Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1998, Síða 9

Ægir - 01.09.1998, Síða 9
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Stikla útgerðarvörur hafa keypt Frigg og tekið við rekstrinum: Tilgangurinn að efla þjónustuna í sjávarútvegi - segir Luther Guðmundsson, framkvœmdastjóri og annar eigenda Stiklu TJyrírtœkiö Stikla útgerðarvörur í .T Reykjavík keypti nú í byrjun sept- entber hreinsiefnaverksmiðjuna Frigg í Reykjavík og tók þegar við rekstin- um. Óhœtt er að segja að með þessu hafi Stikla stigið stórt skrefenda er ársvelta Friggjar þrefóld á við veltu Stiklu en Luther Guðmundsson, framkvœmdastjóri Stiklu, segir að með kaupunum sé stigið rökrétt framhald afvexti Stiklu. Þjónustan við sjávarútveginn, og raunar allan matvœlaiðnað, batni enn frekar. „Við höfum verið að fikra okkur áfram í rekstrarvörum almennt, flutt inn mikið af einnota vörum fyrir mat- vælaiðnaðinn, hnífum fyrir fiskiðnað- inn og síðan höfum við verið að færa okkur upp á skaftið varðandi innflutn- ing á hreinsiefnum fyrir rækjuiðnað- inn. Þegar við settumst niður og fór- um yfir stöðuna og mátum hvar við ættum að sækja fram þá varð það nið- urstaðan að sækja fram í þjónustu við sjávarútveginn og þá sáum við að Frigg hentaði okkur vel enda framleið- andi á hágæða hreinsiefnum fyrir mat- vælaiðnaðinn og sjávaútveginn," segir Luther. Hann segir að í framtíðinni muni sjávarútvegurinn snúast í auknum mæli um fullvinnslu og þar af leiðandi muni kröfur verða sífellt strangari. Mikilsvert sé því að eignast háþróaðan framleiðanda á hreinsiefnum, eins og Frigg, sem uppfylli ströngustu gæða- kröfur varðandi eigin framleiðslu og framleiði fyrsta flokks vörur fyrir há- gæða matvælaiðnað. Góðar úrlausnir ESAB gf LOWARA byggjast á faglegri þekkingu og vönduðum tœkjum. Héðinn verslun kappkostar að bjóða heimsþekktar gæðavörur, tryggan lager oggóða þjónustu. í söludeildinni starfa iðnaðar- og tæknimenn með góða þekkingu hver á sínu sviði. Þeir leggja sig fram um að aðstoða við val á réttu tœkjunum í hvert úrlausnarefni. = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 510 4100 ÆGIIR 9

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.