Ægir - 01.09.1998, Blaðsíða 8
Túnfiskbátar í Reykjavíkurhöfn
Reykjavíkurhöfh var með japönsku yfirbragði á dögunum þegar
Ægir varþar á ferð. Mörg japönsku túnfiskveiðiskipanna, sem
nú eru að veiðum suður aflandinu, voru í höfn en eftirþví sem
best er vitað hefurþeim gengið þokkalega. Miðað við reynsluna
frá í fyrra má ætla að skipin verði að veiðum fram í
nóvembermánuð, japivel lengur.
Vel heppnuð dagskrá
á „Degi hafsins“
J^ann 12. september var í fyrsta
JT skipti haldinn „Dagur hafsins"
hér á landi og er óliœtt að seg/a að
þáttaka almennings í dagskránni
hafi verið mikil. ,S’vo fór að
framlengja varð dagskrána í
Sjávarútvegshásinu við Skúlagötu í
Reykjavík þar sem eru til húsa
Hafrannsóknarstofnunin og
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins.
Þar var því opið almenningi í tvo
daga.
Tekin var ákvöröun um að halda
„Dag hafsins" í tilefni af alþjóðlegri
yfirskrift ársins sem tengd er hafinu.
Markmiðið með því að efna til sérstaks
dags hér á landi með slíkri yfirskrift
var að fá sem flesta til að hugsa til
hafs. Miðað við viðtökurnar sem opið
hús fékk þá leitar hugur landsmanna
gjarnan til hafs þegar til þess er hvatt.
„Dagur hafsins" er einn af þeim
þáttum sem stjórnvöld settu á dagskrá
í tilefni af ári hafsins. Fleira hefur
verið gert á árinu og verður gert, t.d.
ráðstefnuhald og fræðslufundir, auk
heldur sem marg er gert í skólum
landsins í tilefni af ári hafsins. Loks
má ekki gleyma þátttöku íslands í
heimssýningunni í Lissabon í Portúgal
sem sérstaklega var helguð hafinu.
8 MÆ.
Byr VE fer í
túnfiskglímuna
Nokkur seinkun hefur orðið á
heimkomu togarans Byrs VE, sem
verið hefur í breytingum í Póllandi
þar sem skipið hefur verið sérútbúið
til túnfiskveiða. Par með verður Byr
VE fyrsta sérútbúna túnfiskveiði-
skipið í eigu íslenskrar útgerðar og
raunar er þetta eina útgerðin sem
reynt hefur fyrir sér á túnfiskveiðum
suður af landinu. Byr er nú um það
bil að hefja túnfiskveiðar og verður
fróðlegt að fylgjast með framvind-
unni enda hefur útgerðin aflað sér
ýmissa upplýsinga um túnfiskveiðar
og fara til að rnynda japanskir tún-
fiskveiðimenn með skipinu í fyrsta
túrinn. Segja má því að farið sé til
veiða með nokkru meiri vind í segl-
unum en í fyrra og vonast útgerðar-
aðilar Byrs VE til að geta haldið
skipinu úti á túnfiskmiðunum fram
undir áramót.
SR-Mjöl styrkir
hráefnisöflunina
SR-Mjöl hf. hefur keypt 40% hlut
í útgerð loðnuskipsins Pórðar Jónas-
sonar EA á Akureyri. Skipið hefur
1,8% loðnukvótans, þ.e. rúmlega 20
þúsund tonn. Kaup SR-Mjöls hf.
hafa þann tilgang að tryggja hrá-
efnisöflun fyrir verksmiðjur fyrir-
tækisins.