Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1998, Blaðsíða 20

Ægir - 01.09.1998, Blaðsíða 20
JHyrirtœkið Fiskafiirðir hf. í Reykjavík, sem raunar hefur nýverið flutt JT starfsemi sína á Seltjarnarnes, hefur verið hraðvaxandi á undanfórnum árum. Hér á landi er fyrirtœkið kannski hvað þekktast fyrir viðskipti í Rússlandi, en mörgum vex í augum að takast á við það markaðssvœði, jafn sveiflukennt og stjórnmálaástandið hefur verið þar að undanfórnu. Engu að síður segir fón Sigurðarson, framkvœmdastjóri Fiskafurða hf., að með réttum vinnubrögðum sé unnt að ná fram góðum arði afviðskiptum við Rússa og hann segir tœkifœrin fyrir hendi í Rússlandi, efvel sé á spöðum haldið. Eitt af nýjustu verkefnum Fiskafurða hf. í Rússlandi er útgerð tveggja vinnsluskipa í Barentshafi í samstarfi við aðila í Múrmansk. Svo kann að fara að enn fleiri togarar verði keyptir til slíkra verkefna en um Barentshafsiítgerðina hefur verið stofnað sérstakt dótturfélag Fiskafurða hf. og raunar er annað dótturfélag starfrœkt um framleiðslu og sölu á meðalalýsi. „Þrátt fyrir að Fiskafurðir hf. sé þekktast fyrir Rússlandsverkefnin þá er það svo að minnihluti veltunnar verð- ur til í þeim verkefnum. Okkar sterkasta bakbein hefur alla tíð verið í umboðsverslun með fiskimjöl og lýsi og svo er enn," segir Jón Sigurðarson. „Fyrirtækið var stofnað árið 1981 af tengdaföður mínum, Pétri Péturssyni, og á fyrstu árunum snerist starfsemin um útflutning á búk- og lifrarlýsi. Síð- ar hófst bræðsla á lifur, jafnframt kaupum á lýsi af öðrum en með árun- um hefur framleiðsla lýsis í neytenda- umbúðum orðið fyrirferðarmeiri í starfseminni. Þekktasta vörumerki okkar er Eyjalýsi en þessa dagana er að koma ný framleiðslulína á markaðinn undir heitinu íslandslýsi," segir Jón en starfsemin í kringum lýsið hefur nú verið sett undir dótturfyrirtækið Fiskafurðir lýsisfélag hf. Útgerðinni í Barentshafi stjórn- að frá Seltjarnarnesinu Alþjóðaviðskipti með búklýsi og fiski- mjöl hafa allt frá fyrstu árum verið stór þáttur í rekstrinum en Rússlands- viðskiptin hófust eftir að Jón kom inn í fyrirtækið árið 1990. Með stofnun sérstaks fyrirtækis um Rússlandsverk- efnin, þ.e. Fiskafurða útgerðar hf., seg- ir Jón að markvissari uppbygging verði í þessum þætti starfseminnar. „Fiskafurðum útgerð hf. verður ætl- að að halda áfram að kaupa fisk af Rússum til vinnslu á Vesturlöndum og þá á ég við ísland, Kanada og Evrópu- sambandsríkin. Annað verkefni verður að selja íslenskar fiskafurðir til Rúss- lands og síðan verður þriðja verkefnið að sjá um útgerð á flakafrystiskipum í Barentshafi. Við höfum, ásamt sænsku fyrirtæki, keypt tvo frystitogara og leigt þá til Rússlands. Annar þeirra fór til Rússlands í desember í fyrra en það skip var í eigu MF, hins þýska dóttur- fyrirtækis ÚA, en hinn keyptum við nýverið á Akranesi og það skip er ný- farið í Barentshaf. Við munum leigja skipin til rússneskra aðila með kaup- réttarákvæðum, sem þýðir að Rússarn- ir leggja til veiðikvótana en við leggj- um til yfirmenn á skipin. Héðan frá Fiskafurðir hf. auka umsvif sín i Rússlandi með útgerð tveggja fullkominna flakafrystitogara í Barentshafi: Rússar ætla sér ekki að verða til eilífðar hráefnisaflendur fyrir fískvinnslur á Vesturlöndum - segirJón Sigurðarson, framkvœmdastjóri Fiskafurða hf. 20 Mcm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.