Ægir - 01.09.1998, Blaðsíða 43
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
far. Tveir tveggja manna klefar eru þar
fyrir aftan, miðskips er eins manns
klefi og salerni, gangar og stigahús
upp í yfirbyggingu ásamt síma- og
þvottaklefa.
Þilfarshús á bakkaþilfari
Aftast stjórnborðsmegin í húsinu, sem
er U-laga, er fjögurra manna klefi, þá
eins manns klefi með sér salerni og
snyrtingu. Þar framan við er setustofa.
Salerni og sturta eru í klefa á gangin-
um. Miðskips aftast eru tveir klefar,
eins og tveggja manna, en fremst eru
sturtuklefar og salerni. Bakborðsmegin
aftast er sjúkraklefi með snyrtingu, þá
tveir tveggja manna klefar, fjögurra
manna klefi og fremst tveggja manna
klefi.
Á brúarþilfari bakborðsmegin aftan
við stýrishúsið er íbúð skipstjóra og
stjórnborðsmegin er eins manns klefi.
Vinnsluþilfar
Vinnsluþilfar Orra ÍS er nú sem nýtt
og sérhæft til vinnslu á rækju; til fram-
haldsvinnslu í iandi eða beint í öskjur
á Japansmarkað. í skipinu er frystibún-
aður sem afkastar 70 til 80 tonnum á
sólahring í tveimur lausfrystum og sex
plötufrystum, sem koma frá Hrað-
frystihúsi Norðurtangans.
Móttaka og vinnsla afla
Framan við skutrennu er vökvaknúin
fiskilúga fyrir fiskmóttöku. Móttakan
er klædd ryðfríu stáli, lokuð að framan
og búin tveimur vökvaknúnum lúgum
sem veita hráefni inn á flokkunar-
band.
Vinnslulínan samanstendur af
þremur rækjuflokkurum af gerðinni
KM 1130 CW sem afkasta allt að 2000
kg/klst hver, tveimur suðupottum af
gerðinni KM 340 frá sama fyrirtæki,
afköst eru 1000 kg/klst, tveimur laus-
frystum frá 3X-Stáli og Frystikerfum
ehf. sem afkasta 750 kg/klst hvor. Auk
þessa eru sex láréttir 15 stöðva plötu-
ÆGIR 43