Ægir - 01.09.1998, Blaðsíða 11
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Sextíu ár er hár aldur fyrirtœkja á íslandi en þann virðulega aldur ber fyrir-
tcckið Lýsi hf. sem lengstum hefur verið í eigu Tryggva Ólafssonar og fjöl-
skyldu hans. Nýlega urðu breytingar á eignaraðild fyrirtœkisins á þann hátt
að stór fagfjárfestir, Eignarhaldsfélag Alþýðubankans, hefur keypt stóran hlut
í fyrirtœkinu og fleiri aðilar hafa keypt minni hluti. Framundan eru einnig
miklar byggingaráœtlanir hjá Lýsi hf. þar sem yfir starfsemina verður byggt
nýtt hús og þar með flytur fyrirtœkið frá Gratidavegi, þar sem það liefur verið
um áratuga skeið. Lýsi hf. hefur tekið miklutn breytingum á undanfórtiutn
árutn og breyst úrþví að vera nœr eingöngu framleiðandi tunnulýsis yfir í að
vera sókndjarft markaðsfyrirtœki á erlendri grundu með framleiðsluvörur sín-
ar og vaxandi hluti starfseminnar snýst um að fratnleiða lýsi í neytendaum-
búðir. Þessu starfi stýrir Baldur Hjaltason, framkvœmdastjóri Lýsis hf., og til
að frœðast betur utn starfsemi og stöðu hins sextíu ára gamla fyrirtœkis tók
Ægir hús á honum nú á haustdögum.
Lýsi hf. var stofnað árið 1938 og
fram á mitt þetta ár hefur fyrirtækið
verið í eigu Tryggva Ólafssonar og af-
komenda hans. Eftir kaup Eignar-
haldsfélagið Alþýðubankinn á hlut í
félaginu er það stærsti einstaki hlut-
hafinn en fjölskyldan á áfram um
fjórðung eignarhlutans. Allar þessar
breytingar segir Baldur Hjaltason,
framkvæmdastjóri, að séu í takt við
þær breytingar sem eru í umhverfi fyr-
irtækja á íslandi nú um stundir og
miði í þá átt að gera fyrirtækið opnara
og treysta það jafnframt í sessi.
„Stefnan er sú að skrá fyrirtækið á
aðallista Verðbréfaþings sem fyrst.
Framundan er mikið uppbyggingar-
starf við fiutning og byggingu nýs
húsnæðis og vegna þess vil ég bíða
með spár um hvernær fyrirtækið verð-
ur skráð á Verðbréfþing," segir Baldur.
Erum að læra
á neytendavörumarkaðina
Lýsi hf. er með um 30 starfsmenn og á
síðasta ári velti fyrirtækið um 450
milljónum króna. Athyglisvert er
hversu mikil veltan er miðað við
starfsmannafjölda en Baldur bendir á
að 75% tekna Lýsis hf. skapast af út-
flutningi og 25% af sölu á innanlands-
markaði en raunar var innanlands-
markaðurinn enn lægra hlutfall
veltunnar á árum áður. í kringum
1980 var mörkuð sú stefna að auka
framleiðslu neytendavöru hjá Lýsi hf.
en fram að því hafði framleiðsla fyrir-
tækisins fyrst og fremst verið flutt í
tunnum eða tönkum á erlenda mark-
aði og þar var henni pakkað í neyt-
endapakkningar. Með því að auka
framleiðslu á neytendavörum horfði
fyrirtækið til þess að byggja upp
traustan grundvöll tii framtíðar og það
hefur gengið eftir með mjög breiðri
vörulínu af lýsi og lýsisperlum. Þessi
stefnumörkum gerði líka að verkum
að fyrirtækið skapaði sér möguleika til
útflutnings á sömu neytendavörum á
erlenda markaði og til marks um út-
flutningsstarf Lýsis hf. þá hefur fyrir-
tækið selt vöru til yfir 100 þjóðlanda á
þeim sextíu árum sem það hefur starf-
að.
„Lýsi hf. seldi á árum áður mikið í
umboðssölu, bæði mjöl,lýsi og skreið,
en eftir að það dró sig út úr henni þá
hefur það byggt starfsemina á fram-
leiðslu á lýsi í tunnur og tanka og hins
vegar þessa neytendavöru. Undan-
gengin 15-18 ár hafa verið mjög lær-
dómsrík fyrir okkur og ekki hvað síst
höfum við lært mikið inn á neytenda-
markaðina og viðskipti með neytenda-
vöru. Að sama skapi hafa neytenda-
vörurnar orðið stærri og stærri þáttur í
starfseminni og þar tel ég liggja mestu
vaxtarmöguleikana í framtíðinni.
Neytendamarkaðirnir taka heldur ekki
eins miklum sveiflum í verði og hrá-
vörumarkaðirnir og þannig drögum
við úr áhættu með því að fara meira
inn á neytendavörumarkaðina."
Lýsisvörur
á Malasíumarkað eftir áramót
Að jafnaði flytur Lýsi hf. vörur sínar til
AGIR 11