Ægir - 01.09.1998, Blaðsíða 39
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Skipabreytingarnar
góð þjónustuviðbót
Undangengin þrjú ár hefur Atlas ekki
aðeins flutt inn vélar og tæki heldur
líka verið í skipabreytingum. Fyrirtæk-
ið er með umboð fyrir skipasmíða-
stöðvar á Spáni og í Póllandi og þar
hefur íslenskum skipum verið breytt á
vegum þess.
„Okkur fannst þennan þátt vanta í
okkar þjónustu. Breytingar á skipun-
um hanga oft saman við endurnýjun á
tækjum og þess vegna vorum við
sannfærðir um að menn kynnu að
meta það ef við bættum þessu við á
þjónustulistann hjá okkur. Sú hefur
enda orðið raunin," segir Ásgeir.
Aðspurður hvort ekki sé óeðlilegt að
senda skip til breytinga erlendis segir
hann það gert af illri nauðsyn. Hann
segir það sitt mat að stjórnvöld hafi
rústað skipasmíðaiðnaðinn algerlega á
sínum tíma með miður skynsamleg-
um lögum og reglugerðum, m.a. í
sambandi við kvóta og úreldingu.
„Við fórum algerlega niður á botn í
þessu en erum sem betur fer eitthvað
að rétta úr kútnum. Þetta er þeim mun
sorglegra fyrir þá sök að við vorum
komnir með ágætis fagmenn í skipa-
smíðaiðnaðinn," segir Ásgeir og Gísli
tekur undir orð föður síns.
Aðspurðir um vinnubrögð hjá
erlendum stöðvum segja feðgarnir að
menn séu almennt sammála um að
Pólverjarnir séu góðir í stálvinnu en
þó kannski ekki eins góðir í innrétt-
ingum og íslenskir iðnaðarmenn. Þar
fyrir utan sé það ekki fyrr en á síðustu
árum sem þeir hafi getað boðið upp á
þau gæðaefni sem íslendingar geri
kröfur um að séu notuð.
Feðgarnir segja um þróunina í við-
haldsmálum hér á landi að þar sé vel á
málum haldið enda sé það góð leið
fyrir útgerðarmenn til þess að endur-
nýja skip sín. Vegna reglna um úreld-
ingu þurfi menn sífellt að vera að
dytta að gömlu skipunum, smíða nýtt
utan um gamla skipið eða endurnýja
innvolsið í gamla dallinum. Þrátt fyrir
þessa endurnýjun sé grunnurinn alltaf
gamall. Þeir segja menn hafa orðið af
því nokkrar áhyggjur hversu gamall
flotinn sé orðinn hér við land.
Ásgeir segir menn nú bíða þess hver
verði næstu skref í veiðunum. Kol-
muninn sé vissulega spennandi dæmi
en til þess að veiða hann þurfi öflugri
skip en hér sé almennt að finna. Eftir-
spurn sé nú eftir stærri vélum, allt upp
í 7.000 hestöfl.
„Við þurfum stöðugleika í sjávarút-
veginn. Vonandi bera menn gæfu til
þess að breyta reglugerðum þannig að
allir geti vel við unað. Það er ljóst að
við þurfum að yngja upp flotann enda
þegar komið í óefni," segja feðgarnir
að lokum.
TRYGGINGA-
MIÐSTÖÐIN HF.
AÐALSTR/CTI 6-8 • 101 REYKjAVÍK
SÍMI 515 2000
SGSR 39