er að semja um verkefni fram í febrúar á næsta ári. Starfsmennirnir vinna mikið, vinnuvikan er 70 tímar á viku. Ef ekki væri unnið svo mikið hefðum við ekki undan. Hallgrímur segir að það þurfi ekki að kvarta yfir verkefnaskorti frá því að fyrirtækið flutti. Hann segist sjá fyrir sér að fyrirtækið haldi áfram að vaxa og dafna. „Eftir tvö ár verður Ósey orðin rótgróin á nýjum stað og við verðum búnir að auka þekkingu okkar á öllum sviðum. Það hefur verið ákveðin stíg- andi í fyrirtækinu, við höfum verið óragir við að bæta við okkur nýjum verkefnum. Til dæmis skiptum við í Hallgrímur Hallgrímsson einn þriggja eig- enda Óseyjar. fyrsta skipti um vél í bát og endurnýj- uðum skrúfubúnað en þetta höfðum við aldrei gert áður. Slíkum verkefnum fjölgar og við lærum nýja hluti, verk- þekkingingin vex og verkefnin verða fjölbreyttari. Þrátt fyrir þetta er grunnurinn sá sami segir Hallgrímur, við erum enn að gera sömu hluti og við byrjuðum á. 60 prósent af framleiðslunni eru smíði á spilum. Við höfum hins vegar á þessum tæpa áratug sem fyrirtækið hefur verið starfrækt víkkað út starfsemina og það höldum við áfram að gera. Við höfum líka flutt inn töluvert mikið af dælum, vindum og ýmsum öðrum búnaði fyrir skip og báta og því höldum við áfram í framtíðinni. □ 1 64 ÆGIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.