Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1998, Page 13

Ægir - 01.09.1998, Page 13
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI „Horft lengra fram í tímann þá met- um við það svo að lýsisframleiðsla muni nálgast æ meira náttúrulyfja- markaðinn. Okkur var það til dæmis mjög mikilvægt að fyrir rúmu ári settu kínversk yfirvöld mjög áþekka náttúru- lyfjareglugerð og þekkist í Evrópu. Þar með geta fyrirtæki ekki selt náttúrulyf í Kína nema að undangenginni skrán- ingu með tilheyrandi upplýsingagjöf um vöruna, innihaldi, vottorðum og þess háttar. Það hefur þannig sína kosti að spornað sé við því að hver sem er komist inn á markaðinn með vörur sem sagðar eru hafa hitt og annað innihald, sem ekki reynist fullkomlega rétt," segir Baldur. Leiðandi markaðsfyrirtæki Baldur leggur mikla áherslu á þá breyt- ingu sem orðin er á fyrirtækinu í mark- aðsátt. Unnið sé eftir langtímamark- miðum og stefnan sé á enn frekari uppbyggingu í útflutningi. Þær áætlan- ir endurspeglast til að mynda í því að verulegur hluti þeirra fjármuna sem koma inn í fyrirtækið með auknu hlutafé mun renna beint til markaðs- setningar erlendis. „Við höfum verið að breyta fyrir- tækinu úr framleiðslufyrirtæki yfir í markaðsfyrirtæki. í stefnumótun fyrir- tækisins höfum við sett okkur að vera ekki aðeins leiðandi í framleiðslu á lýsi heldur einnig í sölu- og markaðssetn- ingu á sjávardýraolíum. Þetta þýðir að við höfum verið að bæta við nýjum lýsistegundum til að þjóna okkar við- skiptavinum og til að geta gert það þá bjóðum við t.d. túnfisklýsi úr hráefni sem við flytjum inn frá Tælandi og Ástralíu. Úr þessu lýsi vinnum við olíur sem eru síðan seldar til evrópskra fyrirtækja sem framleiða barnamat. Þess má einnig geta að við höfum selt sama túnfiskslýsið fullunnið aftur til Tælands," segir Baldur. -Hvernig stendur á að svona lagað borgar sig? „Það er einfaldlega þannig að hjá okkur liggur þekkingin til að ná verð- * a » ? & 8 lewi^ » a i«jm** Uppbygging á 1200 milljóna manna markaði í Kína Með samningi sem Lýsi hf. gerði vorið 1997 við dreifingaraðila í Kína var blásið til sóknar í þessu mannmarga stórveldi. Fyrir lítið fyrirtæki á íslandi er 1200 milljóna manna markaður í i Kína nánast ógnvekjandi stór en til þess hefur verið horft að uppbyggingin sé jöfn og markviss. Samstarfsaðili Lýsis hf. í Kína lagði mikið upp úr athöfninni í kringum undirskrift samningsins við Lýsi hf. og fór hún fram í Höll alþýðunnar í Peking að viðstöddu stórmenni á borð við heilbrigðisráðherra Kína og ekkju Maós formanns. Hún er fjórða frá hægri á myndinni hér að ofan en myndin var tekin við undirritun samninganna. Frá íslandi voru m.a. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra ásamt nokkrum starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins, fulltrúar úr íslensku utanríkisþjónustunni og fleiri. Vörurnar frá Lýsi hafa verið auglýstar í sjónvarpi á Peking-svæðinu en nú í haust verður ráðist í auglýsingaherferð í Kínverska ríkissjónvarpinu. Samstarfs- aðili Lýsis hf. í Kína ber að verulegum hluta þann kostnað sem til fellur í mark- aðssetningarstarfinu en engu að síður er reiknað með að á síðari hluta þessa árs verji Lýsi hf. sjálft um 25-30 milljónum króna til markaðsstarfsins í Kína. Til gamans ma geta þess að orðið lýsi hefur í Kína merkinguna „sterkur hug- ur“ og það telja Lýsismenn mjög gott innlegg í nrarkaðssetningu vörunnar í Kína og nota orðið þar af leiðandi óspart á framleiðsluvörurnar. Eitt af næstu skrefum í sókninni á Kínamarkaði verður með „Krakkalýsi“ sem vel er þekkt héðan af heimamarkaði. Ástæðan fyrir því að taldir eru góðir möguleikar með þá vöru í Kína er einfaldlega sú að Kínverjar mega aðeins eignast eitt barn og þar af leiðandi er líklegt að kínverskir foreldrar geri allt sem þeir geta til að gæta hollustu þessa eina afkvæmis sem þeir hafa leyfi til að eignast. AGiIR 13

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.