Ægir - 01.09.1998, Blaðsíða 51
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
skilur þau að. Bakborðshúsið er stærra
og meira. Þar eru fremst þrír tveggja
manna klefar, þá salerni, sturta í sér
klefa, matsalur og eldhús. Aftast í hús-
inu eru geymslur fyrir vistir sem deilast
í þurrgeymslu, kæli og frysti. Stigahús
er í bakborðshúsinu, frá brú niður í
stakkageymslu á vinnsluþilfari.
í stjórnborðshúsi eru þrír tvegga
manna klefar sem sameinast um eina
salernis- og snyrtiaðstöðu. Gengið er út
úr húsinu út á bobbingarennu. Aftast í
húsinu er veiðafærageymsla og verk-
stæði með útgangi út á þilfar.
Á bakkaþilfari er íbúðahús. í húsinu
eru þrír tveggja manna klefar fremst og
tveir tveggja manna klefar stjórnborðs-
megin, þar aftanvið er íbúð skipstjóra
og aftast er klefi fyrir loftræstibúnað.
Stjórnborðsmegin í húsinu eru íbúðir
stýrimanns og yfirvélstjóra sem sam-
einast um salerni og sturtu. í miðju
hússins er þvottaklefi og þar fyrir aftan
sjúkraklefi.
Brúin
Brú Asks er T-laga og nær yfir breidd
skipsins fremst. Fremst í brúnni fyrir
miðju er U-laga stjórnpúlt skipsstjóra. í
stjórnpúltinu eru helstu siglinga-,
stjórn-, og fiskileitartæki. Bakborðs-
megin aftast í brúnni er sérstakur fjar-
skiptakelfi og þar framanvið klefi fyrir
aflgjafa og spennubreyta tækja í brú.
Stjórntæki fyrir vélbúnað og skrúfu eru
einnig fremst í brúnni stjórnborðsmeg-
in og í stjórnpúlti togvinda sem er aft-
ast í brúnni með útsýni aftur á efraþil-
far. Á brúarþaki eru fjarskipta- og rat-
sjármastur, tveir ískastarar, leitarljós og
gúmmíbjörgunarbátar.
Lest og löndunarlúgur
Frystilestar skipsins eru tvær, aðallest
sem er undir aðalþilfari svo og efri
frystilest framan við vinnslusal á aðal-
þilfari, samtals um 1000 m3. Efri lestin
er notuð sem umbúðageymsla á með-
an pláss er í aðallest. Ein lestarlúga, 2,5
x 2,5 m að stærð, er á hvorri lest og
samskonar lúga á efra- og bakkaþilfari.
Frystikerfi lestanna eru spíralrörakælar
sem viðhalda —30° C frosti. Lestar eru
einangraðar með steinull og klæddar
krossviði.
Vinnsluþilfar
Aftan við efri lest á aðalþilfari er
vinnsluþilfar sem nær aftur að fiski-
móttöku. Vinnsluþilfarið er innréttað
til vinnslu á rækju með tveimur aðal
vinnslulínum, þ.e. lausfrystingu og
pönnufrystingu. Fiskimóttaka er með
tvískiptri vökvaknúinni fiskilúgu. Tvær
rennilokur eru á fiskimóttökunni og
fer aflinn þaðan beint niður á flokkun-
arband. Færiband flytur rækjuna yfir á
tvo Carnitech flokkara og þaðan, allt
eftir vinnslu, til litunarkara, eða til
tveggja sjóðara frá Kronborg, þá til
tveggja lausfrysta frá Sabroe eða til
Jackston AVP plötufrysta, en þeir eru
þrír, 15 stöðva hver. Pökkunarlínan
samanstendur af fjórum Marel vogum
og bindivélum frá Strapex af gerðinni
102. Talið er að lausfrystarnir afkasti
800 kg/klst hvor, eða allt að 30
tonnum á sólahring þegar tekið er tillit
til afhrímingar. Plötufrystarnir afkasta
samtals um 15 tonnum á sólarhring.
Vindubúnaður
og losunarbúnaður
Togvindur og annar vindubúnaður er
vökvaknúinn af lágþrýstikerfi skipsins.
Búnaðurinn er frá A/S Hydraulik Bratt-
vaag og um er að ræða tvær togvindur,
fjórar grandaravindur, tvær hífinga-
vindur, akkerisspil, hjálparvindur á
skutgálga og fremst í bobbingarennu.
Grandaravindur eru sex, allar sömu
tegundar, DSM 2202, fjórar með
M2202 vökvamótorum en tvær nýjar
með M 4202 mótorum og 12 tonna
togkrafi. Tromlumál þeirra er 420<þ x
1200cþ x 400 og togkraftur eldri vinda
er 6 tonn við 65 m/mín.
Hífingavindurnar á bátaþilari eru
einnig DSM 2202 með tromlu og laus-
um kopp. Togkraftur er um 6 tonn.
Akkerisvindan er búin tveimur út-
kúplanlegum keðjuskífum og tveimur
koppum. Hana knýr M2202 mótor.
Þrír losunarkranar eru um borð.
Kraninn fram á bakka er frá HMF af
gerðinni M180-K3 með lyftigetuna 2,2
tonn við 8,1 metra arm. Miðkraninn er
einnig frá HMF. Hann er af gerðinni
M160-TO B5 og lyftir 2,25 tonnum við
7 metra arm. Sjálfstætt rafdrifið vökva-
kerfi er við ofangreinda krana. Aftasti
kraninn er frá DAN, gerð DAN-45 með
lyftigetuna 2,5 til 3,7 tonn. Allir kran-
arnir eru með vírspili sem togar 2 til
2,5 tonn.
Vélbúnaður
Aðalvél Asks er frá Wichmann, gerð
5AXAG, fimm strokka línubyggð tví-
gengisvél með forþjöppu og eftirkæli.
Hún er 2242 hestöfl (1650 kW) við 475
snúninga á mínútu. Vélin tengist kúpl-
ingu og niðufærslugír frá Volda og
skrúfubúnaði frá Wichmann. Skrúfan
er fjögurra blaða skiptiskrúfa, 3100
mm í þvermál og er hún í hring.
Framan á vélinni er Hytek aflúttak,
gerð FC-1250-69 með fjórum úttökum
Helstu mál og stærðir fyrir hvora togvindu
Tromlumál.................................500 mmiji x 800 mmij) x 325 mm<j>
Vírmagn á tromlu................................2000 metrar af 24 mm<j» vír
Vökvaþrýstingur...................................................40 bör
Togkraftur............................................27 tonn bera tromlu
ÆGIR 51