Ægir - 01.06.1998, Blaðsíða 57
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Þrátt fyrir að Reykjaborgin sé ekki stórt
skip þá er rýmið í matsal og eldhúsi góð
sönnun þess hversu vel skipið er hannað.
Mynd: Guöbergm Rúnarsson
viðvörunarbaulu fyrir ástand véla. Að-
vörunarkerfið gerir viðvart og „baular"
ef ástand breytist umfram markgildi.
Skipstjórastóllinn er af gerðinni Nor
Sap 1000.
Fimm 1000W vinnuljós eru fyrir
þilfar og veiðafæri. Tvö aftast á brú og
þrjú aftur á gálga. Eitt þeirra snýr fram
en tvö aftur. Einn 1000W ískastari frá
Seematz er á brúarþaki.
Lest og löndunarlúga
Fiskilest Reykjaborgar RE er hönnuð
fyrir matvæli og auðveld þrif. Óhrein-
indum og bakteríuflóru er haldið i
skefjum með sléttum og heilum flöt-
um sem er auðvelt að þrífa. Lestin er
einangruð með 50 - 200 mm steinull
og klædd ryðfríu stáli í hólf og gólf.
Gólfflötur lestarinnar er 5,16 x 5,0 m
og lofthæð 2,0 m. Samtals er lestin
51,6 m3 og rúmar 38 x 660 1 kör.
í lestinni er kælikerfi, kælibásarar
sem viðhalda 0°C hita í lest við 25°C
sjávarhita og 30°C lofthita. Kerfið er
frá Rafskaut ehf. á ísafirði.
Stjórnborðsmegin við miðlínu er
löndunarlúga úr áli á 600 mm karmi.
Stærð lúgunnar er 1500 x 2000mm.
Smálúga er á löndunarlúgu fyrir um-
gang niður í lest. Þá eru smálúgur á
þilfari fyrir afla. Á lestalúgu er mót-
tökukar fyrir afla sem er allt að 3,5
tonn. Aðgerðarborð eru sambyggð
móttökukari og sérstakt þvottakar er
fyrir hverja aðgerðastöð.
Helstu mál og stærðir
Aðalmál
Mesta lengd (Loa) 17,87 m
Lengd milli lóðlína 15,80 m
Breidd (mótuð) 5,50 m
Dýpt að þilfari 2,92 m
Djúprista 1,95 m
Rými og stærðir
Eiginþyngd 88,7 tonn
Særými við 2,1 m djúpristu 116 tonn
Lestarými
Brennsluolíugeymar 6,3 tonn
Ferskvatnsgeymar 2,2 tonn
Vökvaolíugeymar 0,6 m3
Spillilolíugeymir 50 I
Andveltitankur
Mæling
Rúmlestatala Brl 57,01
Brúttótonnatala BT 73,00
Nettótonn NT 22,00
Rúmtala 250,2 m3
Skipaskrár númer 2325
Aflvísir 471,8
Áætluð bryggjuspyrna
SeineTec gefur upplýsingar um átak á hvort tóg, raunhraða voðar og aðrar gagnlegar
upplýsingar um veiðarfœrið í drœtti.
57